Skinfaxi - 01.11.1933, Blaðsíða 69
SKINFAXI
149
Félagsmál.
Látnir vormenn.
í sumar hafa látizt tveir menn, er staði'ð hafa í fremstu
röð ungmennafélaga, þeir Þorsteinn Friðriksson skólastjóri
í Vík í Mýrdal og Þorsteinn Þórarinsson bóndi á Drumb-
oddsstöðum í Biskupstungum. Ráðgert var, að greinar um
vormenn þessa birtust í þessu hefti Skinfaxa og liafði ritstj.
fengið ritfæra menn og kunnuga lil að skrifa þær. Því mið-
ur er livorug greinin tilbúin, en þær birtast í næsta hcfti.
Skattur
félaganna til IJ. M. F. í. lækkar um þriðjung um næstu ára-
mót, eða niður í eina krónu af félagsmanni, samkvæmt hin-
um nýju sambandslögum. Lögin mæla svo fyrir, að skattur
skuli greiddur vcra fyrir febrúarlok ár hvert, og er liér meo
brýnt fyrir félagsstjórnum, að láta greiðslu eigi dragast yfir
þann tíma. Allar greiðslur óskast sendar gjaldkera, Rann-
veigu Þorsteinsdóttur, Þórsgötu 26A, Reykjavík. — Sam-
kvæmt nýrri reglugerð kemur Skinfaxi út i tvcimur heft-
um á ári.
Aukafélagar U. M. F. f.
Nýju sambandslögin gera ráð fyrir, að gamlir ungmenna-
félagar og aðrir þeir, er tengdir vilja vera U. M. F. í., án
]>ess að véra starfandi félagsmenn neinnar deildar þess, geti
verið aukafélagar eða styrktarfélagar sambandsins, cf þeir
greiða því ö krónu árstillag eða 50 kr. æfitillag. Nú liefir
sambandsstjórn ákveðið, að iill gjöld aukafélaga og styrktar-
félaga renni í sérstakan sjóð, er varið verði til að verð-
launa þá menn, sem liel/.t eru til fyrirmyndar um að iðka
íþróttir þannig, að af því bljótist sem mcstur andlegur og
líkamlegur þroski.
Sambandsþing
U. M. F. í. var haldið í Þrastaskógi 25.—20. júni síðastL
Þingið sóttu 13 fulltrúar frá sex héraðssamböndum, sam-
bandsstjóri og nokkrir gestir. Þetta gerðist markverðast:
Sett voru ný sambandslög, og eru þau prentuð hér i heft-
inu. Helztu breytingar frá frumvarpi því, er lengi hefir lcgið
fyrir, eru þær, að skuldbindingin cr felld niður og skatt-
urinn lækkaður niður í kr. 1.00 af félagsmanni á ári. — Sam-