Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1933, Page 77

Skinfaxi - 01.11.1933, Page 77
SKINFAXI 157 2. Að hafa bindindi um nautn áfengra drykkja, og vinna á allan hátt a'ð útrýmingu þeirra úr landinu. Kjörorð U. M. F. í. er: íslandi allt. 3. gr. U. M. F. í. skiptist í héraðssambönd. Hvert U. M. F. er sjálf- rátt um, liverju héraðssambandi það fylgir. Eigi geta einstök félög verið í U. M. F. í. án milligöngu héraðssambands, nema sérstakar ástæður séu til og sambandsstjórn leyfi. Lög hér- aðssambanda og einstakra félaga skulu vera í fullu samræmi við sambandslög þessi. Inntökubeiðni héraðssambánds eða félags í U. M. F. í. skal fylgja eintak af lögum ]>ess. Sam- bandsstjórn úrskurðar inntöku. Hún hefir og rétt til að víkja félögum og héraðssamböndum úr U. M. F. í., ef hún telur það nauðsynlegt. 4. gr. Sérhver ungmennafélagi hefir málfrelsi og tillögurétt hvar sem er á samkomum ungmennafélaga, en cnginn má vera reglulegur félagi nema eins sambandsfélags. Allir ungmenna- félagar skulu þúast. 5. gr. Sambandsþing U. M. F. t. skal háð i júnímánuði þriðja livert ár í Þrastaskógi. Þó hefir sambandsstjórn vald til að velja annan þingstað, ef henni þykir áslæða til. Iléraðssam- bönd kjósa fulltrúa til sambandsþings, einn fyrir hvert stórt hundrað félagsmanna. Einstök félög, sem eru í U. M. F. í. án milligöngu héraðssambands, kjósa fulltrúa eftir sömu reglu. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á sambandsþingi, nema uin lagasetningu eða lagabreytingar sé að ræða; til þeirra þarf % greiddra atkvæða. Sambandsþing er lögmætt, cf mætt- ur er fullur helmingur fulltrúa þeirra, sem réttur er til að kjósa. Sambandsþing úrskurðar reikninga sambandsins og setur fjárlög. Það ræðir og ályktar um framkvæmdamál og önnur viðfangsefni sambandsins, og dæmir mál þau, sem skotið er til þess, frá sambandsstjórn eða héraðssamböndum. Það kýs sambandsstjórn, varastjórn og endurskoðendur. (i. gr. Sambandsstjórn er skipuð þremur mönnum, sambands- stjóra, ritara og gjaldkera. Iiún stýrir málefnum sambands- ins milli ])inga, cftir þvi sem lög og þingsamþykktir mæla

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.