Skinfaxi - 01.11.1933, Side 13
SKINFAXI
93
rétt er á haldið. Þeim þarf að beina í holla og rétla átt.
Yfirleitt er árangur náms og starfs oft hin beztu
skemmtiatriði. I sambandi við slíkar skemmtanir eru
óteljandi tækifæri til að vinna i þágu fræðslu- og félags-
mála og að menningu liéraðsbúa. Prúð framkoma, ein-
urð, og sú göfuga kennd, að geta glaðzt með glöðum, fær
alltaf að prófast á slíkum stundum. Eitt af því, er eg
gat um áðan, var að nota mætti heimili þetta til dvalar
Larna úr kaupslöðum og sjávarþorpum á sumrin, við
nám og vinnu. Einkum í hinum stærri kaupstöðum
iandsins vaxa upp hörn, sem vantar skilyrði til dvalar í
sveit. Það eru veikluð börn, og það eru börn, sem á ein-
hvern hátt þurfa þess með, að auka andlegaoglíkamlega
lieilbrigði sína við vinnu og góð lifsskilyrði. Eða barna-
hópar sem dveldu þar tíma og tíma sér til hressingar,
við íþróttanám, þar sem jarðhiti væri. Auðvitað yrði
þetta helzt í námunda við kaupstaðina, til dænhs á
Suðurlandsundirlendinu fyrir Reykjavík, Hafnarfjörð
og Yeslmannaeyjar, á Reykjanesi við Isafjarðardjúp
fyrii' Vestfirði, í Eyjafirði fyrir Akureyri og Siglu-
fjörð, á Fljótsdalshéraði fyrir Austfirði. Þörfin á meira
sólskini, hreinu lofti, eða með öðrum orðum aukinni
lireysti barna vorra, er ómótmælanleg.
Þegar velja skal stað í héraðinu fyrir heimili þetta,
er sjálfsagt að það sé við jarðhitasvæði, ef til er. Ann-
ars þar sem möguleikar eru til raforku, þótt ekki væri
hægt að ráðast í þær framkvæmdir strax í byrjun.
Vanda verður til landkosta, því að nauðsynlegt er, að
búskapur sé rekinn í sambandi við heimilið, og einnig
þarf gott land til þeirrar garðyrkjustarfsemi, er eg gat
um liér að framan. Það fer að líkum, að svona marg-
brotin starfsemi þarf allmikil húsakynni, og er þá þess
að gæta, að húsakynnin séu nægjanleg og hentug fyr-
ir þessa starfsemi, og þrátt fyrir það verði kostnaður
viðráðanlegur. Þórir Raldvinsson hyggingafræðingur í
Reykjavík hefir gert uppdrátt að starfs- og skólaheimili,