Morgunblaðið - 14.06.2008, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 47
Texti og myndir eftir Matthías Árna Ingimarsson
mai@centrum.is
UM það leyti sem dyraverðir Orpheum-leikhússins í Omaha
tóku úr lás byrjuðu viðvörunarbjöllur að óma allt í kring.
Hvirfilbylur sem farið hafði um Nebraska-ríkið með miklum
látum var kominn til borgarinnar. Eins og lög gera ráð fyrir
var hljómsveit og tónleikagestum hraðað niður í kjallara leik-
hússins og þar átti að bíða ósköpin af sér.
Hvirfilbylurinn hafði þegar sent á undan sér beljandi rign-
ingu og rok og í fjarska sáust eldingar á himni. Þrumurnar
sem fylgdu í kjölfarið bárust alla leið niður í þrönga kjall-
araganga leikhússins þar sem um þrjú þúsund tónleikagestir
komu sér fyrir í rólegheitum. Stuttu síðar upphófst mikill
lúðrablástur og taktfastur trommusláttur og í minnstu og
þrengstu skrúðgöngu sem sögur fara af í Omaha ómaði „Öxar
við ána“ í flutningi Sigur Rósar.
Ekki veit ég hvort þeir Sigur Rósar-drengir hafi átt fleiri
ættjarðarlög upp í erminni þetta kvöld en veðrinu slotaði svo
að segja við síðasta tóninn og tónleikagestum var hleypt upp í
sal.
Fyrstur á svið var Helgi Hrafn Jónsson sem einnig er hluti
af brass-sveit Sigur Rósar. Stóð hann sig með prýði og fjöl-
margir tónleikagestir þökkuðu fyrir sig með því að kaupa EP-
plötu Helga Hrafns Ösku að tónleikunum loknum. En þá var
komið að aðalatriði kvöldsins.
Sigur Rós flutti bæði gömul og ný lög og þegar litið var yfir
salinn mátti stundum halda að tónleikagestir væru dáleiddir,
slík var einbeitingin sem skein úr andlitum þeirra. Ljósasýn-
ingin var einnig upp á sitt besta og jók við þá nánast trúarlegu
upplifun sem fólk varð fyrir þetta kvöld. Eftir uppklappið
gengu gestir út í þögula Nebraska-nóttina. Ógleymanlegur
stormur var að baki.
Þrumur
og eldingar
Ljósasýning Sigur Rós dáleiddi tónleikagesti með tónum og ljósadýrð.
Jónsi Nýtur sín við hljóðnemann.
Kvöldstund með Sigur Rós
Ljósaskilti Orpheum með skýr-
um skilaboðum.
Ógleymanlegt Stormur í aðsigi, óveðursský hrannast upp.
Hey, sjáiði þetta! Tónlistarmennirnir íslensku fylgjast með hvirfilbylnum og greinilegt að hann er tilkomumikill.
Öxar við ána Liðsmenn Sigur Rósar og Aminu berja húðir og syngja ættjarðarlagið góða.