Skinfaxi - 01.11.1933, Síða 55
SKINFAXI
135
skoðun þess skipulags, sem við eigum við að búa. Við
eigum að þora að horfast í augu við þessa staðreynd
og taka á þeim vandamálum, sem samtíð og framtið
krefja olckur úrlausnar um, eins og einörðum, mennt-
uðum mönnum sæmir, með stillingu, einurð og full-
um kjarki.
Eg hefi áður i þessu riti látið nokkuð i ljós álit
mitt á U. M. F. Ef til vill liefi eg efazt nokkuð um
framtíð þeirra. Eg skal játa, að eg hefi skipt um skoð-
un á því máli.
Eg trúi því, að U. M. F. eigi eftir að rísa upp aft-
ur, sem félagsskapur vondjarfrar og viljasterkrar al-
þýðuæsku, rísa upp með nýjum þrótti, nýjum vonuin
og nýjum viðfaugsefnum.
Eg' trúi þvi, að inn í félögin komi hreinna loflslag,
meira hispursleysi i hugsun og skarpari gagnrýni á
mannlegum högum.
Eg trúi því, að þau eigi eftir að varpa af sér álaga-
liam borgaralegrar hræsni. Eg trúi því, að þau fái
litið viðfangsefni samtíðar sinnar i heiðríkju þess hug-
arfars, sem hlífðarlaus, kaldræn gagnrýni ein fær
skapað.
Eg trúi þvi, að þau eigi eftir að verða skóli þeirr-
ar alþýðuæsku, sem v e i t að hún er hin ráðandi stétt
hessa lands; sem veit að h e n n a r, en ekki mann-
anna, sem standa á tindinum með Jósafat á milli sin,
er „ríkið, mátturinn og dýrðin“.
7. maí 1933.
Skúli Guðjónsson.