Skinfaxi - 01.11.1933, Blaðsíða 17
SIvINFAXI
97
að vera rannsóknarefni allra starfandi kennara. Það
á að vera kappsmál forvígismanna þjóðarinnar, að
það geti tekizt sem bezt, og það er brennandi áhuga-
mál allra hugsandi forcldra, sem vilja hamingju barna
sinna.
Skólunum er eklcert óviðkomandi. Þess vegna þurfa
kennarar, t. d. við heimavistarskóla í sveit, að hafa
fullan skilning á og kunna til starfa, sem þar mega
koma að gagni, svo sem garðrækt, meðferð alifugla,
skinnasútun og ýmiskonar heimilisiðju. Eg hefi eink-
um gerl að umtalsefni fræðslumál sveitanna og nefnt
nokkuð af því, sem mér finnst að mætti koma. þar
að gagni, svo að fræðslan gæti verið hagnýt. 1 þessu
efni hafa skólarnir að vísu, bvar sem er, sama hlut-
verk að vinna. En það verður alltaf með nokkuð ólik-
um iiætti, hvernig unnið er — fer það eftir þörfum
á hverjum stað. T. d. er i þessu efni um allverulegan
mismun að ræða á fræðslu i sveit og kaupstað.
Að lokum þetta. Þótt kreppan hindri nú framkvæmd-
ir og hvers konar viðleitni til menningar, líkt og vor-
liretin, seni hafa stundum leikið nýgræðinginn svo
grátt, þá skyldum vér gæta þess, að láta ekki núver-
andi erfiðleika verða því valdandi, að vér gleymdum
eða liirðum ekki um að hlúa að dýrmætasta gróðrin-
um — börnum vorum og æskulýð, heldur reynum af
fremsta megni að skapa þeim skilyrði til vaxtar og
þroska og vaka yfir framtíð þeirra og liamingju.
Aðalsteinn Eiríksson.
Eftirmáli.
1 framanrita'ðri grein er lagt glæsilegt verkefni fyrir U. M.
F. í sveitum landsins. Margþætt verkefni, sem engum liggur
nær en félögunum að vinna fyrir og afla fylgis, ef þau eiga
þann kjark og kraft, sem heimta ber af þeim. Mundu þau
vaxa mjög og eflast á að koma upp i átthögum sinum sliku
menningarsetri, sem að framan er lýst.
Fræðslumálastjórnin hefir fallizt á tillögur höf. Nú i sum-
ar er reist skólahús á Rangárvöllum, eftir uppdrætti þeim,
b