Morgunblaðið - 28.09.2008, Page 4

Morgunblaðið - 28.09.2008, Page 4
4 SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HVAÐVILDIRÐU VERÐA ÞEGAR ÞÚYRÐIRSTÓR? H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -1 5 8 4 Munið hlaupaprófið laugardaginn 4. okt. kl. 10! Kíktu á www.shs.is Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur í New York bab@mbl.is AÐEINS þrjár vikur tæpar eru þar til kosið verður um tvö tímabundin sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna. Kosningin fer fram föstudag- inn 17. október og valið stendur milli þriggja ríkja: Tyrklands, Austurríkis og Íslands. Undirbúningsvinna starfsfólks utanríkisráðuneytisins vegna framboðsins er á lokasprett- inum og fara þar í fararbroddi starfs- menn fastanefndar Íslands við höf- uðsstöðvar SÞ í New York. Þeim hefur borist liðsauki á undanförnum vikum með starfsfólki sem komið er hingað tímabundið til að sinna þess- um lokaundirbúningi og nú í vikunni sem leið sóttu Geir H. Haarde for- sætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra alls- herjarþing SÞ þar sem þau hittu aðra ráðherra og þjóðarleiðtoga og ræddu meðal annars við þá um framboð Ís- lands. Norrænt framboð og framboð smáþjóðar Ísland býður sig fram í öryggisráð- ið með stuðningi hinna Norður- landanna en hefð er fyrir því að eitt þeirra sækist eftir setu í ráðinu á fjögurra ára fresti. Noregur og Dan- mörk hafa fjórum sinnum átt sæti í ráðinu, Svíar þrisvar og Finnar tvisv- ar, en Ísland er að bjóða sig fram í fyrsta sinn. Setið er í ráðinu til tveggja ára í senn og nái Ísland kjöri verður þetta með allra stærstu verk- efnum og ein mesta ábyrgð sem Ís- lendingar hafa tekið að sér á alþjóða- vettvangi. Í ræðu sinni á allsherjarþinginu á föstudag sagði forsætisráðherra að Norðurlöndin hefðu alla tíð gegnt lykilhlutverki í þeim verkefnum sam- takanna sem snúa að friðargæslu og þróunaraðstoð og að þau hefðu sýnt afdráttarlausa skuldbindingu við al- þjóðalög og næði Ísland kjöri myndi það fylgja þessari hefð. Þau atriði sem lögð hefur verið áhersla á í málflutningi Íslands þegar framboðið er kynnt fyrir öðrum þjóð- um er að framboð Íslands sé norrænt framboð og einnig að það sé framboð smáþjóðar sem hefur enga verulega geópólitíska hagsmuni. Tekið er fram að Ísland beri virðingu fyrir alþjóða- lögum, mannréttindum og lýðræði og vilji stuðla að gagnkvæmri virðingu og umburðarlyndi í samskiptum ríkja. Þá vilji Ísland sjá aukna sam- þættingu öryggismála og þróunar- starfs og stuðla að verndun óbreyttra borgara á átakasvæðum með sér- staka áherslu á konur og börn. Annað sem snýr að konum er að hvetja til þess að þær fái aukinn aðgang að friðarviðræðum og uppbyggingu samfélaga eftir stríðsátök. Ísland vilji einnig auka gegnsæi í starfi öryggis- ráðsins og beita sér fyrir því að þar ríki lýðræðislegar vinnuaðferðir sem auðvelda öðrum aðildarríkjum SÞ að fylgjast með starfsemi þess. Tekið á því á lokasprettinum  Undirbúningsvinna vegna framboðs Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á fullu  Kosið eftir tæpar þrjár vikur  Valið stendur á milli Íslands, Tyrklands og Austurríkis Ljósmynd/Birna Anna Björnsdóttir Fundur Ráðherrar sátu fjölda tvíhliðafunda, þ. á m. ræddi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir við Mourad Medelci, utanríkisráðherra Alsírs. INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra sagði að hún væri vongóð og að sér fyndist almennt hafa verið brugðist mjög jákvætt við framboðinu. „Ég er ánægð með það sem við höfum verið að gera. Við fáum já- kvæð viðbrögð við þeim áherslum sem við höfum lagt fram og því hvernig unnið hefur verið að fram- boðinu. Það hefur verið faglega og vel gert og ég hef fengið mjög já- kvæð viðbrögð við því hvernig okk- ar starfsfólk, fólk í utanríkisþjón- ustunni, hefur sinnt þessum málum og komið okkar málstað á fram- færi.“ Hún segir Ísland hafa fengið mikla, jákvæða kynningu vegna framboðsins og öll sú vinna sem far- ið hefði fram í kringum það hefði mikið gildi í sjálfu sér burt séð frá því hvernig sjálf atkvæðagreiðslan fer. „Við erum, á stuttum tíma, búin að ná eyrum leiðtoga 192 ríkja. Núna hafa allir heyrt um Ísland, heyrt hvað Ísland hefur fram að færa, og hlustað á okkar áherslur.“ Margir þeirra leiðtoga sem fundað hafi verið með hafi ekkert þekkt til Íslands. „En í gegnum þetta er Ís- land komið á kortið.“ Nýir bandamenn Eru einhverjir ákveðnir ríkjahóp- ar sem má segja að séu orðnir nýir bandamenn okkar fyrir tilstilli þessa vinnuferlis? „Já, ég get til dæmis nefnt smáu eyríkin. Það eru bandamenn sem við höfum eignast en við höfum lagt mikla áherslu á að kynna okkur fyrir þeim. Mér finnst við líka eiga mikinn hjómgrunn meðal Afríkuríkja, og þá ekki síst vegna okkar sér- stöku sögu innan Evrópu, sem fyrrverandi nýlenda og fyrrverandi þróunarríki. Sagan okkar er þeim hvatning.“ Og það sama á kannski við um ey- ríkin? „Já, því við erum líka smátt ey- ríki. Og þau sjá að þó að þjóð sé ekki fjölmenn þá þarf hún ekki að upplifa sig vanmegnuga.“ Hefurðu einhverja tilfinningu fyr- ir framboðum hinna landanna tveggja, Tyrklands og Austurríkis? „Það er erfitt að segja. Þetta eru auðvitað öflugir mótframbjóðendur með mjög þróaða og stóra utanrík- isþjónustu og sendiráð út um allan heim. Austurríki er auk þess með SÞ stofnanir innan sinna vébanda og Tyrkirnir eru með mikla útrás- arstarfsemi í ýmsum áttum í kring- um sig. Það er því við ramman reip að draga en ég held að við höfum hlotið svolitla virðingu einmitt vegna þess. Þetta er svolítið eins og Davíð og Golíat og við gefum ekkert eftir. Því það að vera smáríki er líka spurning um hugarfar. Við erum ekki hugarfarslega smá,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Ísland komið á kortið Í vikunni sem leið sátu forsætis- ráðherra og utanríkisráðherra fjölda tvíhliða funda með öðrum ráðherrum og þjóðarleiðtogum þar sem þau mæltu fyrir fram- boði Íslands. Því enda þótt það séu fastafulltrúar aðildaríkj- anna 192 í SÞ sem sjá um að greiða atkvæðin í leynilegri kosningu gera þeir það flestallir samkvæmt fyrirmælum stjórn- valda í heimalöndum sínum. Því er brýnt að fá stuðning leiðtoga aðildarríkjanna þó svo að fasta- fulltrúarnir sjálfir geti í mörgum tilfellum haft áhrif á hvaða ríki verða fyrir valinu. Þess vegna er einnig mikilvægt að fá stuðning fastafulltrúanna. Það er síðan alltaf inni í myndinni að fasta- fulltrúarnir kjósi eftir eigin geð- þótta, kosningin er jú leyni- legÞví þrátt fyrir öll loforð, bæði munnleg og skrifleg, gerir leynileg kosning mönnum kleift að lofa upp í ermina á sér og lofa jafnvel öllum stuðningi. Leynileg kosning og því erfitt að spá GEIR H. Haarde forsætisráðherra sagðist telja hug- arfarið gagnvart framboði Íslands almennt vera já- kvætt. „Mér hefur fundist stemn- ingin í okkar garð vera mjög góð og miklu betri en ég átti von á. En það er nú samt hér eins og í pólítík alls staðar annars staðar að það koma ekki alltaf jafn mörg atkvæði upp úr kassanum og menn hafa átt von á þegar þeir telja saman loforðin sem gefin eru, enda er þetta leynilegt kosn- ing. En við höfum samt ástæðu til að vera nokkuð bjartsýn. Við höf- um háð þessa baráttu á frekar lágum og hófstilltum nótum, eins og við ætluðum okkur að gera. Ég held að hún hafi orðið okkur til sóma hvernig svo sem niðurstaðan verður. Og ég held að við höfum lært mikið af því að taka þátt í þessu.“ Telurðu að vinnan við framboðið hafi haft gildi í sjálfri sér, burtséð frá væntanlegum niðurstöðum kosninganna? „Ég tel að það sé að koma í ljós að hún hafi haft heilmikið gildi í sjálfri sér og opnað augu okkar fyrir alls kyns vandamálum og verkefnum í löndum sem við höfð- um kannski ekki kynnt okkur mjög vel.“ Framboðið aukið sýnileika Íslands innan SÞ Og höfum við þá kannski eign- ast nýja bandamenn og myndað ný tengsl? „Já, það er ekki vafamál. Bæði í Afríku og líka í samtökum smárra eyríkja sem eru ríki sem gjarnan eru með jafnvel færra fólk heldur en við. Það er áhugavert að kynn- ast þeim og ég er viss um að þetta verða góð tengsl í framtíðinni.“ Geir sagði fullljóst að framboðið hefði aukið sýnileika Íslands innan SÞ. „Það vita allir af þessu fram- boði. Og það vita allir að þetta framboð er norrænt framboð og það er ánægjulegt að norrænu ráðherrarnir sem eru hér eru virkir í að leggja framboðinu lið.“ Hann sagðist að lokum telja fulla ástæðu til bjartsýni hvað kosningarnar varðar. „En það má passa það að hún verði hófleg, það er það sem gildir.“ Segir stemninguna í garð Íslands mjög góða Geir H. Haarde Birna Anna Björnsdóttir settist niður í lok vikunnar með forsætisráðherra og utanríkisráðherra og bað þau að meta stöðuna út frá samtölum við kollega sína á allsherjarþingi SÞ. Hún spurði þau einnig hvað þau teldu að framboðið sjálft hefði gert fyrir Ísland í al- þjóðlegu samhengi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.