Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1933, Page 63

Skinfaxi - 01.11.1933, Page 63
SKINFAXI 143 huggað sig við dauðan bókstaf bindindisheitsins, en verða að leita huggunar í lifandi aðgerðum. Bindindis- málið er eftir sem áður eilt af aðalmálum samtaka vorra. Og þörfin á öflugu starfi er engu síður brýn nú en áður var. „Ef svo fer, sein þú telur liugsanlegt, að U. M. F. í. nemi bindindisskuldbindingu sína úr gildi, mun félag mitt a. m. k. hlusta eftir röddum um að kljúfa félags- skapinn“, segir áhugasamur félagi vestur á fjörðum i bréfi lil sambandsstjóra. Eg veit að slikt hvarflar að ýmsum, sem bindindismálið er viðkvæmt. En eg vona, að þeir góðu menn hugsi sig tvisvar um,iáður en þeir gripa til óyndisúrræða og gera óvinafagnað. Enginn bannar félögum þeirra að lialda skuldbindingunni í gildi framvegis, þó að sambandið heimti það ekki lengur. Hví skyldu þeir fyrirlíta og yfirgefa breisk bróðurfélög, þó að þau bogni fyrir ofureflinu og kannist við það, fremur en ef þau bogna og játa það ekki? Vita mega þeir og, að á erfiðum tímum er mest þörf sterkra manna og öflugra samtaka. —- Hér skal engu spáð um það, hver áhrif afnáms skuld- bindingarinnar kunna að reynast á líf og störf U. M. F. Svartsýnir nienn búast við drykkjuskap, svalli og hneykslum innan félaganna. Hamingjan forði oss frá slíku. Og eg er svo djarfur að vona, að með þessu kunni að liefjast ný vigöld U. M. F.. einmitt í bindindis- efnum og Bakkusarmótstöðu. Játa skal eg þó, að eg get ekki rökstutt þá von. En eg hcfi enn þá trú á drcng- skap og mannlund ungmennafélaga, þrátt fyrir allt, að eg held þeir kunni að taka upp á að forða félagsskap vorum frá drykkjuskaparhneykslum, þegar þeim er til slíks trúað án heilorðs og trygginga, þó að þeir brygð- ust, meðan þeim var ekki trúað ncma dreng'skapur þeirra væri að vcði. Athugaðu þetta, félagi, fyrir þitt leyti. V i 11 þ ú 1 e g g j a I i ð þ i 11 t i 1, a ð I e i ð a f é- lagsskap vorn með sæmd út úr öngþveiti

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.