Morgunblaðið - 26.04.2008, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 25
Á SUMARDAGINN fyrsta birt-
ist grein eftir Kjartan Magnússon,
borgarfulltrúa og stjórnarformann
REI. Þar heldur hann
því fram að í greinum
undirritaðrar; Svan-
dísar Svavarsdóttur
og Óskars Bergssonar
um málefni Reykjavík
Energy Invest, sé að
finna margar rang-
færslur og er yfirlýst
markmið hans með
grein sinni að leið-
rétta nokkrar þeirra.
Raunar tiltekur Kjart-
an í grein sinni aðeins
tvær meintar rang-
færslur þar sem
meintar leiðréttingar
Kjartans eru í báðum tilvikum
áframhaldandi útúrsnúningar af
hans hálfu.
Eþíópíumálið
Kjartan byrjar á því að fullyrða
að ég og Óskar Bergsson höfum
ítrekað haldið því fram að hann
„hafi skrifað undir viljayfirlýsingu
um verkefni í Eþíópíu“ þetta segir
Kjartan „rangt“.
Hið rétta er að forstjóri REI,
Guðmundur Þóroddsson, skrifaði
undir viljayfirlýsingu við Eþíóp-
íumenn í janúar með fyrirvara um
samþykki stjórnar. Á þessum tíma
var í gildi samþykkt þess efnis að
stjórn REI gæti ekki tekið neinar
skuldbindandi ákvarðanir varðandi
ný verkefni REI. Því var sam-
þykkt á viljayfirlýsingunni vísað
til stjórnar OR til endanlegrar af-
greiðslu. Þar var málið aldrei tek-
ið fyrir, nýr meirihluti hrifsaði til
sín völdin í borginni og í fram-
haldinu fékk REI nýja stjórn og
fullt umboð.
Viljayfirlýsingin við Eþíóp-
íumenn var því lögð fram að nýju í
stjórn REI hinn 12.
mars og samþykkt á
síðasta fundi stjórnar
REI hinn 4. apríl;
báðir fundir eftir að
Kjartan tók þar við
stjórnarformennsku.
Það er því óumdeil-
anlegt að viljayfirlýs-
ingin við Eþíópíu tók
ekki gildi fyrr en
Kjartan Magnússon
samþykkti hana í
stjórn REI.
Kjartani Magn-
ússyni finnst hann
kannski ekki vera að
samþykkja neitt nema hann sé lík-
amlega fluttur til framandi landa
og látin skrifa undir skjöl undir
dynjandi lófataki og leiftrandi ljós-
myndaflössum. Staðreyndin er þó
sú að slíkar undirskriftir hafa ná-
kvæmlega sama vægi og samþykki
stjórnar vegna viljayfirlýsinga
sem skrifað hefur verið undir með
fyrirvara um samþykki stjórnar.
Filippseyjar
Eins og ég rakti í grein í Morg-
unblaðinu, miðvikudaginn 23. apr-
íl, voru uppkaup á Filippseyjum í
fullum gangi í tíð fyrsta meirihluta
sjálfstæðismanna, samstarfssamn-
ingur hafði verið undirritaður við
GGE um að standa sameiginlega
að kaupum í filippseyska fyrirtæk-
inu EDC. Fimm hundruð millj-
ónum, var í tíð fyrsta meirihlut-
ans, varið til kaupa á 0,4% hlut í
filippseyska fyrirtækinu. Tilboðs-
gerð í ráðandi hlut í fyrirtækinu
var í vinnslu þegar hundrað daga
meirihlutinn tók við. Vissulega er
rétt hjá Kjartani að sjálfstæð-
ismenn hringluðust eitthvað til í
skoðunum á þessu verkefni eins
og öðrum. En verkefnið var unnið
áfram með ábyrgum hætti í tíð
hundrað daga meirihlutans, af-
rakstur þeirrar vinnu varð að lok-
um að draga REI út úr verkefninu
án frekari fjárhagslegra skuld-
bindinga.
Ábyrgðarleysi?
Kjartan kallar það ábyrgð-
arleysi Samfylkingar að hafa ekki
skipað pólitískan fulltrúa í stjórn-
ina fyrr en nú. Það er skoðun okk-
ar í Samfylkingunni að ekki eigi
að skipa stjórn REI pólitískt,
enda sýnir reynslan að slík stjórn
er nær óstarfhæf.
Mér finnst með ólíkindum að
Kjartan gangi svo langt að kalla
það ábyrgðarleysi Samfylking-
arinnar að í tæpa tvo mánuði hafi
Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR,
setið í stjórn REI í sæti minni-
hlutans. Ég veit ekki hvort Kjart-
an hefur eitthvað undan hans
störfum að kvarta í stjórn REI en
við í minnihlutanum höfum það
ekki. Hins vegar er stefnuleysið
og ruglið á pólitískum vettvangi,
hvað varðar málefni REI, komið á
það stig að pólitískt aðhald minni-
hlutans í stjórn REI er öðrum
sjónarmiðum yfirsterkara. Því hef-
ur minnihlutinn ákveðið að ég taki
nú sæti í stjórn REI til að veita
meirihlutanum slíkt aðhald.
Selja REI
Hin fullyrðingin sem Kjartan
segir ranga, er hin hárrétta full-
yrðing Óskars Bergssonar að
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
borginni hafi lýst þeim skoðunum,
að þeir vilji selja REI. Þetta hefur
ítrekað komið fram undanfarið í
ummælum einstakra borgarfull-
trúa í fjölmiðlum. Einnig hefur
komið fram að fimmtudagskvöldið
17. apríl hafi tillaga um slíkt verið
samþykkt á fundi meirihlutans,
reyndar að Ólafi F. Magnússyni
borgarstjóranum fjarstöddum. En
sama kvöld horfðu landsmenn á
Ólaf heita því í Kastljósviðtali að
REI yrði ekki selt og staðið yrði
við niðurstöðu stýrihóps.
Þetta uppþot í borgarfull-
trúahópi sjálfstæðismanna varð
eftir undirritanir Kjartans á
samningum í Djíbúti. Í því verk-
efni er gert er ráð fyrir að REI
fjármagni allt að 30% af til-
raunaborunum, fjárfestingar REI
geta því numið allt að 450 millj-
ónum króna.
Allir sáttir?
Ef borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins eru í dag horfnir frá
þeirri skoðun sinni að selja eigi
REI og eru orðnir sáttir við að
„REI skuli áfram rekið með það
hlutverk að sinna þróunar og fjár-
festingaverkefnum á erlendri
grundu“ eins og Kjartan boðar í
grein sinni, er uppþotið í borg-
arfulltrúahópnum runnið út í
sandinn og ástæðulaust að karpa
meira um málið. En ef málið er
óútkljáð innan hópsins er það
skammgóður vermir fyrir útrás-
arsinnann Kjartan Magnússon að
gera lítið úr eigin afrekum í útrás-
armálum og afneita sumum alfar-
ið. Kjartan Magnússon ætti frekar
að standa í lappirnar og tala fyrir
þeirri stefnu sem hann hefur fylgt
sem stjórnarformaður REI. Ég
hélt að sjálfstæðismenn hefðu lært
að það kemur mönnum í koll að
halda eðli samninga leyndu fyrir
samstarfsmönnum sínum.
Kjartan í kröppum dansi
Sigrún Elsa Smáradóttir svarar
grein Kjartans Magnússonar »Ef málið er óútkljáð
innan hópsins er það
skammgóður vermir
fyrir útrásarsinnann
Kjartan Magnússon að
gera lítið úr eigin afrek-
um í útrásarmálum og
afneita sumum alfarið.
Sigrún Elsa
Smáradóttir
Höfundur er borgarfulltrúi Samfylk-
ingar.
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
www.alcoa.is
Við ætlum að fjölga fólki
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
L
C
4
21
54
0
4.
20
08
Ef þú hefur áhuga á starfi hjá Fjarðaáli hafðu þá samband
við Sigurlaugu Þorsteinsdóttur eða Tómas Odd Hrafnsson
hjá Capacent, í síma 540 1000 eða á netföngin
sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is /
tomas.hrafnsson@capacent.is eða skráðu umsókn þína
á www.capacent.is og haft verður samband við þig.Kynntu þér kosti þess að búa og starfa
á Austurlandi: www.austurat.is
Framtíðarstörf í framleiðslu
Við ætlum að ráða fleiri starfsmenn á vaktir í framleiðslu. Fjarðaál
framleiðir verðmætar afurðir úr áli og álblöndum, þar á meðal
álvíra í háspennustrengi. Ekki er gerð krafa um ákveðna menntun
eða reynslu umsækjenda. Í fjölbreyttum hópi framleiðslustarfs-
manna eru konur og karlar á öllum aldri. Verkefnin eru margs
konar og mikið er lagt upp úr þjálfun og starfsþróun. Launin eru
góð og Fjarðaál veitir starfsmönnum margvíslega þjónustu, svo
sem heilsuvernd, frítt fæði og akstur til og frá vinnu.
Í fjölbreyttum hópi starfsmanna eru konur og karlar á öllum aldri sem njóta góðra launa, starfsþjálfunar
og ýmissa fríðinda. Núna viljum við bæta í þennan blómlega hóp og ætlum að fjölga starfsmönnum á næstunni.
Kynntu þér traust og spennandi atvinnutækifæri.
Álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði er einn
öflugasti vinnustaður heims á sínu sviði