Skinfaxi - 01.11.1933, Page 12
92
SIvINFAXI
atvinnuvegi og sögu héraðsins ætti heima í safni þessu.
Yæri þetta hvorttveggja, myndun skemmtistaðar og
byggðasafn, tilvalið fræðslu- og skemmtistarf fyrir
unga fólkið.
Eg hygg að þessum málum yrði mikið gagn unnið
á þenna hátt, en þó einkum ef takast mætti, að vinna
æskuna til fylgis við þau og að meta gagnsemi þeirra og
þann menningarauka, sem það liefði í för með sér, að
koma þessum málum í fast liorf.
Um námskeiðin er það að segja, að þörfin er brýn
á þeirri fræðslu, sem verður að vera samfara þeim
breytingum, sem gera þarf á búnaðarháttum og lífs-
venjum þjóðarinnar, sem svo mjög er nú um talað, og
það ekki að ófyrirsynju. Til þess eru námskeið vor og
liaust hentug, t. d. í garðyrkju, matargerð, gerð fata,
húsbúnaðar, áhalda og ýmiskonar heimilisiðnaðar. Þá
mætti og iðka allskonar íþróltir í sambandi við skóla-
slarfið og námskeiðin, eftir þvi sem skilyrði væru til.
Þá eru þau félög, sem starfa innan liéraðsins, svo sem
búnaðarfélög, ungmennafélög og kvenfélög. Slarfsemi
þeirra yrði mjög tengd við lieimili þetta, því að sú starf-
semi, er eg hefi lalað um hér að framan, yrði auðvitað
liorin uppi af þessum félögum, en nauðsynlegt er að
skipuleggja félögin og starf þeirra. Skipulag þetta gæti
auðvitað orðið með ýmsu móti. Skal ekki um það rætt
út af fvrir sig, en nauðsynlegt virðist, að verkaskipting-
in sé greinilegri, að starfshóparnir skipti umbótamál-
unum mcð sér og vinni að þeim eftir fastri, fyrirfram
ákveðinni áætlun. Hygg cg heppilegt að stefna að því,
að þessi mál yrðu unnin og leyst í nánu sambandi við
starfsemi skólaheimilisins, bæði vegna heimilisins
sjálfs og félaganna. Með því yrði þetta starfs- og skóla-
heimili miðstöð fræðslu og allra samtaka, sem miðuðu
að menningu og lieill héraðsins.
Einn Jjáttur jiessara samtaka eru skemmtanir. Þarf
ekki að fjölyrða um nauðsyn þeirra og uppeldisáhrif, ef