Skinfaxi - 01.11.1933, Side 8
88
SKINFAXI
Sá galli getur auðvitað verið á þessari sameiningu, að
erfilt yrði að nota þenna stað sem starfsheimili allra
félaga á svæðinu. Eg kalla þetta starfs- og skólaheim-
ili, vegna þess, að eg vil láta það gefa nokkra bend-
ingu um það, að allra lilula vegna þarf starfið að eiga
þar heima. Það þarf að komast meira inn í alla fræðslu
barnanna og unglinganna en nú er, bæði í sjálfsstarfi
þeirra í venjulegu bóknámi og i öllum áhrifum á
hugsunarhátt þeirra.
Annars skal ekki fjölyrt um hina venjnlegn Itarna-
fræðslu og nauðsynlegar hreytingar á lienni yfirleltt
í skólnm landsins, en kennurum er það full-ljóst, að
fyrirkomulag kennslu, kennslubækur og val námsefn-
is þarf að færast í annað horf. Nema þarf hurt hin
þurru og tilgangslitlu fræðiatriði, lexíunámið og þau
próf, sem i raun og veru gefa næsta litla hugmynd
um það, sem mestu máli skiptir, en sníða nemandan-
um of þröngan stakk, drepa námslöngun hans og á-
huga. Setja í þess stað námsefni, sem nær liggur þörf-
um og kröfum daglegs lífs, og hreyta vinnuháttum
þannig, að nemandinn fái að njóta þeirrar gleði og
þjálfunar, sem fæst mcð því, að slarfa sjálfur á eigin
ábyrgð, að viðfangsefnum, er hann ræður við og und-
ir leiðsögu kennarans, hlotið ])á leikni og þekkingu,
sem lífið siðar krefst af honum.