Morgunblaðið - 26.04.2008, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 33
✝ Emil S. Magn-ússon var fædd-
ur 23. september
1923 að Sjónarhóli í
Vestmannaeyjum.
Hann lést miðviku-
daginn 16. apríl sl.
Foreldrar Emils
voru Jónína Kristín
Sveinsdóttir, f.
27.12. 1899 á Eyr-
arbakka, d. 9.7.
1973 og Magnús
Gunnarsson sjómað-
ur f. 17.3. 1896 í
Vík, d. 10.7. 1987.
Systkini Emils voru: Jóhanna
Sigrún, f. 23.5. 1920, d. 17.4.
1981. Adolf Hafsteinn, f. 12.2.
1922, d. 29.11. 2005. Magnús f.
24.3. 1927, d. 22.4. 2001.
Emil kvæntist Kristínu Helgu
Hjálmarsdóttur á sjómannadag
árið 1948. Kristín var fædd 11.3.
1925 í Vestmannaeyjum, d. 21.8.
1995. Foreldrar hennar voru
Guðbjörg Helgadóttir húsfreyja,
f. 16.10. 1898, d. 23.6. 1958 og
Hjálmar Jónsson rafveitustarfs-
maður, f. 3.6. 1899, d. 25.7. 1987.
Barn þeirra Emils og Kristínar
var Magnús Svavar Emilsson, f. í
Reykjavík 23.8. 1953. Magnús var
lengstum sjómaður og áhuga-
kokkur, lést 25.11. 2006.
Kona Magnúsar var Ingveldur
Lára Karlsdóttir, þau giftust árið
2004.
Börn Magnúsar með fyrstu eig-
inkonu sinni, Höllu Sverrisdóttur,
eru:
Emil Sigurður sjómaður, f. á
Dalvík 19.4. 1973. Eiginkona hans
er Rósa Viggósdóttir, en börn
Rósu og fósturbörn Emils eru:
Eðvarð Leó og Líney Lea Geirs-
börn. Guðný Helga sjúkraliði, f. í
Vestmannaeyjum 10.6. 1975. Eig-
inmaður hennar er
Ólafur Á. Sigvalda-
son, barn þeirra er
Stefán Marteinn
Ólafsson.
Börn Magnúsar
með annarri eig-
inkonu sinni, Krist-
ínu Guðmunds-
dóttur, eru:
Guðmundur Freyr,
f. í Vestmanna-
eyjum 4.1. 1980.
Kærasta hans er
Salome. Barn Guð-
mundar er Kristján
Freyr Guðmundsson.
Þorvaldur, f. í Vestmanna-
eyjum 13.5. 1981, barn Þorvaldar
er Engill Þór Þorvaldsson.
Harpa Særós nemi, fædd í
Vestmannaeyjum 21.5. 1985.
Kærasti hennar er Ólafur Jóns-
son.
Emil bjó allt sitt líf í Vest-
mannaeyjum þar sem hann stund-
aði sjómennsku, m.a. sem vél-
stjóri á Gullborginni með Binna í
Gröf, þeim merka aflamanni.
Hann starfaði einnig sem vélstjóri
á öðrum bátum í Vestmanna-
eyjum uns hann hóf nám í Stýri-
mannaskólanum. Eftir að hann
lauk þar námi hætti hann að
stunda sjóinn og gerðist verk-
stjóri í fiskverkun og síðar verk-
stjóri í afgreiðslu Herjólfs. Eftir
nokkur ár hjá Herjólfi þurfti
hann að hætta störfum sökum
vinnuslyss. Er hann hafði náð
góðum bata hóf hann störf hjá
Vestmannaeyjabæ í Áhaldahús-
inu. Þar starfaði hann á sópara
og á öskubíl uns hann hætti vinnu
sökum aldurs, sjötugur að aldri.
Emil verður jarðsunginn frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum í
dag og hefst athöfnin kl. 14.
Mér þykir sárt að þurfa að
kveðja þig elsku afi minn, og enn
sárara þykir mér að hafa ekki feng-
ið að kveðja þig sómasamlega þar
sem ég var langt úti á hafi að
stunda sjóinn. En ég veit að þú
skilur það að ég komst ekki til þín í
tæka tíð. En gott er að þú þarft
ekki að kveljast lengur og ert kom-
inn til ömmu Stínu og pabba. Guði
má ég þakka fyrir að hafa fengið að
alast upp hjá ykkur ömmu í Hátúni,
þar sem ég var dekraður í þaula og
lífið var í föstum skorðum.
Þig þekkti ég sem pabba minn og
þú ólst mig upp sem ég væri sonur
þinn en ekki barnabarn. Það vil ég
þakka þér, þú áttir stóran þátt í að
gera mig að þeim manni sem ég er í
dag. Ég geymi með mér margar
skemmtilegar og hjartnæmar
minningar um þig elsku afi, minn-
ingar sem ég mun aldrei gleyma.
Ein af þeim er sú minning af þér
sem áhorfanda ÍBV á vellinum, þar
sem þú stóðst án undantekningar á
sama stað á öllum leikjum, þú
misstir ekki af leik nema þú værir
veikur heima, þá hlustaðir þú á lýs-
inguna í útvarpinu á eldhúsborðinu.
Minning þín er ljós í lífi mínu. Ég
veit að þú átt eftir að fylgjast með
mér í gegnum lífið, ásamt ömmu.
Þinn nafni,
Emil Sigurður.Minning mín um
hann langafa er sú að hann var allt-
af brosandi og vildi öllum vel og var
bara indælis maður. Hann var einn
af þessum fáu mönnum sem hægt
er að segja að séu alltaf góðir. Alla-
vega hef ég ekki séð hann í fýlu eða
neitt. Ég hef reyndar einu sinni séð
hann dapran en það var þegar
Magnús Svavar afi minn lést 2006
en ég tel það ekki með þar sem það
er gríðarlega erfitt að missa einka-
barn. Hann afi minn hafði brenn-
andi áhuga á fótbolta og hans uppá-
haldslið var Manchester United.
Ég man um sumarið 2004 þegar við
mamma og pabbi fórum til Eyja að
hitta afa og langafa. Um leið og við
komum þá fengum við alltaf hlýjar
mótökur og var hann yfirleitt með
eitthvað tilbúið þegar við komum.
Fiskur var í uppáhaldi hjá afa man
ég og borðaði hann fiskinn með
bestu lyst. Það var svo alltaf á
kvöldin sem við afi settumst niður
og horfðum á fótbolta. Það var allt-
af alveg sama hvaða leikur var við
horfðum á hann. Ég hafði þó lítinn
áhuga á að horfa á hin liðin sem ég
hélt ekkert með, en afi horfði á alla
leiki sem voru í boði. Í byrjun árs
2007 flutti móðir mín til Eyja til að
annast hann og þá fór ég að koma
þarna oftar og alltaf var stillt á Sýn
eða Skjásport eða bara eitthvað
sem tengdist fótbolta. Um páskana
2007 fékk ég að vera í Eyjum með
afa og mömmu. Afi var þá voðalega
lítið þarna vegna þess að hann
eyddi mestum tíma á spítalanum.
Hann fékk samt alltaf frí um há-
degisbil til u.þ.b. fjögur á daginn til
að koma heim og horfa á fótbolta.
Ég mun líka alltaf minnast þess að
þegar við fórum frá Eyjum stóð afi
út á tröppum og fylgdist með okkur
þangað til Herjólfur var farinn á
bak við klettana. Svo alltaf þegar
heim var komið þá hringdum við í
hann og létum vita. Ég mun sakna
hans gríðarlega og ég vona bara að
hann fái að hvíla í friði.
Stefán Marteinn Ólafsson.
Elsku frændi minn, það fækkar
hratt í frændgarði mínum og er það
víst gangur lífsins en satt að segja
áttaði maður sig ekki á hvað þú
varst orðinn veikur því þú varst
ekki að kvarta, vildir bara lifa leng-
ur, en sem betur fer er stundum
tekið fram fyrir hendurnar á okk-
ur, þú varst orðinn þreyttur og
uppgefinn undir það síðasta, en
alltaf sami gamli Emil með þetta
jákvæða hugafar og alltaf að segja
mér frá að nafni þinn væri á stórum
togara og væri að fiska vel.
Ég verð að segja að ég mun aldr-
ei gleyma dánardeginum þínum og
verð guði ævinlega þakklát að ég
skyldi koma til að kveðja þig og
þegar ég kyssti þig á ennið þá opn-
aðir þú augun og ég sagði: ég kem á
eftir, elsku karlinn. En margt fer
öðruvísi en við ætlum, ég fótbrotn-
aði og þú dáinn, en ég fann kannski
í hjarta mínu eftir á að við myndum
ekki hittast aftur hérna.
Elsku Emil. Þakka þér fyrir allar
heimsóknirnar til hans pabba þeg-
ar hann var á lífi, verð að segja að
þið voruð mjög ólíkir, hann svo dul-
ur en þú þessi gleðigjafi alltaf í
stuði og stundum hugsaði ég að ég
skyldi ekki úr hverju þú værir
gerður, þú sæir alltaf björtu hlið-
arnar.
Að lokum kæri frændi minn ætla
ég að þakka öllu því frábæra fólki
sem hefur annast þig undanfarna
mánuði. Hann Emil var mjög þakk-
látur fyrir alla aðstoðina sem þið
veittuð honum síðustu árin. Að lok-
um elsku frændi minn ætla ég að
senda þér smá erindi sem kemur
mér í hug þegar ég hugsa um þig.
Hún rís úr sumarsænum í silkimjúkum
blænum,
með fjöll í feldi grænum, mín fagra
Heimaey.
Við lífsins fögnuð fundum, á fyrstu
benskustundum,
er sólin hló á sundum og sigldu him-
infley.
(Ási í Bæ.)
Kæri frændi minn, kysstu alla
frá mér sem þú hittir hinum megin
því það voru margir að bíða eftir
þér, gleðigjafinn minn.
Þín frænka,
Kristín Margrét Adolfsdóttir.
Elsku hjartans afi minn.
Þá er kallið komið. Ég var búin
að undirbúa mig en samt var áfall
að þú skyldir virkilega fara.
Það er svo margt sem mig lang-
aði að segja við þig og ég var farin
að hlakka til að sýna þér litla barn-
ið sem á að koma í júlí, ég veit að
þú varst ánægður að heyra að það
væri lítil dama að koma, þú sem
varst svo barngóður og laðaðir að
þér öll börn. Dýrmætasti tími sem
ég hef átt er árið í fyrra þegar ég
dvaldi hjá þér í nokkra mánuði. Þá
kynntist ég þér betur og tók eftir
því að þú ert þrjóskur en á góðan
máta og virkilega góð persóna og
máttir ekkert illt sjá hvort sem það
voru aðrar persónur eða dýr.
Alltaf mun ég eiga minninguna
um það þegar ég kom á sumrin til
þín og ömmu að ég fékk að koma
með þér áður en þú fórst í hádeg-
ismat að losa ruslabílinn, það
fannst mér svo spennandi að fara í
þennan stóra bíl og keyra með þér
upp í fjall, svo þegar ég varð eldri
þá fékk ég að hanga aftan á bílnum
og hjálpa til með hinum köllunum
að taka ruslið og fékk meira að
segja borgað fyrir 100 kr. á dag
sem fór auðvitað í nammi og sund.
Svo þegar ég kom á milli jóla og ný-
árs og var hjá ykkur um áramót
fram á þrettánda, það var ævin-
týralegur tími fyrir barn að fylgj-
ast með þrettándanum í Vest-
mannaeyjum, tími sem ég gleymi
aldrei. Þú varst svo ánægður þegar
ég kom með Stefán með mér til að
leyfa honum að sjá hvernig alvöru
þrettándi var. Þá var hann 5 ára
gamall gutti. Honum fannst svo
rosalega gaman að þegar hann kom
á leikskólann þá sagði hann öllum
krökkunum að hann hefði séð
Grýlu og ætti mynd sem hann
sýndi svo öllum ferlega stoltur. Svo
kom ein setning frá honum um að
það sé töluð íslenska í Vestmanna-
eyjum, en honum þótti ferðalagið
langt.
Það er ekkert sem mig langar
meira að heyra en röddina þína að
segja mér að flytja frá Keflavík til
Vestmannaeyja sem kom upp í ég
held hverju samtali, því þér fannst
Keflavík vera rokrassgat en í Vest-
mannaeyjum væri alltaf Mallorca-
veður, alltaf sól.
Þannig leist þú á lífið, sama hvað
þú fékkst á þig þá var alltaf sól hjá
þér og alltaf gastu séð góðu hlutina
þú einbeittir þér aldrei að því
vonda sem er einn besti eiginleiki
sem þú hafðir. En núna ertu kom-
inn á góðan stað, búinn að samein-
ast ömmu og pabba.
Skilaðu góðri kveðju til þeirra
frá mér elsku afi minn. Ég mun
sakna þín mikið eins og ég hef
saknað ömmu og pabba. Við
sjáumst vonandi aftur, mér þykir
alveg rosalega vænt um þig. Þú
hefur skilið eftir stórt skarð sem
erfitt verður að fylla upp í.
Kveðja frá
Guðnýju, Óla og Stefáni.
Emil S. Magnússon
✝
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju vegna andláts elskulegs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
SIGURÐAR STEFÁNS REYKDAL
MARKÚSSONAR,
Ægisvöllum 10,
Keflavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
D-deildar og heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Guð blessi ykkur öll.
Elín Óla Einarsdóttir og fjölskylda.
✝
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
elskulegrar móður okkar og ömmu,
GUÐBJARGAR MARÍU MAGNÚSDÓTTUR,
Eyrarvegi 8,
Flateyri.
Valgeir Jóhannes Ólafsson,
Gunnar Magnús Ólafsson,
Vigfús Birgir Valgeirsson,
Ásgeir Örn Valgeirsson,
Guðbjörn Már Valgeirsson,
Jóhann Haukur Gunnarsson,
Sandra Halldórsdóttir.
✝
Útför elskulegrar móður okkar,
SIGRÍÐAR G. SCHIÖTH,
fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 28. apríl
kl. 13.30.
Reynir Helgi Schiöth,
Margrét Anna Schiöth,
Valgerður Guðrún Schiöth
og fjölskyldur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
BJARNI HLÍÐKVIST JÓHANNSSON,
Blásölum 24,
Kópavogi,
sem andaðist á Dvalarheimili aldraðra Borgar-
nesi sunnudaginn 20. apríl, verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju mánudaginn 28. apríl kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Auðuns Hlíðkvist
Kristmarssonar hjá Sparisjóði Mýrasýslu Borgarnesi. Reikningsnúmer
1103-18-640081, kennit. 241159-5749.
Guðný Þorgeirsdóttir,
Íris Hlíðkvist Bjarnadóttir, Kristmar Jóhann Ólafsson,
Jóhann Hlíðkvist Bjarnason, Sigríður Vilhjálmsdóttir,
Björgvin Hlíðkvist Bjarnason, Guðbjörg Elín Þrastardóttir,
Skúli Eyjólfur Hlíðkvist Bjarnason,
Guðný Hlíðkvist Bjarnadóttir, Sveinbjörn Ágúst Sigurðsson,
Guðrún Hlíðkvist Bjarnadóttir, Þorgeir M. Reynisson,
Hjördís Hlíðkvist Bjarnadóttir, Ingi Þór Guðmundsson,
afa- og langafabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
konu, móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og
systur,
ELÍNAR RÓSU FINNBOGADÓTTUR,
Rauðagerði 39.
Sérstakar þakkir til heimahlynningar LSH og lækna
er önnuðust hana í veikindum hennar.
Kristján Sigurgeir Guðmundsson,
Finnbogi G. Kristjánsson, Gunnhild Ólafsdóttir,
Guðrún Þ. Kristjánsdóttir, Birgir Óskarsson,
Elín Rósa Finnbogadóttir, Steingrímur Waltersson,
Kristján Guðmundur Birgisson,
Kristbjörg Steingrímsdóttir,
Finnbogi Steingrímsson,
Ólafur Jón Einarsson.