Morgunblaðið - 26.04.2008, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 41
Atvinnuauglýsingar
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Fundarboð
Húsdeildarfundur með íbúðareigendum í
I og II flokki Húsfélags alþýðu,
Ásvallagötu 49-65, Bræðraborgarstíg 47,49,53
og55, Hringbraut 74-90 og Hofsvallagötu 16-22,
verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl nk.,
kl. 19:00, í Þingholti, Hótel Holts,
Bergstaðastræti 37
Dagskrá:
Tillögur um viðhaldssjóð, viðhald og
endurnýjun glugga og viðhald lóðar
Önnur mál.
Stjórn Húsfélags alþýðu
Húsnæði í boði
Einbýlishús til leigu
Til leigu stórt einbýlishús í Laugaráshverfi,
Reykjavík, með útsýni yfir Laugardalinn.
Frekari upplýsingar í síma 861 2535.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Miðbraut
11, Búðardal, föstudaginn 2. maí 2008, kl. 13:00, á eftir-
farandi eignum:
Kaldakinn, Dalabyggð, landnr. 137532, þingl. eigandi Hjörtur Egill Sig-
urðsson, gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
Skarðsá, Dalabyggð, landnr. 137837, þingl. eigandi Edda Unnsteins-
dóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Tryggingamiðstöðin hf. og
Dalabyggð.
Sýslumaðurinn í Búðardal,
24. apríl 2008,
Áslaug Þórarinsdóttir.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtalinni fasteign verður háð á
henni sjálfri sem hér segir:
Ásar, Dalabyggð, landnúmer 137891, þingl. eig. Magnús Jóhann Cor-
nette, eftir kröfu Landsbanka Íslands, föstudaginn 2. maí 2008, kl.
14:00.
Sýslumaðurinn í Búðardal,
24. apríl 2008,
Áslaug Þórarinsdóttir.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrif-
stofu embættisins að Bæjarhrauni 18, Hafnarfirði, sem
hér segir:
M.b. Guðrún Björg Hf-125, skskr.nr. 0076, Hafnarfirði, þingl. eig.
Selvogur ehf., gerðarbeiðandi Hafnarfjarðarhöfn, miðvikudaginn
30. apríl 2008 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði,
22. apríl 2008.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Hafnarbraut 7, verslun, Dalvíkurbyggð (222-4994), þingl. eig. Síma og
tölvuþjón. Rafhóll ehf., gerðarbeiðendur Stafir lífeyrissjóður og
Sýslumaðurinn á Akureyri, miðvikudaginn 30. apríl 2008 kl. 13:30.
Hólavegur 9, íb. 01-0201, Dalvíkurbyggð (215-4947), þingl. eig. Stefán
Agnarsson, gerðarbeiðandi Dalvíkurbyggð, miðvikudaginn 30. apríl
2008 kl. 14:00.
Höskuldsstaðir, sumarbústaður, Eyjafjarðarsveit (215-9005), þingl.
eig. Elva Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn
hf., miðvikudaginn 30. apríl 2008 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
25. apríl 2008.
Eyþór Þorbergsson, ftr.
Tilboð/Útboð
Tilkynningar
Tónlistarskóli FÍH
auglýsir eftir umsóknum
um skólavist fyrir skólaárið
2008-2009
Innritun nýnema fyrir næsta skólaár 2008-2009
stendur yfir hjá Tónlistarskóla FÍH til 1. maí nk.
Sótt er um skólavist á heimasíðu skólans
www.fih.is/tonlistarskóli og á rafraen.reykja-
vik.is
Allir nýnemar þreyta inntökupróf í skólann.
Umsækjendur fá bréf um miðjan maí með tíma
fyrir inntökupróf en þau fara fram dagana 19.-
21. maí.
Tónlistarskóli FÍH er framsækinn skóli með vel
menntaða úrvalskennara sem eru virkir
þátttakendur í íslensku tónlistarlífi. Skólinn
býður nemendum sínum gott námsumhverfi
og fjölbreytt námsframboð. Um leið eru gerðar
kröfur til nemenda hvað varðar ástundun og
námsframvindu.
Ef þú vilt verða góður tónlistarmaður er
Tónlistarskóli FÍH rétti skólinn fyrir þig.
Lifandi tónlist – Lifandi fólk
Félagslíf
27.4. Prestastígur á
Þingvöllum
Brottför kl. 09:30 frá BSÍ
Vegalengd 12-14 km. Hækkun
200 m. Göngutími 5 klst.
V. 4200/4800 kr.
1. - 4.5. Öræfajökull
Brottför kl. 08:30. 0805HF01
Gengið á Öræfajökul og hæsti
tindur landsins sigraður ef veður
og aðstæður leyfa.
Fararstjóri: Reynir Þór Sigurðs-
son. V. 15400/17800 kr.
1. - 4.5. Vatnajökull - jeppa-
ferð. Brottför: kl. 9:00. Þátttaka
háð samþykki fararstjóra.
Verð 9900/11200 kr.
9. - 12.5. Básagleði -
Hvítasunnuhelgina - 0805HF03
Um hvítasunnuhelgina verður líf
og fjör í Básum eins og endra
nær. Gestir koma sér á eigin
vegum á svæðið. Nauðsynlegt
getur verið að panta gistingu á
skrifstofu Útivistar.
9. - 12.5. Vestmannaeyjar um
hvítasunnu. Fararstjórar verða
Bergþóra Bergsdóttir og Reynir
Þór Sigurðsson.
Sjá nánar www.utivist.is
Atvinna óskast
Á að færa út
kvíarnar?
S-Afríka
Hjón með háskólamenntun og viðskiptareynslu
eru að flytja til Suður-Afríku. Vantar fyrirtæki þitt
áreiðanlegt fólk sem getur verið fulltrúi þess,
komið því í samband við önnur fyrirtæki eða
aðstoðað á annan hátt í sunnanverðri Afríku?
Vinsamlegast hafið samband.
Stefanía 695 2890, Ryan 692 6229.
Atvinnuauglýsingar • augl@mbl.is
FRÉTTIR
Síðasta Tómasarmessan
að sinni í Breiðholti
ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar
Tómasarmessur efnir til síðustu
messunnar á þessu vori í Breið-
holtskirkju í Mjódd sunnudags-
kvöldið 27. apríl kl. 20.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að Tómasarmessan hefur unnið sér
fastan sess í kirkjulífi borgarinnar,
en slík messa hefur verið haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta
sunnudag í mánuði, frá hausti til
vors, síðustu tíu árin. Er þetta
þannig síðasta Tómasarmessan að
sinni, en þær hefjast síðan vænt-
anlega að nýju í haust. Fram-
kvæmdaaðilar að þessu messuhaldi
eru Breiðholtskirkja, Kristilega
skólahreyfingin, Félag guð-
fræðinema og hópur presta og
djákna.
Tómasarmessan einkennist af
fjölbreytilegum söng og tónlist,
mikil áhersla er lögð á fyr-
irbænaþjónustu og sömuleiðis á
virka þátttöku leikmanna.
Stór hópur fólks tekur jafnan
þátt í undirbúningi og framkvæmd
Tómasarmessunnar, bæði leik-
menn, djáknar og prestar, segir í
tilkynningunni.
LEIÐRÉTT
Elsta kvenfélagið
RANGHERMT var í frétt hér í
blaðinu á dögunum að Kvenfélagið á
Eyrarbakka væri elsta kvenfélag
landsins, en það átti 120 ára afmæli í
gær. Í ljós hefur komið að Kven-
félagið í Rípurhreppi í Skagafirði
var stofnað 1869, og á því 139 ára af-
mæli á þessu ári.
Franska fyrir fríið
UM þessar mundir bryddar menn-
ingarstofnunin Alliance française á
Íslandi upp á nýjungum og býður
nemendum sínum til Parísar með
nútímalegri kennsluaðferð í
frönsku. Um er að ræða kennslu-
forrit sem blandar saman hóptím-
um, fjarnámi og einkatímum, segir í
fréttatilkynningu.
Þar kemur fram að kennsluað-
ferðin samanstandi af kennsluforriti
sem og kaflaskiptri framhaldssögu á
mynddiski. Nemandinn lærir frönsk-
una eins og hann væri í Parísarborg.
Í hóptímum er farið yfir samtöl og
áhersla lögð á skilning og uppbygg-
ingu málsins. Í fjarnáminu getur
nemandinn svo lært eftir sinni getu
og hraða þegar honum hentar. Í lok
námsins fær nemandinn einkatíma
þar sem lagt er mat á árangur og
farið yfir það sem laga þarf.
Þetta er í fyrsta sinn sem Alliance
française heldur námskeið af þessu
tagi. Námskeiðin eru stutt og standa
yfir í sex vikur og hefjast þann 28.
apríl nk.
Þess má einnig geta að Alliance
française fékk á dögunum gefins 30
mynddiska með frönsku kennsluefni
fyrir börn, um er að ræða vandaða
kanadíska þætti, Téléfrançais, sem
notið hafa vinsælda sem kennsluefni
í barnaskólum víða um heim.
Hægt er að nálgast frekari upp-
lýsingar á vefsíðunni www.af.is
Fréttir á SMS