Skinfaxi - 01.11.1933, Síða 21
SKINFAXI
101
ust frá Noregi að lieita má á sama tíma, svo að stofn-
mál beggja landa hefir verið hið sama. En færeyska
hefir tekið dálilið meiri breytingum frá forn-norsku
en íslenzka, og þær hreylingar hafa orðið i ýmsum
alriðum eftir öðrum lögmálum. Auðvitað eru færeysku
lögmálin jafn réttliá í færeysku, eins og íslenzku lög-
málin í voru máli. Tunga vor nútíðar-lslendinga er
hin sama og Úlfljótur sagði lög á og' Egill talaði, en
V. U. Hammershaimb. Jakob Jakobsen.
nú hefir hún bætt við sig lögmálsbundinni þúsund árg
þróun. Mál nútíðar-Færeyinga er og liið sama, með
jafnlanga þróun og lögmálsbundna, en aðra. Færeyska
er rökrétt mál og sjálfu sér samkvæmt. Þess vegna er
rangt að kalla hana hrognamál, þóll þeim kunni að
finnast hún það, sem eigi hafa kynnzt henni nóg til
þess, að finna lög hennar. Hitt er fávíslegt, að kalla
liana afbökun af nútíðarmáli voru, þar sem lnin er
ekki af því komin.
Sannleikurinn er sá, að hver, sem les tungu Færey-
inga ofan í kjölinn, hlýtur að dást að lienni fyrir
margra hluta sakir, og menningu þeirri, sem við hana
er tengd. Um málfræðilega samkvæmni, mýkt, heyg-