Morgunblaðið - 26.04.2008, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 37
✝ Jónas Að-alsteinsson
fæddist í Hvammi í
Þistilfirði 2. mars
1920. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga á Húsa-
vík 19. apríl síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Aðalsteinn Jón-
asson, f. 21.6. 1875,
d. 4.5. 1958, og Jó-
hanna Sigfúsdóttir,
f. 20.5. 1881, d.
22.6. 1925. Systkini
Jónasar eru í aldursröð: Har-
aldur Aðalberg, f. 20.1. 1900,
Sigríður, f. 22.10. 1900, Sigfús f.
6.3. 1902, Vigfús f. 30.7. 1903,
Sigrún, f. 6.3. 1906, Björn Jó-
hann, f. 28.7. 1908, Bergþór, f.
12.8. 1912, Lilja, f. 12.6. 1915,
Hólmfríður Jónína, f. 15.7. 1916,
drengur, f. 1921. Þau eru öll lát-
in.
Hinn 28. desember 1941
kvæntist Jónas Önnu Guðrúnu
Jóhannesdóttur frá Gunn-
arsstöðum í Þistilfirði, f. 2.6.
1920, d. 21.5. 1995. Foreldrar
hennar voru Jóhannes Árnason,
bóndi, f. 18.6. 1890, d. 25.2. 1971
og Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir, f.
24.3. 1892, d. 10.4. 1939. Börn
Jónasar og Önnu Guðrúnar eru:
1)Aðalbjörg, f. 24.10. 1941, d.
16.11. 1990. Maki 1. Jón Höjga-
ard Marinósson, f. 27.9. 1934, d.
18.1. 1981. Börn þeirra eru:
Anna Guðrún, f. 19.7. 1959, Haf-
liði, f. 23.9. 1960, Marinó, f. 6.11.
1961. Maki 2. Sigtryggur Sig-
urjónsson, f. 28.2. 1943, d. 6.12.
1993. 2) Aðalsteinn, f. 2.8. 1946,
d. 21.9. 1984. Maki Sólveig Þórð-
ardóttir, f. 28.9. 1950. Börn
þeirra eru: Jónas, f. 7.1. 1968,
Þórður f. 29.3. 1969, Skarphéð-
inn, f. 8.12. 1976, og Hólmfríður
Anna f. 27.4. 1983. 3) Arnþrúður
Margrét, f. 27.1. 1948. Maki 1.
Sævar Guðmundur Kristjánsson,
f. 2.3. 1946, d. 12.6. 1983. Börn
þeirra eru: Kristjana Sólveig, f.
17.1. 1965, Jónas Aðalsteinn, f.
19.08. 1967, og Sylvía Kristín, f.
10.12. 1981. Maki 2. Sigurvin
Hannibalsson, f. 17.2. 1937. 4)
Eðvarð, f. 15.5. 1953. Maki Krist-
jana Benediktsdóttir, f. 29.9.
1951. Synir þeirra eru: Jóhann
Benedikt, f. 22.11. 1976, Eðvarð,
f. 24.2. 1981, og
Sævar, f. 28.4.
1983. 5) Jóhannes,
f. 23.1. 1955. Maki
Svanhvít Kristjáns-
dóttir, f. 18.9. 1957.
Dætur þeirra eru:
Anna Guðrún, f.
16.11. 1979, Ólína
Ingibjörg, f. 22.12.
1980, Sveinbjörg
Eva, f. 25.7. 1985,
og Aðalbjörg Stein-
unn, f. 11.5. 1990.
6) Sigrún Lilja, f.
28.2. 1959. Maki
Rúnar Guðmundsson, f. 17.7.
1951. Börn þeirra eru: Svanhvít
Helga, f. 16.5. 1982, Rebekka
Hlín, f. 31.10. 1991, og Jónas
Þór, f. 24.11. 1996. Barna-
barnabörn Jónasar eru 27 og
barnabarnabarnabörnin eru 4.
Jónas ólst upp í Hvammi og
var uppeldið aðallega í höndum
föður þar sem hann missti móður
sína ungur að árum. Hann var
ætíð umvafinn stórum hópi systk-
ina og frændsystkina. Hann fór
snemma að stunda ýmsa vinnu,
bæði heima í Hvammi og við önn-
ur störf sem til féllu. Á fyrstu
sambúðarárum þeirra Önnu Guð-
rúnar bjuggu þau á Gunn-
arsstöðum þar sem Anna Guðrún
aðstoðaði föður sinn við heim-
ilishald. Á þessum árum stundaði
Jónas sjómennsku. Árið 1945
byggðu þau sér nýbýlið Brú-
arland í landi Gunnarsstaða og
hófu þar búskap. Jónas vann allt-
af eitthvað með búskapnum. T.d.
vann hann á sláturhúsinu í meira
en fimmtíu ár og lengi í vega-
gerð. Hann vann líka mikið við
smíðar og að mála. Á heimilinu
var ætíð margt um manninn.
Mörg börn í sveit yfir sumarið og
sum allt fram á unglingsár. Jón-
as var mikil félagsvera og hafði
gaman af að spila og spjalla við
félagana. Við eldhúsborðið á
Brúarlandi var því oft margt um
manninn og hlegið dátt. Það kom
aldrei annað til greina en að
gestum væru bornar veitingar og
síðustu árin bakaði Jónas vöfflur
og pönnukökur í mannskapinn.
Anna Guðrún og Jónas bjuggu
bæði á Brúarlandi til æviloka.
Jónas verður jarðsunginn frá
Svalbarðskirkju í Þistilfirði í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
Á svona stundu vill hugurinn
reika fram og til baka. Við systk-
inin vorum svo lánsöm að fá að
alast upp á Brúarlandi. Hér
byggðu foreldrar okkar sé nýbýli.
Á Gunnarsstöðum bjó Jóhannes afi
og hinum megin bjó Aðalsteinn afi
í Hvammi. Húsið okkar stendur á
brekkubrún og er víðsýnt út um
gluggana. Sést vel til næstu bæja
og yfir Hafralónsána. Þjóðleiðin
yfir ána er rétt fyrir neðan húsið
og þaðan er nafnið á býlinu komið.
Pabbi og mamma voru þetta dug-
lega alþýðufólk sem kom sér og
sínum áfram á eigin dugnaði. Ekki
var nú lífið alltaf dans á rósum.
Þau urðu fyrir miklu áfalli þegar
Steini bróðir okkar slasaðist á
öðru ári. Ekki reyndist unnt að
bjarga lífi hans nema með því að
senda hann til Bandaríkjanna.
Þetta er árið 1948 og á þeim tíma
hefur þetta verið mikið mál. En
Steini kom heill til landsins eftir
meira en árs fjarveru altalandi á
ensku.
Mikill gestagangur hefur alltaf
einkennt heimilið. Voru þau for-
eldrar okkar mjög samtaka um að
taka vel á móti fólki og voru allir
jafn velkomnir.
Eftir að mamma okkar lést árið
1995 hefur pabbi búið einn í hús-
inu. Þetta var ríkið hans. Hingað
komu fjölskyldumeðlimir mikið og
dvöldu hjá honum í gegnum árin.
Nágrannar á næstu bæjum komu
líka oft til hans í kaffi. Þetta stytti
honum stundir og viljum við þakka
þessum góðu félögum fyrir. Einnig
viljum við þakka heilbrigðisstarfs-
fólki fyrir frábæra umönnun og
henni Þóreyju fyrir alla hjálpina
og vinsemdina. Allt þetta indæla
fólk gerði pabba okkar kleift að
vera heima til æviloka.
Við þökkum fyrir að hafa átt
þennan yndislega pabba. Hans
verður sárt saknað þó svo að við
vitum að margir taka vel á móti
honum hinum megin.
Arnþrúður Margrét, Eðvarð, Jó-
hannes og Sigrún Lilja.
Þeim fækkar óðum sem muna
fyrstu áratugina eftir 1920.
Á þessum árum urðu gífurlegar
breytingar á þjóðfélagsháttum
sem náðu langt fram yfir seinna
stríð. T.d. úr torfbæjum í steinhús
sem var einn anginn af þessari
byltingu. Einn þessara manna sem
mundu þessa tíma var Jónas Að-
alsteinsson frá Brúarlandi sem
lést síðastliðinn laugardag 88 ára
að aldri. Einn af stólpum sinnar
sveitar sem byggði upp frá grunni
sína jörð ásamt konu sinni Önnu
Guðrúnu Jóhannesdóttur en hún
lést 1995. Þar með er lokið kafla í
sögu Þistilfjarðar en aðrir taka
við. Jónas var vinmargur, traustur
eljumaður sem hafði sínar fastmót-
uðu skoðanir af gamla skólanum
um þjóðfélagsmál, sem ekki varð
svo auðveldlega haggað. Það er
styrkur slíkra manna. Jónas var
fastur punktur í tilveru þeirra
ótalmörgu er gistu Brúarland.
Gæskufullur og einstaklega barn-
góður með sérstaka og skemmti-
lega kímnigáfu. Jónas var þrek-
vaxinn, meðalmaður á hæð og
hefur trúlega verið heljarmenni að
burðum á sínum yngri árum, enda
þörf á við mikla vinnu við búrekst-
ur og utan hans. Féllu honum
sjaldan verk úr hendi enda bú-
skapur allur með besta brag.
Brúarlandsheimilið einstaklega
snyrtilegt að utan sem innan, þar
sem bæjarhús blasa við af þjóð-
veginum. Vonandi verður svo
áfram þó svo búskaparhættir
breytist. Þistilfjörðurinn var Jón-
asi allt, hann fór sjaldan af bæ til
lengri ferða en því traustari heima
fyrir. En nú er hann farinn í ferð-
ina löngu sáttur við sitt lífsstarf.
Hann kvaddi með reisn eins og
hans var von og vísa.
Rúnar Guðmundsson.
Til afa
Leikur í laufi runna og trjáa,
lækur hríslast yfir sand,
heyrst það hefur til allra sjáva
hve fagurt er við Brúarland.
Grætur lyng við gömlu brú,
gamalt sæti bíður autt,
særinn sýnist hryggur nú,
sólarlagið fagurrautt.
Þá býrðu loks við eilíft vor,
við vitum það með sönnu,
endurheimtir styrk og þor
og hittir hana ömmu.
Að kveðja þig er sárum bundið,
hver ættingi það sér,
gangi þér vel á ferð um sundið,
við aldrei munum gleyma þér.
Rebekka Hlín Rúnarsdóttir.
Elsku Jónas afi.
Við eigum eftir að sakna þín og
heimsóknanna til þín í sveitina.
Núna sefur þú í rúminu þínu.
Þegar æviröðull rennur,
rökkvar fyrir sjónum þér,
hræðstu eigi, hel er fortjald,
hinum megin birtan er.
Höndin, sem þig hingað leiddi,
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar, – Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(Sigurður Kristófer Pétursson.)
Svanhvít Helga og Jónas Þór.
Það er sárt til þess að hugsa að
afi á Brúarlandi sé ekki enn til
staðar. Þín verður sárt saknað. Við
fráfall þitt komu upp í huga okkar
systkinanna margar góðar minn-
ingar frá veru okkar hjá þér og
ömmu í sveitinni. Öll jólin sem við
áttum saman frá því við vorum
börn til unglingsára, og sumar-
dvölin hjá ykkur er tími sem við
hefðum ekki viljað missa af. Alltaf
var gaman að vera hjá þér afi, þú
varst glettinn og sást svo oft
spaugilegu hliðarnar á hlutunum.
Einhvern veginn hafðirðu alltaf
tíma fyrir okkur þó næg væru
störfin við búskapinn. Þakklæti er
okkur efst í huga fyrir þann tíma
og alla þá hlýju sem þú gafst okk-
ur, þú varst okkur góður afi.
Minning þín lifir.
Kristjana, Jónas og Sylvía.
Elsku Jónas afi okkar er fallinn
frá. Á þessari stundu fyllast hjörtu
okkar söknuði og sorg en einnig
koma margar ljúfar og skemmti-
legar minningar fram í hugann.
Við systurnar nutum þeirra for-
réttinda að alast upp í næsta húsi
við afa og ömmu og áttum þar
okkar annað heimili. Það var okk-
ur ómetanlegt að geta hlaupið nið-
ureftir til þeirra á hverjum degi og
alltaf tóku þau jafn vel á móti okk-
ur. Við erum þakklátar fyrir það.
Það var alltaf gott og gaman að
vera hjá afa og ömmu.
Elsku afi, takk fyrir:
Að vera svona stór hluti af lífi
okkar.
Að hafa sýnt okkur innilegan
kærleika, umhyggju og þolinmæði.
Að hafa alltaf verið til staðar
fyrir okkur þegar við þurftum á
þér að halda.
Að leyfa okkur að taka þátt í öll-
um sveitastörfunum þó að „hjálp-
in“ hafi kannski ekki alltaf verið
mikil þegar við vorum yngri.
Að segja okkur allar sögurnar,
ævintýrin og frá barnæsku þinni.
Öll spilakvöldin með ykkur
ömmu.
Öll yndislegu jólin sem við héld-
um með ykkur og fyrir að leyfa
okkur að skreyta gamla fallega
jólatréð á hverju ári.
Öll vorin sem við nánast bjugg-
um hjá ykkur yfir sauðburðinn.
Að vera besti afi í heimi
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Við þökkum þér, elsku afi okkar,
fyrir allar stundirnar sem við átt-
um saman og munum við syst-
urnar búa að þessum yndislegu
minningum um þig alla tíð.
Anna og Lína.
Jónas Aðalsteinsson-7
Í gegnum móðu og mistur
ég mikil undur sé.
Ég sé þig koma, Kristur,
með krossins þunga tré.
Af enni daggir drjúpa,
og dýrð úr augum skín.
Á klettinn vil ég krjúpa
og kyssa sporin þín.
(D. Stefánsson.)
Það er með þessum orðum
skáldsins sem við viljum kveðja
afa okkar. Afi var í minningunni
einstakt ljúfmenni sem aldrei
skipti skapi, allavega fengum við
aldrei að upplifa nein svoleiðis
tímabil hjá honum. Fyrir okkur
var hann alltaf sami öðlingurinn
sem undi sér best sitjandi á eld-
hússtólnum. Engu að síður eigum
við mjög skemmtilegar minningar
um hann vinnandi sín verk og þá
var okkur vissulega leyft að taka
þátt í amstri dagsins. Afi keyrði
okkur um á vagni hangandi aftan í
dráttarvél og vinna eins og hey-
skapur og girðingarvinna voru
hlutir daglegs lífs í sveitinni þar
sem við af veikum mætti reyndum
að aðstoða í þeirri barnslegu trú
að við værum að gera gagn. Þegar
afi er burt kallaður verða þessar
minningar ómetanlegar og líka
rifjast upp skemmtileg atvik eins
og að sjá gamla manninn klæddan
í úlpu og lopapeysu um hásumar í
steikjandi hita og þrátt fyrir mót-
mæli ömmu lét hann sig ekki með
það, í lopapeysunni skyldi hann
vera hvað sem tautaði og raulaði.
Minningarnar fá Brúarlandi eru
óteljandi, hvort heldur sem hugsað
er um fuglasönginn sem vakti fólk
á morgnana á blíðviðrisdögum eða
amstrið í kringum sauðburðinn.
Eitt verður þó alltaf víst að Brú-
arland verður í minningunni ein af
okkar paradísum þar sem við feng-
um að njóta alls hins besta sem líf-
ið hefur upp á að bjóða. Samvistin
við afa og ömmu er eitt það dýr-
mætasta hlutskipti sem okkur hef-
ur auðnast í lífinu og fyrir það
verður aldrei fullþakkað. Það er
með söknuði sem við kveðjum nú
afa okkar sem gaf okkur svo mikið
og krafðist aldrei neins. Afi var 20.
aldar maður og ein af hetjum
þessa lands þó hljótt færi því hann
var með eindæmum hógvær maður
og miklaðist ekki af verkum sín-
um. Nú hefur hann lokið verki
sínu hérna megin lífsins og hefur
tekið við öðru hlutverki á öðrum
stað og það má hver vita að þeim
verkum mun hann skila með sóma
ekki síður en hann gerði á meðan
hann bjó á meðal okkar. Með þess-
um fátæklegu orðum viljum við
kveðja afa en sú gleði og hamingja
sem hann ásamt ömmu færði inn í
líf okkar verður aldrei mælt á
neinum kvarða og það sem eftir
stendur nú þegar hann er horfinn
á braut er fyrst og fremst þakk-
læti. Afi gerði ekki kröfur til okk-
ar, það var ekki hans stíll, hann
bara gaf. Guð blessi minningu afa
á Brúarlandi.
Benedikt, Eðvarð og Sævar.
Afi Jónas var hraustasti maður
sem ég hef nokkurn tíma kynnst.
Þegar ég heyrði fyrst sagt frá því
hvernig hann hefði mokað fyrir
húsunum í sveitinni með handafli
fannst mér hann eins og hetjurnar
í Íslendingasögunum enda var
hann hetja.
Ein af elstu minningum mínum
um afa er þegar hann sat með mig
í dráttarvél og söng Blessuð sértu
sveitin mín en það er eina lagið
sem ég man eftir að hafa heyrt
hann syngja. Þetta lag hefur alltaf
verið mér kært út af þessari minn-
ingu en einnig vegna þess að pabbi
heitinn söng það víst gjarnan líka.
Það var aldrei langt í glettnina
hjá afa og rifjum við Deddi bróðir
oft upp þegar við afi sátum einu
sinni sem oftar við græna borðið í
Brúarlandi ásamt Dedda og Línu
frænku og spiluðum vist. Afi sá um
að telja saman stigin og ákvað að
kenna okkur hinum hvernig ætti
nú að gera þetta. Eitthvað fannst
honum við menntafólkið skilnings-
sljótt þannig að hann hló og spurði
hvort við vildum ekki bara ganga
aðeins lengur í skóla. Þetta lýsir
ágætlega húmornum sem hann
hafði.
Fjölskyldan skipti afa öllu máli
og í stað þess að fá frá okkur af-
mælis- eða jólagjafir bað hann
okkur frekar um að koma öll sam-
an á hverju ári og tjalda á túninu
hjá sér. Þetta höfum við reynt að
gera og gerum vonandi áfram því
það hefði hann helst viljað.
Ég er þakklát fyrir þann tíma
sem við afi áttum saman og finnst
erfitt að horfa á eftir honum en ég
veit að hann fór sáttur frá okkur
og það var vel tekið á móti honum
hinum megin.
Hvíldu í friði, elsku afi minn.
Þín sonardóttir,
Hólmfríður Anna
Aðalsteinsdóttir.
Jónas Aðalsteinsson
Stundin líður, tíminn tekur,
toll af öllu hér,
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig,
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
Þú varst ljós á villuvegi,
viti á minni leið,
þú varst skin á dökkum degi,
dagleið þín var greið.
Þú barst tryggð í traustri hendi,
tárin straukst af kinn.
Þér ég mínar þakkir sendi,
þú varst afi minn.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Elsku afi, við söknum þín.
Hvíl í friði.
Arnar, Sævar, Gunnar,
Hrannar, Ólafur og Almar.
HINSTA KVEÐJA
Fleiri minningargreinar um Jónas
Aðalsteinsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Minningargreinar
Alvöru blómabúð
Allar skreytingar unnar af fagfólki
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499
Heimasíða: www.blomabud.is
Netfang: blomabud@blomabud.is