Skinfaxi - 01.11.1933, Qupperneq 63
SKINFAXI
143
huggað sig við dauðan bókstaf bindindisheitsins, en
verða að leita huggunar í lifandi aðgerðum. Bindindis-
málið er eftir sem áður eilt af aðalmálum samtaka
vorra. Og þörfin á öflugu starfi er engu síður brýn nú
en áður var.
„Ef svo fer, sein þú telur liugsanlegt, að U. M. F. í.
nemi bindindisskuldbindingu sína úr gildi, mun félag
mitt a. m. k. hlusta eftir röddum um að kljúfa félags-
skapinn“, segir áhugasamur félagi vestur á fjörðum i
bréfi lil sambandsstjóra. Eg veit að slikt hvarflar að
ýmsum, sem bindindismálið er viðkvæmt. En eg vona,
að þeir góðu menn hugsi sig tvisvar um,iáður en þeir
gripa til óyndisúrræða og gera óvinafagnað. Enginn
bannar félögum þeirra að lialda skuldbindingunni í gildi
framvegis, þó að sambandið heimti það ekki lengur.
Hví skyldu þeir fyrirlíta og yfirgefa breisk bróðurfélög,
þó að þau bogni fyrir ofureflinu og kannist við það,
fremur en ef þau bogna og játa það ekki? Vita mega
þeir og, að á erfiðum tímum er mest þörf sterkra
manna og öflugra samtaka. —-
Hér skal engu spáð um það, hver áhrif afnáms skuld-
bindingarinnar kunna að reynast á líf og störf U. M. F.
Svartsýnir nienn búast við drykkjuskap, svalli og
hneykslum innan félaganna. Hamingjan forði oss frá
slíku. Og eg er svo djarfur að vona, að með þessu
kunni að liefjast ný vigöld U. M. F.. einmitt í bindindis-
efnum og Bakkusarmótstöðu. Játa skal eg þó, að eg get
ekki rökstutt þá von. En eg hcfi enn þá trú á drcng-
skap og mannlund ungmennafélaga, þrátt fyrir allt, að
eg held þeir kunni að taka upp á að forða félagsskap
vorum frá drykkjuskaparhneykslum, þegar þeim er til
slíks trúað án heilorðs og trygginga, þó að þeir brygð-
ust, meðan þeim var ekki trúað ncma dreng'skapur
þeirra væri að vcði. Athugaðu þetta, félagi, fyrir þitt
leyti. V i 11 þ ú 1 e g g j a I i ð þ i 11 t i 1, a ð I e i ð a f é-
lagsskap vorn með sæmd út úr öngþveiti