Morgunblaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 35
✝ Ingibjörg Páls-dóttir fæddist á
Syðri-Steinsmýri í
Meðallandi 3 maí
1919. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands aðfara-
nótt 18. apríl síð-
astliðins. Foreldrar
hennar voru Páll
Jónsson, bóndi á
Syðri-Steinsmýri, f.
7. júní 1874, d. 12.
júní 1963 og Ragn-
hildur Ásmunds-
dóttir, f. 1. júlí
1888, d. 23. janúar 1954. Systkini
Ingibjargar eru: Halldór, f. 1912,
d. 2001, Jónína, f. 1913, d. 2004,
Ásmundur, f. 1915, d. 1996, Elín,
f. 1916, d. 1956, Magnús, f. 1921,
d. 2005, Þorsteinn, f. 1926, Sig-
rún, f. 1930, Jóhanna, f. 1932 og
Haraldur, f. 1934. Hálfsystkinin
samfeðra voru Jón Bjarnmund-
ur, f. 1909, d. 2002 og Halldór, f.
1910, d. 1911.
Ingibjörg ólst upp í foreldra-
húsum á Syðri-Steinsmýri ásamt
stórum systkinahópi og hlaut
hefðbundna barnakennslu eins
og þá tíðkaðist. Hún var ráðs-
kona að Hólmi í Landbroti og
þar kynntist hún eiginmanni sín-
um Tryggva Tómassyni frá
Syðri-Neslöndum í Mývatnssveit,
f. 14. apríl 1928, d. 5. nóv. 1999.
Foreldrar hans voru hjónin Guð-
rún Sigtryggsdóttir frá Syðri-
Neslöndum og Tómas Sig-
urtryggvason frá
Litlu-Völlum í
Bárðardal. Ingi-
björg og Tryggvi
giftu sig 6. janúar
1951 og hófu þá um
vorið búskap á
jörðinni Björk í
Grímsnesi. Þar
bjuggu þau óslitið
uns þau fluttu á
Selfoss haustið
1998. Ingibjörg bjó
síðustu árin í íbúð-
um aldraðra að
Grænumörk 5 á
Selfossi. Börn Ingibjargar og
Tryggva eru: 1) Guðrún, f. 18.
des. 1951, maki Hörður Smári
Þorsteinsson. Börn þeirra eru: a)
Ingibjörg, maki Björn Snorra-
son, b) Helga, sambýlismaður
Þórarinn Halldórsson, dóttir
þeirra er Erna, og c) Þóra Stein-
unn. 2) Tómas, f. 11. apríl 1954,
maki Þórdís Pálmadóttir. Börn
þeirra eru a) Heiða Björg, maki
Michele Rebora, börn þeirra Al-
dís Leoní og Elio Mar, b) Dagný,
sambýlismaður Þórður Ármanns-
son, sonur þeirra Tómas Berg,
og c) Sigurveig Mjöll. 3) Páll
Ragnar, f. 12. okt. 1959, maki
Sigríður Björnsdóttir. Börn
þeirra eru: a) Inga Birna, sam-
býlismaður Viðar Arason, b)
Tryggvi, og c) Guðbjörg.
Útför Ingibjargar fer fram frá
Selfosskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.30.
Það var í ágústmánuði árið 1970,
að ég kom fyrst inn á heimili tengda-
foreldra minna, Ingibjargar og
Tryggva, að Björk í Grímsnesi. Það
er stund sem seint gleymist.
Þegar við höfðum heilsast var boð-
ið til stofu. Þar var spjallað um
heima og geima á meðan unglingur-
inn frá Vestmannaeyjum var mæld-
ur og veginn með augunum. Satt að
segja leið mér eins og ég væri geim-
fari af annarri plánetu.
Ingibjörg húsfreyja hafði engin
vettlingatök, snaraði fram blönduð-
um ávöxtum í stórri skál og þeyttur
rjómi fylgdi með. Mér er enn í fersku
minni hvað hún snögg að bera sig að
og ekki síður hversu litskrúðugar
skálarnar voru sem borðað var úr.
Síðan þá hefur mikið vatn runnið
til sjávar.
Ingibjörg var mikill dugnaðar-
forkur sem féll aldrei verk úr hendi
og ekki var úrræðaleysinu fyrir að
fara. Það gilti hana einu hvort einn
eða tíu gestir komu. Hvort sem var
matur eða kaffi, það breytti heldur
engu. Hins vegar voru þeir sem ekki
mættu á réttum tíma í mat eða kaffi,
bæði óalandi og óferjandi.
Ingibjörg ólst upp í stórri fjöl-
skyldu á Syðri-Steinsmýri í Meðal-
landi. Á nærliggjandi bæjum voru
einnig stórir barnahópar, margir
leikfélagar og ýmislegt að sýsla. Á
þeim tíma voru margir munnar sem
þurfti að metta, allir þurftu að hjálp-
ast að til að hafa í sig og á. Vitanlega
hefur æska Ingibjargar mótað lífs-
viðhorf hennar, enda fór hún
snemma að vinna fyrir sér utan
heimilis og sjá sér farborða. Hún var
mikil félagsvera og hafði gaman af að
ferðast um á meðan heilsan leyfði.
Níska og eigingirni voru ekki til í
hennar huga og hafði hún óbeit á því
óréttlæti sem víða tíðkast í samfélag-
inu.
Einkenni Ingibjargar alla tíð var
vinnusemi og dugnaður, aldrei var
setið auðum höndum. Ef ekki voru
húsverkin, þá var gripið í prjóna eða
hannyrðir og svo áttu blómin hug
hennar allan. Nú hin síðari ár voru
allskonar hlutir framleiddir, líkt og
verksmiðja væri starfrækt í Grænu-
mörkinni og svo var gripið í spil þess
á milli. Það var með hreinum ólík-
indum hver afköstin voru.
Ingibjörg tengdamóðir mín er nú
horfin sjónum af leiksviði lífsins.
Hún hefur hafið ferð sína til annarr-
ar tilveru, til fundar við eiginmann
sinn Tryggva, sem lést fyrir níu ár-
um. Ég efast ekki um að með þeim
verði fagnaðarfundur, veikindi og
vanlíðan að baki og nýtt fagurt líf
blasir við.
Ég þakka Ingibjörgu góða sam-
fylgd til margra ára og óska henni
góðrar ferðar og góðrar heimkomu í
ríki ljóssins.
Smári.
Elsku amma, við munum vel eftir
því hvað okkur fannst alltaf gaman
að koma til þín og afa í sveitina þar
sem var svo rólegt og gott að vera.
Alltaf varstu að elda og þvílíkar
kræsingar hafa sjaldan sést. Aldrei
mátti neinn fara svangur út. Og allt-
af var ís á eftir þar sem að frystirinn
var alltaf fullur af ís sem endilega
varð að klára, og ekki fannst okkur
það nú leiðinlegt.
Þú varst svo flink í höndunum og
handverk þín prýða veggi allrar fjöl-
skyldunnar. Þú varst svo fjölhæf og
fljót að tileinka þér nýja tækni í alls
konar föndri. Gróðurhúsið á Björk
og garðurinn bera þess líka merki,
ávallt stórar, bleikar, ilmandi rósir,
vel hirt beð og álfar í hverju horni.
Hvergi mátti sjá feilspor á verkum
þínum, hvort sem það var á klippi-
myndum eða lopapeysum og ullar-
sokkum.
Þegar afi var ennþá frískur man
ég eftir því þegar þið fóruð sunnu-
dagsrúntinn á fína bílnum og komuð
við hjá okkur. Þá, eins og alltaf, var
maður glaður að sjá ykkur og nánast
undantekningarlaust hafðir þú
glaðning handa okkur í veskinu þínu.
Einnig munum við eftir búinu sem
við bjuggum til við lækinn rétt fyrir
neðan Björkina, þú varst alltaf tilbú-
in til að gefa okkur krökkunum ílát
og fleira til þess að nota. Þú varst
alltaf tilbúin til að gera hvað sem er
fyrir okkur og því munum við aldrei
gleyma, þú munt alltaf eiga stað í
hjarta okkar.
Hvíl, þín braut er búin.
Burt með hryggð og tár!
Launað traust og trúin,
talið sérhvert ár.
Fögnum vinafundi.
Friðarsunna skín;
hlý að hinzta blundi
helgast minning þín.
(Magnús Markússon.)
Þótt erfitt það sé fyrir okkur, vit-
um við að þú varst orðin sátt enda
varstu alltaf svo hress og þér líkaði
ekki við það þegar eitthvað hamlaði
gjörðum þínum eins og veikindi þín
höfðu gert undanfarið.
Við söknum þín en vitum að þú ert
á betri stað.
Hvíldu í friði.
Þín barnabörn,
Inga Birna, Tryggvi og
Guðbjörg.
Nú ert þú farin elsku amma mín,
þó veit ég það svo vel að þú lifir alltaf
hjá okkur í minningunni. Hvert ein-
asta skipti sem ég hugsa um þig, þá
brosi ég. Ég á svo margar góðar
minningar frá okkur saman og þær
munu lifa með mér alla mína ævi.
Það var alltaf svo gaman þegar ég
var lítil, kom í heimsókn til ykkar
elsku afa á Björk, þegar við fórum
saman í fjárhúsið, út á tún í leit að
litlum lömbum á gömlu Lödu Sport,
fórum á hestbak og komum svo inn
aftur í þvílíka kaffiveislu til þín.
Ég hef og mun alla tíð þakka fyrir
það hvað við vorum góðar vinkonur,
mér finnst við hafa verið svo nánar.
Við þekktum hvor aðra svo vel og
það var svo gott að koma til þín ein í
heimsókn í Grænumörkina, taka eitt
spil við þig og létt spjall um daginn
og veginn. Þú varst svo góð við allt
og alla og það sem þú gast gert til að
dekra við alla í kringum þig var alveg
ótrúlegt.
Það er sárt að missa þig, en þú
lifðir hamingjusömu lífi og það er
það sem skiptir máli. Ég veit að þú
hefur það gott og ert sátt með afa
núna. Þú átt og munt alltaf eiga þinn
stað í hjarta mínu.
Mig langar að enda þetta á litlu
ljóði sem ég fann og mér finnst vel
við hæfi að kveðja þig með því:
Margur er harmur kveðinn að heimi
huggun er litla að finna.
Minninguna um gæði þín geymi
og gagnsemi okkar kynna.
Nú ertu farin í hinstu för,
ferlegt er því að una.
Blaðskellandi með bros á vör
tel ég þig best að muna.
(Höf: ókunnur.)
Guð geymi þig og varðveiti elsku
besta amma Imba mín.
Kveðja.
Þín
Sigurveig Mjöll (Veiga).
Langri og farsælli ævi Ingibjargar
Pálsdóttur er lokið. Á svona stundu
er margs að minnast og það besta er
að minningarnar eru góðar. Ég er
elsta barnabarn afa og ömmu og hef
notið þeirra forréttinda að vera mik-
ið hjá þeim alla mína tíð. Það er eitt
það besta sem ég hef fengið í lífinu
að njóta samvista þeirra þetta mikið
og þetta lengi. Það var alltaf jafn
gott að vera hjá þeim í sveitinni og
vera úti með afa á daginn og koma
svo inn og borða góða matinn hennar
ömmu.
Ömmu þótti ákaflega vænt um
fjölskyldu sína og var henni alltaf
annt um það sem ég tók mér fyrir
hendur og hún fylgdist vel með því
öllu allt fram á síðasta dag. Hún
spurði reglulega hvernig gengi og
það var sama hvernig gekk hún var
alltaf ánægð með það og ef hún gat
ekki með nokkru móti sagt að það
væri ásættanlegt þá sagði hún bara
að það gengi betur næst.
Duglegri og ósérhlífnari mann-
eskja var varla til og þó amma væri
með eindæmum iðjusöm hafði hún
alltaf tíma fyrir okkur barnabörnin
hvort sem það var að spila, tefla,
segja okkur sögur eða bara gera það
sem við vildum. Ekki þótti henni það
verra ef hún gat snúist eitthvað í
kringum okkur í eldhúsinu og setn-
ingin „amma ég er svöng“ heyrðist
ekki oft því hún mátti ekki til þess
vita að einhver gæti verið svangur á
hennar heimili enda ávallt tilbúin
með kræsingar þegar þannig bar
undir.
Þau voru mörg handverkin sem
hún tók sér fyrir hendur. Sumt þá
aðeins sem skrautmunir hjá henni
sjálfri eða afkomendum hennar en
annað hafði mikið og gott notagildi
eins og t.d. lopapeysurnar. Fallegri
og betri peysur hef ég ekki komist í
og er ég nokkuð viss um að ég er
ekki ein þeirrar skoðunar. Hún hafði
líka alla tíð mikið dálæti á blómum
og garðrækt almennt. Hún kom sér
upp litlu fallegu gróðurhúsi í garð-
inum á Björk þar sem hún ræktaði
rósir í öllum mögulegum litum og úti
í garði voru svo allskyns jurtir sem
hægt var að setja með í vönd. Þeir
voru því margir vendirnir sem voru
búnir til úr ræktun hennar.
Ég fann fyrir því í haust að nú
væri sennilega farið að styttast í
samfylgd okkar. Hvernig hún var
farin að tala sagði mér það að þetta
styttist, hún hefur greinilega vitað
það og fundið. Það er auðvitað alltaf
sorg og söknuður þegar dauðinn ber
að dyrum. Það á líka við núna en við
megum ekki gleyma því að amma
var orðin gömul kona og búin að gera
sitt. Okkur ber því að vera þakklát
og ánægð með að hafa fengið að vera
henni samferða í lífinu. Hún sjálf er
hvíldinni feginn. Það sem hressir
mig við í sorginni er að nú eru hún og
afi saman á ný og ef ég þekki þau
rétt hljómar hlátur og gleði um allt
og ekki ósennilegt að búið sé að
grípa í nokkur spil.
Við hin sem eftir stöndum finnum
auðvitað til tómleika og erum fátæk-
ari eftir. Skarð hefur myndast sem
aldrei verður fyllt en minning henn-
ar á eftir að lifa í hjörtum okkar um
ókomna tíð. Það verður skrýtið að
koma ekki við hjá henni og að fá
hana ekki til sín í sveitina. En eins og
hún sagði svo oft sjálf: „Svona er líf-
ið.“
Ingibjörg Harðardóttir.
Það er skrítið að hugsa til þess,
elsku amma, að á næstu ferð okkar
yfir heiðina getum við ekki komið við
hjá þér. Það var alltaf svo gott að
koma til þín og hún Aldís okkar var
alltaf sérstaklega spennt, því þegar
hún kom til langömmu var þar alltaf
eitthvað nýtt að skoða. Langamma
var svo tekin hershöndum inn í her-
bergi, hurðinni lokað og þegar við
kíktum inn sátu þær, unglömbin, á
gólfinu að lita eða púsla. Langamma
gaf sér alltaf tíma til að leika og svo
lumaði hún ansi oft á heitum pönns-
um sem var nú ekki til að spilla fyrir.
Þú dásamaðir líka Elio í hvert sinn
er þú sást hann og nú veit ég að
börnin mín eiga sinn verndarengil
sem vakir yfir þeim.
Minningar mínar úr sveitinni eru
líka óteljandi en skemmtilegasti tím-
inn var auðvitað sauðburðurinn því
þá gisti ég oft í nokkrar nætur og var
þá dekrað við mann í bak og fyrir.
Jólasveinarnir í sveitinni voru líka
alltaf einstaklega rausnarlegir...
Ég varð þeirrar gæfu njótandi að
eiga ykkur, amma og afi, þið kennd-
uð mér svo margt. Það sem yljar mér
um hjartarætur á þessum erfiðu tím-
um er að vita til þess að þið séuð
saman á ný.
Þið voruð einstök blóm í mínum
garði.
Ég kynntist ömmu er hún var orð-
in gömul, að aldri þ.e.a.s,. því að ef
áhugasemi og léttleiki eru merki um
ungdóm þá held ég að amma hafi
aldrei orðið gömul. Hún hefur alltaf
tekið mér, útlendingnum í fjölskyld-
unni, opnum örmum og sýnt landinu
mínu og fólkinu mínu mikinn áhuga.
Enda var amma líka orðin amma
allra þeirra Ítala sem henni kynntust
og fengu að njóta hennar og hennar
listrænu gjafa. Ekki má nú gleyma
hversu fljót hún var að svara játandi
þegar við buðum henni svo með okk-
ur til Ítalíu, fyrir aðeins þremur ár-
um, hún þá orðin 86 ára gömul. Sú
ferð var ógleymanlegt ævintýri fyrir
okkur öll.
Svona mun ég ávallt muna eftir
ömmu, glaðlegri og tilbúinni fyrir
næstu ferð, með sína litlu grænu
tösku. Góða ferð, elsku amma.
Heiða, Titti, Aldís Leoní og
Elio Mar.
Elsku amma mín, ég vildi oft að ég
gæti hoppað aftur í tímann og upp-
lifað aftur allar stundirnar sem ég
átti með þér.
Það var alltaf svo spennandi að
koma til ykkar afa á Björk, margt að
gera og skoða. Sauðburðurinn, hey-
skapurinn og fleira lifir sterkt í
minningunni. Laufabrauðið og klein-
urnar þínar sem voru þær allra
bestu, hlaðborðið sem beið í hverri
máltíð, fallegi garðurinn, rósirnar í
gróðurhúsinu og svo mætti lengi
telja.
Þið afi skemmtuð okkur barna-
börnunum eins og ykkur einum var
lagið og dekruðu okkur í alla staði.
Nú í seinni tíð höfðum við svo
gaman af því að heimsækja þig á Sel-
foss og nýttum hvert tækifæri sem
gafst til þess. Tómas Berg beið
spenntur eftir að hitta „ömmu lang-
ömmu“ eins og hann kallaði þig nú
alltaf. Hann hafði svo gaman af því
að skoða fuglana þína í garðinum,
allt fallega dótið og föndrið þitt.
Ekkert var svo dýrmætt eða brot-
hætt að hann mætti ekki leika sér
með það. Það var gaman að sjá
prakkarahlið þína koma í ljós þegar
þið lékuð ykkur saman og oft á tíðum
hefði mátt halda að þið væruð jafn-
aldrar. Maður fékk svo helst ekki að
fara heim án þess að vera búin að
tæma eina eða helst tvær ísdollur úr
frystinum og þú varst alltaf jafn
ánægð með hvað Doddi minn stóð sig
vel í þeim efnum.
Það yljar mér að sjá allt fallega
föndrið sem þú gafst okkur í kring-
um okkur hérna heima, þú varst al-
veg einstök í þeim efnum eins og svo
mörgu öðru.
Minningin um þig lifir hér, elsku
amma, á meðan þú sameinast nú afa
og fleirum, sem voru þér kærir, á ný.
Saknaðarkveðja,
Dagný.
Í dag kveðju við Imbu frænku.
Hún var okkur systrum mjög góð og
hringdi oft til okkur og gaf okkur
marga mjög fallega hluti sem við
munum alltaf geyma til minningar
um góða frænku. Hún heimsótti okk-
ur oft og við heimsóttum hana á Sel-
foss. Okkur langar til að kveðja hana
með þessum versum:
Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Presthólum.)
Láttu nú ljósið þitt
lýsa upp rúmið mitt,
hafðu þar sess og sæti
signaður Jesús mæti.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku Gunna, Tommi, Palli og fjöl-
skyldur
Guð styrki ykkur öll.
Ykkar,
Alda og Bára.
Mig langar að minnast systur
minnar með örfáum orðum. Það
koma margar minningar upp í hug-
ann. Imba var afskaplega jákvæð og
skemmtileg og gaman að hafa hana
með sér. Þær eru orðnar býsna
margar ferðirnar sem við Tommi
höfum farið með henni, utanlands
sem innan. Ég minnist þess hvað hún
naut sín vel á sólarströnd, þar busl-
aði hún í sjónum á vindsæng eins og
ung manneskja þótt fullorðin væri.
Hún var afskaplega vinamörg, þegar
við fórum í okkar heimasveit þurft-
um við oft að keyra hana á marga
bæi í heimsókn, því alls staðar var
Imba aufúsugestur.
Kæra systir, ég og fjölskylda mín
þökkum öll árin sem við áttum sam-
an, ekki síst árin sem þið Tryggvi
bjugguð á Björk. Börnum þínum og
fjölskyldum þeirra sendum við okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Hafðu þökk fyrir allt.
Sigrún.
Ingibjörg Pálsdóttir andaðist þeg-
ar vinir hennar byrjuðu að skjóta
upp kollinum. Blómin voru vinir
hennar, rétt eins og allir aðrir sem
kynntust henni í leik og starfi. Því
kveðjum við Ingibjörgu með miklum
söknuði og finnst stórt skarð höggvið
í okkar samfélag hér í Mörkinni. Vin-
um hennar og afkomendum öllum
sendum við hugheilar samúðar-
kveðjur. Blessuð sé minning þessar-
ar mætu konu.
Nú er sál þín rós
í rósagarði Guðs
kysst af englum
döggvuð af bænum
þeirra sem þú elskaðir.
Aldrei framar mun þessi rós,
blikna að hausti.
(Ragnhildur Ófeigsdóttir.)
Spilafélagar í Mörkinni
á Selfossi.
Ingibjörg Pálsdóttir
Fleiri minningargreinar um Ingi-
björgu Pálsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.