Skinfaxi - 01.11.1933, Síða 77
SKINFAXI
157
2. Að hafa bindindi um nautn áfengra drykkja, og vinna
á allan hátt a'ð útrýmingu þeirra úr landinu.
Kjörorð U. M. F. í. er: íslandi allt.
3. gr.
U. M. F. í. skiptist í héraðssambönd. Hvert U. M. F. er sjálf-
rátt um, liverju héraðssambandi það fylgir. Eigi geta einstök
félög verið í U. M. F. í. án milligöngu héraðssambands, nema
sérstakar ástæður séu til og sambandsstjórn leyfi. Lög hér-
aðssambanda og einstakra félaga skulu vera í fullu samræmi
við sambandslög þessi. Inntökubeiðni héraðssambánds eða
félags í U. M. F. í. skal fylgja eintak af lögum ]>ess. Sam-
bandsstjórn úrskurðar inntöku. Hún hefir og rétt til að víkja
félögum og héraðssamböndum úr U. M. F. í., ef hún telur
það nauðsynlegt.
4. gr.
Sérhver ungmennafélagi hefir málfrelsi og tillögurétt hvar
sem er á samkomum ungmennafélaga, en cnginn má vera
reglulegur félagi nema eins sambandsfélags. Allir ungmenna-
félagar skulu þúast.
5. gr.
Sambandsþing U. M. F. t. skal háð i júnímánuði þriðja
livert ár í Þrastaskógi. Þó hefir sambandsstjórn vald til að
velja annan þingstað, ef henni þykir áslæða til. Iléraðssam-
bönd kjósa fulltrúa til sambandsþings, einn fyrir hvert stórt
hundrað félagsmanna. Einstök félög, sem eru í U. M. F. í. án
milligöngu héraðssambands, kjósa fulltrúa eftir sömu reglu.
Afl atkvæða ræður úrslitum mála á sambandsþingi, nema
uin lagasetningu eða lagabreytingar sé að ræða; til þeirra
þarf % greiddra atkvæða. Sambandsþing er lögmætt, cf mætt-
ur er fullur helmingur fulltrúa þeirra, sem réttur er til að
kjósa.
Sambandsþing úrskurðar reikninga sambandsins og setur
fjárlög. Það ræðir og ályktar um framkvæmdamál og önnur
viðfangsefni sambandsins, og dæmir mál þau, sem skotið er
til þess, frá sambandsstjórn eða héraðssamböndum. Það kýs
sambandsstjórn, varastjórn og endurskoðendur.
(i. gr.
Sambandsstjórn er skipuð þremur mönnum, sambands-
stjóra, ritara og gjaldkera. Iiún stýrir málefnum sambands-
ins milli ])inga, cftir þvi sem lög og þingsamþykktir mæla