Skinfaxi - 01.11.1933, Page 10
90
SIÍINFAXI
samvinnufélaganna. Þaö er augljós sparnaðurinn að
því, að sameinast um dýr áhöld og skipuleggja iiotk-
un þeirra, og tiltölulega verður það ódýrara, að ætla
þessari starfsemi rúm á skólaheimilinu, en að hyggja
yfir hana sérstaklega. Þá er það ótalið, hvílíkur feng-
ur það er, að hafa slika vinnustofu í sambandi við
skólastarfið. Börnin yrðu þá aldrei slitin úr sambandi
við vinnuna, gætu lært störfin; áhuginn á þessum mál-
um yxi og smekkvísi fyrir fallegum innlendum klæðn-
aði og húsbúnaði yrði meiri en nú.
Frá þessari vinnustofu ættu að koma þau áhrif, að
meiri festa og stíll yrði í klæðnaði fólks og gerð hús-
gagna. Þá ætti að stefna að því, að framleiða seljan-
lega vöru.
Þá er garðræktin. Með tiltölulega litlum kostnaði
mætti liafa smá-gróðrarstofu í kjallara hússins, sem
væri yljuð upp frá miðstöð þess, þar sem ekki væri