Skinfaxi - 01.11.1933, Síða 14
94
SIvINFAXI
sem sniðinn er eftir þvi fyrirkomulagi, sem eg liefi nú
verið að lýsa. Húsið er 13,40 m. á lengd og 9,80 m.
breitt, tvær hæðir, óg kjallari undir rúmum lielmingi
þess. í kjallara eru: Þvottaliús, miðstöð og þurrkliús,
eldiviðarklefi, tvær geymslur, gróðrarslofa, böð, sal-
enh og handlaug í tveim klefum. Á fyrstu hæð er rúm-
góð forslofa, skólastofa, borðstofa, vinnustofa, eldhús,
búr og bakdyragangur. Færanlegt skilrúm er á milli
skólastofu og borðstofu, og er það einnig hugsað sem
samkomusalur. Einnig er færanlegt skilrúm í vinnu-
stofu og má skipta lienni í tvennt, smíða- og tóvinnu-
stofu (sjá myndir). , í '
Á efri hæð er íhúð forstöðumanns, tvö svefnher-
hergi skólaharna og auk þess tvö smáherbergi. Heima-
vistin er fyrir 20 börn. Iiús þetta getur ])Ví með lagni
nokkurnveginn fullnægt þeirri starfsemi, sem eg hefi
gert hér að framan að umtalsefni. Ef heimilið væri
reist fyrir fleiri hréppa, yrði það ef til vill að vera
nokkru stærra. Tilhögun gæti auðvilað verið nauðsyn-
legt að breyta eftir því livort hverahiti væri eða ekki,
og eftir ýmsum öðrum aðstæðum. Aðalkostur þessa
uppdráttar er sá, að ekkert rúm fer til ónýtis og fær-
anlegu skilrúmin gera það kleift, að nota herbcrgin til
ldílar. Það er að vísu allmikill galli, að þurfa að nola
skólastofu fyrir funda- og skemmtanastað. Yrði það
að vera í fullu samráði við forstöðumann heimilisins,
enda mætti þá síðar hyggja sérstaklega yfir þessa starf-
semi, ef nauðsyn krefði.
Áætlaður kostnaður við byggingu þessa húss er 27
þúsund krónur. Þar af er aðkeypt efni, samkvæmt út-
reikningi, um 14 þúsund krónur. Innlent efni og öll
vinna 13 þúsund krónur. Samkvæmt lögum um heima-
vistarskóla leggur ríkið fram lielming stofnkostnaðar
scm styrk. Lætur þá nærri að styrkurinn nægi fyrir að-
keyptu efni. Sá hlutinn, sem skólahéraðið leggur þá
til, er innlenda efnið og öll vinnan, sem annaðhvort