Skinfaxi - 01.11.1933, Blaðsíða 18
98
SKINFAXI
sem hér er sýndur, og verður starfað þar eftir hugmynd
A. E. Næsta ár er í ráði, að reisa skólaheimili eftir tillög-
um þessum í Reykjanesi við ísafjarðardjúp, og stendur til
að A. E. veiti þeim skóla forstöðu. Fæst þá reynsla á þess-
um tveimur stöðum, að reisa á fyrir þá, sem á eftir koma.
Eg veiti U. M. F. með ánægju upplýsingar og aðstoð, ef
þau taka mál þetta fyrir. Ritstj.
Ví gsla.
(Tileinkað íþróttafél. Stefni í Súgandafirði, við sundlaugar-
vígslu sumarið 1933).
Nú angar af sumri um Súgandafjörð —
og sólin blessar þann reit,
en fögur og stolt halda fjöllin vörð
og friðsæla vernda sveit,
því vindar blása um hauður og haf,
en liérna er oft svo rótt.
Hér er glur frá öllu, sem andar og hrærisl
og indæl vorsins nólt.
Nú angar af sumri um allt vort land.
Nú gngist hver leitandi sál,
því vaxandi þróttur og vaknandi líf
loks vekur stórhugans bál.
1 eldinum þeim skírist allt lil vaxtar
og ástar á framtíðar mált, —
og bálið verður að blossandi vita,
sem bendir i sólarátt.
Hér eru menn, sem horfa og stefna
og luigsa í sólarátt —
leitandi menn, með Ijóma í augum
og logandi æskumátl.