Skinfaxi - 01.11.1933, Page 29
SKINFAXI
109
þessi, sem danskur guðfræðingur vann að, var mjög
ófullkomin að visu, en nægði þó lil að vekja athygli
á kvæðunum. Var nú tekið að gera gangskör að, að
rita þau upp og safna saman. Voru það færeyskir al-
þýðumenn, sem langdrýgst verk unnu að uppskrift
kvæðanna. Mun nú fyrir nokkru vera skrifað allt það,
sem til er manna á meðal, en það er allvöxtulegt safn,
tins og þegar er getið. Stærsta og merkasta útgáfa af
J. II. O. Djurhuus. Hans A. Djurhuus.
kvæðunum er sú, sem J ó a n n e s Pa t u r s s o n hef-
ir unnið að, en Lögþing Færeyinga kostað.
Framan af skrifuðu menn kvæðin upp eftir fram-
burði. Nú má heila, að sín mállýzka sé á liverri ey.
Varð þvi harðla lítið samræmi i stafsetningunni, og
fundu menn snemma til, að bæta þurfti úr því. Það
gerði svo Vencelaus Ulricus Hammershaimb, síðar
prófastur. Hann samdi fyrstu heilstevpta málfræði
færeyskrar tungu, og var hún prentuð 1854.
Hammershaimb kynntist ýmsum Islendingum,
m. a. Jóni Sigurðssyni, á háskólaárum sínum í Höfn,
og hafði numið af þeim íslenzku. Kom það honum að
miklum notum. Hammershaimb ritar orðin eftir upp-