Skinfaxi - 01.11.1933, Side 32
112
SKINFAXI
Þeim, sem kynnast vilja nýrri, færeyskri ljóíSagerð,
mun vera heppilegast að ná í „Songbók Föroya fólks“
og litla sýnisbók, sem lieitir „Nýföroyskur skaldskap-
ur“.
Allmörg leikrit og fáeinar skáldsögur hafa Færey-
ingar eignazt. Skáldsögurnar eru: „Bábelstornið“ og
smásögusafnið „Glámlýsi“ eftir Regin í Líð, en undir
því dulnefni skrifar Rasmus Rasmussen lýðskólakenn-
ari. „Beinta“ og „Marita“ eftir Hans A. Djurhuus. „IJr-
valsrit", aðallega prýðilegar smásögur, eftir M. A. Win-
ther. „Lognbrá“ (isl. hilling) eftir Heðin Brú, en það er
dulnefni Hans Jakobs Jakobsens búfræðikandidats. All-
ar eru sögurnar læsilegar, eigi sízt liin siðasttalda, sem
er listaverk að stíl og máli, og mætti hún vel hljóta út-
breiðslu hér á landi. Merkustu leikritin munu vera:
„Hövdingar liittast“ eftir Regin í Líð, „Páll fangi“ eftir
Louis Zachariasen verkfræðing, „Vár“ eftir Símun av
Skarði, leikir Rasmusar Effersö, og svo sorgarleikurinn
„Ranafelli“ eftir William Heinesen, er sýndur var í
Reykjavík í fyrravetur. Hann er frumritaður á dönslcu,
og mun Heinesen vera eini Færeyingurinn, er skáldrit
semur á þvi málL
Eðlilega er ekki um auðugan garð að gresja af öðr-
um bókum en skáldritum á færeyska tungu. Merkast
fræðirit er bók dr. Jakobs Jakobsens um þjóðhetju
Færeyinga, Nolsoyar-Pál, enda er það prýðilegt vísinda-
rit, æfisaga Páls og útgáfa af ljóðum hans. Góð fær-
eysk málfræði er til eftir Jákup Dahl prófast og fær-
eyslc-dönsk orðabók eftir Chr. Matras magister og M. A.
Jakobsen bókavörð. Allt Nýja teslamentið, Davíðs
sálmar, Orðskviðirnir og Prédikarinn er til í færeyskri
þýðingu, að mestu eftir Dald prófast, og er hver bólc
gefin út sér. Þá er til lítil Færeyjasaga eftir H. A.
Djurhuus, ágæt Færeyjalýsing eflir Mikkjal skáld á
Ryggi, þjóðsagnasöfn, lesbækur fyrir börn og skóla-
fólk og margar bækur fleiri, sem of langt yrði hér