Skinfaxi - 01.11.1933, Side 76
156
SKINFAXI
þau mál, t. d. Lenin og Stalin. Þar eru yfirlit og tölur, sem
sýna geysi hraðfara þróun samyrkjunnar.
Síðari hluti bókarinnar er nokkurs konar ferðaminningar.
Er þar sagt frá ýrnsum lifnaðarháttum, lýst verksmiðjum,
barnaheimilum, barnaskólum o. fl. Af frásögninni má nokkuð
ráða, hvernig fræðslukerfið muni vera, og það, sem mestan
áhuga vekur i því sambandi er, hversu víðtækar og merkilegar
tilraunir hafa verið gerðar til að sameina fræðslu, líf og starf.
Verksmiðjan og skólarnir allir i sambandi við hana er sem
ein óslitin lieild. Síðast í hókinni er erindi það, sem Kiljan
flutti í útvarpið i Moskva s.l. haust.
Styr hefir staðið um llússland, meiri en nokkurt annað
land, síðustu 15 árin, eða síðan byltingin varð 1917. Dómar
hafa vægðarlaust verið kveðnir upp, bæði með og móti hinu
nýja skipulagi. Fregnir hafa verið litaðar. Hlutleysi er gjarn-
an látið víkja úr vegi fyrir hleypidómum, þegar kapp verður
í deilu. Hvernig sem dómar falla eða liverjar sem skoðanir
eru í stjórnmálum, mun marga fýsa að lesa ])essa bók og
sjá hvað Kiljan skrifar um þær stórfenglegu tilraunir, sem
gerðar hafa verið til endureisnar einvalds-kúgaðrar þjóðar, og
uppbyggingar nýs ríkis á nýjum grundvelli. Auðsætt er, að
höfundur er vinveittur Ráðstjórnarríkjunum, þó virðist ekki
hallað réttu máli. Eigi eru likur til, að aðrir hefðu gerr kynnzt
landi og þjóð á jafn skömmum tíma. Höfundur bókarinnar
er annars svo kunnur, að ekki er ástæða til að fjölyrða um
hann hér.
Eiríkur Baldvinsson.
Sambandslög U. M. F. í.
1. gr.
Sambandið heitir: Samhand ungmennafélaga íslands, —
skammstafað U. M. F. í.
2. gr.
Þau ungmennafélög geta verið i U. M. F. í., sem starfa eft-
ir þeirri stefnuskrá, er hér segir:
1. Að vinna að heill og framförum sjálfra sín og annarra,
og velferðarmálum lands og lýðs.