Morgunblaðið - 28.09.2008, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2008 41
MINNINGAR
✝ Hrefna Sigur-gísladóttir
fæddist í Reykjavík
17. mars 1925. Hún
lést á Landspítalan-
um 14. sept. síðast-
liðinn. Foreldrar
Hrefnu voru Hólm-
fríður Jónsdóttir, f.
1888, d. 1958, og
Sigurgísli Jónsson,
f. 1890, d. 1930.
Börn Hólmfríðar
voru þrettán, eftir-
lifandi eru Ásthild-
ur, f. 1923, og
Guðný, f. 1926.
Hrefna giftist tvisvar og lauk
báðum hjónaböndum með skiln-
aði. Hún var barnlaus.
Hrefna fór í fóstur til föð-
urömmu sinnar á Vestra-
Skagnesi í Mýrdal árið 1930,
sama ár og faðir hennar drukkn-
aði. Ári síðar fór Guðný, systir
Hrefnu, einnig í
fóstur að Skagnesi
og ólust þær systur
þar upp saman.
Varð það til þess að
samband milli
þeirra systra var
náið alla tíð og sterk
tengsl milli Hrefnu
og fjölskyldu Guð-
nýjar.
Hrefna vann ýmis
störf framan af, s.s.
verslunar- og skrif-
stofustörf en lengst
af starfaði hún á
skrifstofu Lögreglustjórans í
Reykjavík. Hrefna bjó á Skelja-
granda 8 en fluttist á hjúkrunar-
heimilið Víðines í Mosfellsbæ fyr-
ir tæpum tveimur árum þar sem
hún naut alúðar og góðrar
umönnunar.
Útför Hrefnu fór fram 18. sept-
ember síðastliðinn.
Atvikin höguðu því á þann veg að
leiðir okkar Hrefnu systur minnar
lágu saman öll bernsku- og ung-
lingsárin frá því að ég var á fimmta
árinu en hún orðin sex. Síðan eru lið-
in sjötíu og sjö ár. Allan þann tíma
hefur hún sýnt mér og síðar öllum
mínum óbilandi vináttu, umhyggju
og tryggð. Sú væntumþykja hefur
ætíð verið sterkur og sjálfsagður
þáttur í mínu lífi og ég veit að hún
mun alltaf fylgja mér og mínu fólki.
Hún systir mín var bæði greind, fal-
leg, glaðvær og góð. Á kveðjustund
verða mín orð fátækleg. En ég vil að
leiðarlokum færa henni þakkir mín-
ar og biðja henni blessunar og Guðs
friðar.
Guðný.
Ég kynntist Hrefnu frænku fyrir
u.þ.b. 35 árum. Hún var reyndar
ekkert skyld mér heldur frænka
mannsins míns en samt var mér eðli-
legt að kalla hana Hrefnu frænku.
Þegar lítil Hrefna, nafna hennar,
kom til sögunnar fékk Hrefna
frænka annan titil, stóra Hrefna.
Þeim titli hélt hún alla tíð síðan í
fjölskyldunni, löngu eftir að litla
Hrefna var orðin stór og meira en
höfðinu hærri en stóra Hrefna.
Góðar minningar mínar og fjöl-
skyldu minnar um Hrefnu eru fjöl-
margar. Þær tengjast bæði hvers-
dagsleikanum og hátíðarstundum í
fjölskyldunni. Hrefna setti svip sinn
á fjölskylduboð því hún var svo
skemmtileg.
Hrefna var falleg og afar glæsileg.
Hún var líka hnyttin, greind, víð-
lesin, gestrisin og örlát. Einnig var
hún pólitísk og hafði ríka réttlæt-
iskennd. Hrefna var ekki hálauna-
kona en auraði engu að síður saman
fyrir eigin íbúð, afar fallegu heimili
og færði ættingjum og vinum vand-
aðar tækifærisgjafir. Hrefna reynd-
ist fjölskyldu minni vel alla tíð og
áttu börnin mín í henni viðbót-
arömmu.
Nú er lífsgöngu Hrefnu lokið en
minning hennar lifir með okkur sem
kynntumst henni og vorum svo lán-
söm að verða henni samferða.
Erla.
Með örfáum orðum ætla ég að
kveðja hana Hrefnu, elskulega
frænku mína og kæran vin.
Ég hlakka svo til að segja honum
Eldari Hrafni frá þessari skemmti-
legu og fallegu frænku sem hann
fær ekki að kynnast persónulega.
En hann mun fá að heyra af öllu því
sem hún gerði fyrir mig og mömmu
Hóffí og hvernig hún bar hag okkar
alltaf fyrir brjósti. Og eitt er víst, að
minning hennar mun lifa hjá öllum
þeim sem þótti svo vænt um hana.
Það er svo ótalmargt sem kemur
upp í hugann og svo óendanlega
margt sem mig langar að þakka
henni fyrir núna að leiðarlokum.
Heimurinn er í mínum augum mun
litlausari og fátæklegri án hennar,
en engu að síður er ég fegin að hún
fékk hvíldina að lokum.
Ég kveð hana Hrefnu með þess-
um texta sem okkur fannst báðum
svo fallegur:
Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðvilj-
aður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleik-
urinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki
upp. Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar
ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki
langrækinn. Hann gleðst ekki yfir óréttvís-
inni en samgleðst sannleikanum. Hann
breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber
allt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
(I. Korintubréf, 13. kafli, vers 4-7)
Hafi elsku besta frænka mín þökk
fyrir allt.
Kristín.
Við vorum svo lánsöm að eiga
aukaömmu í henni Hrefnu okkar.
Hún var amma okkar allra og við
kölluðum hana Stóru Hrefnu eftir að
hún eignaðist nöfnu í fjölskyldunni.
Við munum eftir matarboðunum
hennar þar sem hún stjanaði í kring-
um okkur. Stelpurnar fengu að kíkja
í fataskápinn hjá henni sem var
mjög ævintýralegt. Snyrtiborðið
hennar sáu þær í hillingum. Í því
leyndist til dæmis græna hálsmenið
sem okkur stelpurnar langaði svo í
en fengum þó ekki.
En Hrefna af gjafmildi sinni
gaukaði nú ýmislegu að okkur. Svo
bjó hún um okkur í dýrindis silki-
rúmfötum eins og kóngafólki einu
sæmir.
Við munum eftir því hvað hún var
fáguð. Hvað það var alltaf tandur-
hreint og ótrúlega fínt heima hjá
henni. Munum eftir matarboði með
öllum stelpunum í ættinni og á borð-
um var dýrindis rækjuréttur sem
varð til þess að stelpurnar fóru að
borða pent. Hrefna borðaði þeim
ekki til samlætis heldur snerist í
kringum stúlkurnar. Það var henni
líkt að hugsa um aðra á undan sjálfri
sér.
Stríðnin var ríkur þáttur í fari
hennar. Gott dæmi um það er
möndlugjöfin sem henni var mjög
umhugað um og var Hrefna afar
lunkin í að ná þeirri gjöf af þeim
heppna en loksins þegar hún fékk
gjöfina sjálf þá gaf hún nöfnu sinni
gjöfina eins og ekkert væri. Hún var
mjög fylgin sér í gjafmildi sinni enda
var gjöfunum ætlað að fylgja okkur
fyrir lífstíð sem og þær gera. Glæsi-
leikinn var henni eðlislægur, hún var
hógvær, glettin, kaldhæðin, full af
andstæðum, gjafmild, stríðin með
frábæran húmor, sjálfsöguð, hrein-
skilin, beinskeytt, ævintýragjörn og
passaði upp á sína.
Við erum þakklát fyrir að hafa átt
Stóru Hrefnu að og munum sakna
hennar sárt.
Ásta Lilja, Eldar, Eldar Hrafn,
Erna, Gísli, Guðný, Hrefna og
Sunna.
Hrefna
Sigurgísladóttir
Hver minning dýrmæt
perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni
af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf,
sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Lífið getur bæði verið ljúft og
sárt og það er sárt að þurfa að
horfa á eftir góðum vini yfir móð-
una miklu svo að segja í blóma lífs-
ins.
Ekki datt mér í hug þegar ég sat
í húsbíl þeirra Benna og Huldu uppi
Benedikt Reynir
Valgeirsson
✝ Benedikt ReynirValgeirsson
fæddist í Reykjavík
30. maí 1941. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 22. ágúst
síðastliðinn og var
jarðsunginn í
kyrrþey 5. sept-
ember.
á tjaldsvæðinu í
Kirkjuhvammi fyrir
u.þ.b. tveimur árum
og spjallaði við þau
um lífið og tilveruna
yfir kaffibolla að þetta
yrði síðasta spjallið
við Benna.
Þar tókum við
ákvörðun um að
ganga saman ein-
hvern tímann upp á
háls á Kollafossi og
rifja upp gamlar
endurminningar þar.
Við gerum það
kannski þegar við hittumst aftur
hinum megin.
Benni var í sveit á Kollafossi sem
stráklingur hjá foreldum mínum um
það leyti sem ég var að fæðast og
það var alltaf eins og færi um hann
einhver straumur þegar hann kom í
Vesturárdalinn.
Húsbíllinn sem ég drakk kaffið í
hét Dalakofinn eftir samkomuhúsi
okkar í Fremri-Torfustaðahreppi,
en nú er búið að rífa þann kofa
enda hélt hann hvorki vatni né
vindi.
Þín minning öllu æðri
ofar moldum skín.
Er góðra verður getið
mun getið verða þín.
(G.J.)
Benni var mjög tryggur og
traustur vinur og ég hygg að hann
hafi átt fáa ef nokkra óvini.
Ávallt var jólakortið frá ykkur,
Hulda mín, með þeim fyrstu sem ég
fékk fyrir hver jólin, ég þekkti allt-
af undirskriftina.
Hugurinn er hjá þér Hulda mín
og dætrunum.
Elsku Ragna mín, um leið og ég
votta þér samúð mína vegna fráfalls
sonar þíns vil ég þakka þér af alhug
fyrir alla hjálp og vinsemd í minn
garð, sérstaklega þegar ég lá veikur
á sjúkrahúsi í Reykjavík 15 ára
gamall, það verður seint fullþakkað.
Ég og mitt skyldfólk allt vottum
fjölskyldu Benna innilega samúð við
fráfall hans.
Vil ég enda þessar línur með orð-
um Ingþórs frænda:
Af öllum mættti óska minna
alvaldi faðir krýp ég þér
og bið þú nauðum látir linna
líknandi þeim sem villtur er
styð þann veika vermandi höndum
veit honum lausn úr ánauðar böndum.
(Ingþór Sigb.son)
Gunnlaugur Pétur
Valdimarsson
frá Kollafossi.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
KRISTJANA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu föstudaginn 19. september.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
29. september kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Umhyggju, félag til stuðnings langveikum börnum.
Gerður Ólafsdóttir,
Sigríður Ólafsdóttir, Bjarni Bjarnason,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON,
Aflagranda 40,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi, fimmtu-
daginn 25. september.
Útför hans verður frá Fossvogskirkju, föstudaginn
3. október, kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameins-
sjúkara barna.
Ásgerður Gísladóttir,
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Brynjúlfur Sæmundsson,
Gíslína Guðmundsdóttir, Haraldur Dungal,
Ólöf og Axel, Ragnar, Sigurður Ásar, Hrafn
og langafabörnin
✝
Okkar ástkæri eiginmaður, sonur, faðir, bróðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
LAURITZ C. JÖRGENSEN,
lést á heimili sínu í Ameríku miðvikudaginn
10. september.
Minningarathöfn verður haldin í Fossvogskapellu
föstudaginn 3. október kl. 11.00.
Dee Payne,
Herdís Guðmundsdóttir,
Elin Rimnac, Ron Rimnac,
Lára Lárusdóttir, Eiríkur Pétursson,
Einar Jörgensen, Michele Jörgensen
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
AXEL ALBERTSSON,
Lágholti 2,
Mosfellsbæ,
lést að kvöldi fimmtudagsins 18. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Aldís Anna Axelsdóttir, Gunnar Stefánsson,
Albert Axelsson,
Agnar Logi Axelsson, Ágústa Hallsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix