Skinfaxi - 01.11.1933, Page 71
SKINFAXI
151
starfsfólk skuli notaS i veitingahúsinu Þrastalundi, á landi
sambandsins. Einkum telur þingið erlendan þjón óviðeigandi
og i fullu ósamræmi við ákvæði leigusamnings um lóð undir
Þrastalund, þar sem fram er tekið, að rekstur gistihússins
skuli vera svo þjóðlegur, sem kostur er á.
Þingið samþykkir, að afhenda íþróttaskólanum í llaukadal
íþróttaskólasjóð U. M. F. í. til fullrar eignar, í viðurkenning-
arskyni fyrir starf lians í þágu ungmennafélaganna.
Sambandsþing U. M. F. í. 1933 samþykkir að kjósa Guðmund
Jónsson frá Mosdal heiðursfélaga sambandsins.
í sambandsstjórn voru kosin: Sambandsstjóri Aðalsteinn
Sigmundsson, Reykjavík. Ritari Daniel Ágústínusson á Eyrar-
bakka. Gjaldkeri Rannveig Þorsteinsdóttir, Reykjavík. — D. Á.
er yngsti maður, sem átt hefir sæti í sambandsstjórn, 19 ára.
U. M. F. Eyrarbakka
starfaði með líkuin hætti árið 1932 og að undanförnu.
Fundir eldri deildar voru 10 og álíka margir í yngri
deild. Á eldri deildar fundum var rætt um stefnuskrármál
U. M. F. og sérmál félagsins og nokkur erindi flutt. Funda-
sókn var sæmileg, en þó vildi það brenna við, að lítil þátttaka
væri í umræðum. Það er mein hjá U. M. F. E. sem viða ann-
arsstaðar, að menn „koma sér ekki til“ að standa upp á fund-
um og halda ræður. Nokkrir fundanna voru ágætir, og mætti
nefna sem dæmi 12 ára afmælisfund 5. maí. Á þeim fundi
voru mættir 22 gestir úr þremur félögum: „Velvakandi" i
Reykjavik, „Afturelding" í Mosfellssveit og „Dreng“ í Kjós.
— Á þeim fundi fór fram það, sem hér segir:
1. Fundarsetning. — Ávarp formanns.
2. U. M. F. E. 12 ára: Sig. Kristjáns.
3. Uppeldisleg áhrif U. M. F. E.: Aðalst. Sigmundssón.
4. Framtíðarstörf U. M. F. E.: Pétur Gíslason.
5. Yngri deildin og áhrif hennar: Leifur Haraldsson.
0. Frá U. M. F. Velvakandi: Ólafur Þorsteinsson.
7. Frá U. M. F. Afturelding: Grimur S. Nórðdahl.
8. Kynningarstarfsemi ungm.fél. o. fl.: Vigfús Jónsson,
form. U. M. F. E.
Þessi fundur er ekki fyrst og fremst tekinn sem dæmi til
að sýna mönnum fram á að svona séu nú fundir U. M. F. E.
fjölbrcyttir, heldur til að vekja athygli á einum lið i starf-
semi U. M. F. sem ekki hefir verið eins mikill sómi sýndur og
skyldi, en það er kynningarstarf semin eða heim-
sóknir félaganna hvers til annars. Af slikum heimsóknum