Morgunblaðið - 28.09.2008, Page 23

Morgunblaðið - 28.09.2008, Page 23
málaráðuneytinu, skipti um starfsvettvang og varð lögreglustjóri LRH, þá hvarf ákveðið jafnvægi í ráðuneytinu. Stefán er vandaður og góður maður og við hér hjá embættinu áttum alltaf skjól í honum vegna þess að hann gekk einfaldlega faglega fram. Nú er oft sagt að maður komi í manns stað - en við upplifðum það svo sannarlega ekki við brotthvarf Stefáns. Það má rifja það upp að á meðan embætti mitt tilheyrði utanríkisráðuneytinu, þá var stöðugt verið að sækja að manni og það var umhverfi sem ég varð að búa við. Það má öllum vera ljóst að Haraldur Johannessen hafði aldrei áhuga á dagar mínir í embætti yrðu margir.“ Segir Jóhann að það liggi beinlínis fyrir að Haraldur Johannessen hafi hamast í honum frá því Jóhann var skipaður. „Við sem höfum starf- að á vettvangi lögreglunnar, þekkjum öll til- burði ríkislögreglustjóra í þá veru að sækja í verkefni okkar. Það er hægt að nefna ótal dæmi,“ segir hann „Ríkislögreglustjóri krafð- ist þess til dæmis að fá fíkniefnadeild LRH undir sína stjórn. Það er stöðug togstreita í gangi og hún gerir það að verkum að það ríkir vantraust á milli yfirstjórnenda í lögreglunni. Andinn hefur lengi verið þannig að stjórn- endum í vel reknum lögregludeildum finnst þeir hafa það á tilfinningunni að þær séu um leið orðnar eitthvað sem aðrir ásælast. Rík- islögreglustjóri hefur ítrekað lýst því í ræðum og riti að hann vilji stjórna allri lögreglunni í landinu og fá til þess allar fjárveitingar, því hann telur sig best til þess fallinn að stjórna lögreglunni. Og hann hefur ekki farið leynt með þessar skoðanir og ég virði hann fyrir það.“ Jóhann segist hafa heyrt af öfund ríkislög- reglustjóra út í embætti sitt vegna árangurs og afkasta, en sagt hefur verið að Jóhann hafi náð því sem menn töldu óvinnandi verk, þ.e. að sameina tollgæslu og lögreglu á Keflavík- urflugvelli. Árangurinn varð sá að aldrei hefur verið lagt hald á eins mikið af fíkniefnum og ólöglegum efnum eins og á starfstíma hans. „Ég get ekki neitað því að stundum þegar við hér hjá embættinu glöddumst yfir góðum ár- angri, þá fengum við hamingjuóskir frá Toll- stjóranum í Reykjavík, lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu - en aldrei, ekki í eitt einasta skipti, sá ríkislögreglustjóri ástæðu til að lyfta síma eða senda tölvupóst til að þakka góðan ár- angur,“ segir Jóhann. „Í sjálfu sér skildi maður aldrei hvernig stóð á þessu, því í mínum huga er góður árangur hjá hverju og einu lögreglu- embætti, rós í hnappagat ríkislögreglustjóra. Þess vegna skildi ég aldrei þessa togstreitu. Við glímdum við samskonar togstreitu milli deilda hér innan embættisins, sem við náðum að uppræta og skapa það andrúmsloft að ár- angur einnar deildar væri árangur alls emb- ættisins. Og árangur þessa embættis er síðan árangur ríkislögreglustjóra og loks dóms- málaráðherra. En því miður voru hlutirnir ekki svona. Það var mjög algengt að menn færu í sand- kassaleik og vildu reyna að eigna sér hlut af ár- angri annarra. Eitt skýrasta dæmið um þetta var stóra fíkniefnamálið á Seyðisfirði, sem var unnið að öllu leyti af LRH en það þótti broslegt í meira lagi hvernig ríkislögreglustjóri reyndi að stíga þar fram og baða sig í sviðsljósinu. Ég fullyrði að almenningur trúir því ekki hvers- konar sandkassaleikur er við lýði innan lög- reglunnar og þetta er svo dapurlegt að maður skammast sín fyrir að segja frá þessu. Þetta er hinsvegar staðreynd sem menn verða að horf- ast í augu við.“ Jóhann segir að slagurinn við að sanna til- verurétt sinn og embættis síns hafi verið svo harður að mál hafi þróast út í að svara „fárán- legum spurningum“ ríkislögreglustjóra sem reistar hafi verið á kjaftasögum um meinta spillingu Jóhanns í starfi. „Það var hringt og spurt hvort ég hefði það fyrir sið að láta lög- reglumenn embættisins bera farangurinn minn í gegnum tollinn í Leifsstöð við heimkom- ur. Ég var orðlaus. Hvorki fyrr né síðar hefur nokkur starfsmaður embættisins aðstoðað mig við töskuburð, enda er ég fullfær um að bera töskurnar mínar sjálfur. Svona ávirðingum þurfti ég oft að svara ríkislögreglustjóra. Mað- ur þurfti reglulega að hrista af sér hlægilegar kjaftasögur í bloggsíðustíl. En þegar maður var spurður ítrekað af ríkislögreglustjóra, þá varð maður hugsi yfir því á hvaða grundvelli menn ynnu þar.“ Ríkisendurskoðun sagði í úttekt sinni í vor á lögreglustjóraembættinu á Suðurnesjum að launakostnaður væri talsvert hærri hjá emb- ættinu miðað við önnur lögreglu- og tollstjóra- embætti. Kjarasamningar og ólíkt vakta- og vinnufyrirkomulag skýrðu þetta að hluta, en einnig var tekið fram að yfirmenn og stað- genglar væru hlutfallslega fleiri en hjá LRH og Tollstjóranum í Reykjavík. Taldi ríkisend- urskoðun nauðsynlegt að kanna til hlítar í hverju þessi munur lægi. Þegar Jóhann er beð- inn að skýra málið nánar, dregur hann enga dul á að launakostnaður er hærri en hjá Toll- stjóranum í Reykjavík - en bendir á að verið sé að bera saman ólíka hluti. „20% af starfs- mönnum Tollstjórans í Reykjavík eru vakta- vinnumenn en hlutfallið er 80% hjá okkur. Sú augljósa staðreynd gerir það að verkum að launakostnaður er vitaskuld hærri hér. Við er- um það embætti sem keyrir hærra hlutfall sól- arhringsvakta en önnur embætti. Eðli málsins samkvæmt er heildarkostnaður hærri á hvern starfsmann. En samanburður sýnir að yfirleitt eru menn í hærri grunnlaunaflokki hjá Toll- stjóranum í Reykjavík en við mitt embætti.“ Lögreglustjóranum sjálfum að kenna? Í stuttu máli sagt er embætti lögreglustjór- ans rúmlega 200 milljónir kr. í mínus og það vantar fé. Þetta vekur spurningar um fjár- málastjórnina og hvort það sé Jóhanni sjálfum að kenna hvernig komið er, með því að halda sig ekki innan fjárheimilda dómsmálaráðu- neytisins? Og bruðla með almannafé í laun handa yfirmönnum? Jóhann bendir á að í rekstri þar sem 83% kostnaðar eru laun, taki tíma að ná niður kostnaði. „Þegar uppskipting embættisins var boðuð í vor, þá lýsti dóms- málaráðherra því yfir að ekki ætti að fækka starfsfólki. Við stjórnun embættisins reynum við að taka reksturinn alvarlega og því fækk- uðum við í öryggisdeildinni um níu manns vegna samdráttar í flugi. Við lögðum niður yf- irtollvarðastöðu í tollgæslunni og réðum ekki í stöðu aðstoðarlögreglustjóra og vorum að vinna í því að sameina svið. Starfsmannastjóri undirbýr brottför sína og það stóð ekki til að ráða í hans stöðu. Við fækkuðum um eitt stöðu- gildi á fjármálaskrifstou, þannig að það hefur verið unnið að mjög viðamiklum hagræðing- araðgerðum. Það er því óravegur frá því að embættið hafi heimtað meira fé eins og frekur krakki. Við höfum alltaf tekið reksturinn alvar- lega en reyndum samt að tryggja að grunn- rekstur embættisins myndi ekki skaðast. En það segir sig sjálft að það er ekki hægt að ná niður ríflega 200 milljóna króna halla, nema á löngum tíma að því gefnu að starfsfólki verði ekki fækkað. Það er því ósanngjarnt og ómál- efnalegt að halda því fram að við höfum ekki verið að bregðast við í rekstrinum.“ Jóhann segir að eftirmaður sinn, hver sem það verður, standi frammi fyrir því að reka allt að 40 manns af 220, til að ná jafnvægi í rekstr- inum, nema hann fái mikið fjármagn í meðgjöf. „Þegar við fengum bréf frá dómsmálaráðu- neytinu í júlí sl. þar sem okkur var tjáð að við fengjum hugsanlega 40 milljónir kr. í auka- fjárveitingu vegna tapaðra tekna við brott- hvarf Varnarliðsins, en skipað að halda okkur innan fjárheimilda, þá fól það í sér að það þurfti að segja upp fjölda fólks. Við greindum ráðuneytinu frá því að það væri grafalvarleg staða í fjármálum embættisins og greindum um leið frá þeim hagræðingaraðgerðum sem við höfðum gripið til. Því miður tapaði emb- ættið miklum sértekjum vegna minnkandi flugs og annarra þátta m.a. vegna þess að þjónustusamningur við Flugmálastjórn var ekki undirritaður og á því bar ráðuneytið al- gerlega ábyrgð. Við boðuðum að við yrðum að fækka fólki til að ná tökum á rekstrinum en þegar ég var kallaður í ráðuneytið 8. sept- ember þá var bréf mitt búið að liggja á borðum ráðuneytismanna í þrjár vikur. Ég spurði hve- nær við fengjum hinn áríðandi fund um fjár- málin en engin svör fengust. Aftur mætti ég sama viðmótinu; það var snúið út úr - eða ekki svarað. Með því að draga okkur á svörum versnaði staða okkar sífellt með þeim afleið- ingum að við litum verr og verr út. Þess vegna taldi ég það brýnt að hverfa eins fljótt og verða mátti úr embætti lögreglustjóra til þess að þetta alvarlega vandamál fengi athygli og von- andi úrlausn í framhaldinu.“ Um þá gagnrýni þess efnis að hjá embætt- inu starfi of margir yfirmenn, segir Jóhann að dómsmálaráðuneytið hafi við sameiningu emb- ætta sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli og lögreglu og tollgæslunnar í Keflavík lýst því ítrekað yfir að enginn ætti að missa stöðu sína og ekki ætti heldur að fækka starfsfólki. „Með öðrum orðum þá átti ekki að hreinsa til, heldur þurftum við að láta sameininguna ná fullri hag- ræðingu á ákveðnu tímabili. Við vorum með tvöfalt sett af aðalvarðstjórum af Keflavík og Keflavíkurflugvelli og bjuggum til skýrari píramída með því að leggja til að fjölga aðstoð- aryfirlögregluþjónum en fækka í laginu undir. Einn yfirlögregluþjónn kom úr Keflavík og annar af Keflavíkurflugvelli. Sá þriðji var í launalausu leyfi. Við buðum þá lausn að hann myndi halda áfram í launalausu leyfi næstu tvö árin. Við höfum óskað eftir því að staða yfirlög- regluþjóns númer tvö verði lögð niður frá 1. apríl 2009 og viðkomandi fari á biðlaun, í fullu samráði við hann. Það liggur fyrir að nokkrir aðstoðaryfirlögregluþjónar eru að nálgast eft- irlaunaaldur. Ákvörðun okkar sem stjórnum embættinu, lá fyrir um að ekki yrði ráðið í þær stöður. Við gengum fram í sameiningunni með mannlegum hætti með því að sýna þeim sem hafa gegnt þessum störfum fulla virðingu. Við þurfum 2-4 ár til að láta sameininguna skila fullri arðsemi. Hvað þennan þátt varðar, er því gagnrýnin mjög ómálefnaleg og ósanngjörn.“ rjast við glæpamenn“ Morgunblaðið/Júlíus Jóhann Við sem höfum starfað á vettvangi lögreglunnar, þekkjum öll tilburði ríkislög- reglustjóra í þá veru að sækja í verkefni okk- ar,“ segir Jóhann R. Benediktsson fráfarandi lögreglustjóri á Suðurnesjum. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2008 23 ÁRÁSIR á lögreglumenn eru að færast í aukana og þær verða sífellt alvarlegri,“ segir Jóhann R. Benediktsson. Hann hefur miklar áhyggjur af starfsöryggi lögregl- unnar að þessu leyti og telur brýnt að auka réttarvernd. Skilyrðislaust þarf að dæma óskilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi gegn lögreglumönnum. „Við verðum að gera allt sem við getum til að vernda starf lögreglumanna og tryggja að reyndir og góðir lögreglumenn haldist í stéttinni,“ segir hann. Sjálfur hefur Jóhann staðið frammi fyrir það alvarlegum ógnunum að hann hefur þurft að breyta lífsstíl sínum. Tvívegis hef- ur munað litlu að menn gengju í skrokk á honum. Í annað skiptið var hann ásamt konu sinni að bíða eftir leigubíl í úthverfi í Reykjavík eftir kvöldmatarboð hjá vina- fólki. „Skyndilega dreif að tvo menn í ann- arlegu og alvarlegu ástandi,“ segir hann. Umræddir menn munu hafa þekkt Jóhann af störfum hans, því þeir sögðu: „þú þarna helvítið þitt,“ og voru komnir það nálægt honum í árásarhug að Jóhann var kominn í varnarstellingar fyrir slagsmál. „En þegar þeir ætluðu að hjóla í mig, komu aðrir tveir og drógu þá í burtu, upp í bíl og óku á brott í loftköstum,“ segir hann. „Konunni minni var mjög brugðið við þessa upplifun. Miðað við það hvernig mennirnir gengu fram, þá held ég að þeir hafi haft þann ásetning að láta mig enda á gjörgæsludeild. Ég hef því miður orðið fyrir slíkum hót- unum í starfi að ég hef þurft að halda þeim leyndum fyrir fjölskyldu minni til að vekja ekki hjá henni ótta. Við sem vinnum í lögreglunni tölum alla- jafna ekki mikið um þessa hluti, því við viljum ekki sýna veikleikamerki og sýna að þessi ljótleiki bíti á okkur.“ Jóhann segist öryggis síns vegna ekki hafa leyft sé að rölta um götur Reykjavík- ur í leit að leigubíl að kvöldlagi og margir eru þeir staðir, jafnvel sum heimili, sem hann hefur ekki treyst sér til að koma inn á „vegna þess að maður vissi of mikið,“ segir hann. Þurfti að fara varlega „Fólk heldur gjarnan að nýir kunningjar í hópnum séu góðir og gegnir borgarar og þiggja heimboð eins og gengur. En það kom fyrir að maður vissi að menn voru undir grun lögreglu um alvarlega hluti og til að forðast óþægindi sem af þessu öllu gat hlotist, þurfti maður að fara varlega. Það má líka nefna að sumir nágranna minna höfðu oft áhyggjur af velferð fjöl- skyldunnar þegar ég var erlendis. Þetta eru allt hlutir sem við kjósum ekki að tala um. En svona er samt sá heimur sem við, yfirmennirnir í lögreglunni, lifum í. Og þá er ónefnd sú staðreynd að hinn almenni lögreglumaður er í langmestri hættu. Lög- reglustarfið er almennt miklu áhættusam- ara en það var fyrir 10-20 árum,“ segir Jó- hann. Vilja ekki sýna veikleikamerki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.