Skinfaxi - 01.11.1933, Síða 79
SKINFAXI
159
gr. og liafa réttindi og skyldur samkvæmt 4. gr. Þeir fá
Skinfaxa ókeypis. Rétt er þó, að þeir vinni fyrir samband-
ið þau störf ein, er þeir lcjósa sjálfir.
Sambandsþing getur kjörið heiSursfélaga U. M. F. í. þá
menn, er unnið hafa ungmennafélagsskapnum óvenju mikið
gagn, eða þingið vill veita sérstaka sæmd fyrir ágæt störf
í anda U. M. F. í. Heiðursfélagar hafa öll réttindi ungmenna-
félaga, en eru sjálfráðir Um skyldur.
10. gr.
Sambandslög þessi öðlast þegar gildi. Eru þar með eldri
sambandslög og þingsályktanir úr gildi numin.
Reglugerð fyrir Skinfaxa.
1. gr.
Skinfaxi er málgagn U. M. F. í., gefinn út samkvæmt 8. gr.
sambandslaga þess.
2. gr.
Tilgangur Skinfaxa er sá, að vera tengitaug og boðberi
milli islenzkra ungmennafélaga, ræða hugsjónir þeirra og
framkvæmdamál, hvetja, fræða og leiðbeina um störf og
hag sambandsins og deilda þess, og veita auk þess, svo sem
rúm leyfir, skemmtun og fræðslu um almenn efni við hæfi
æskumanna.
3. gr.
Skinfaxi kemur út tvisvar á ári, 5 arlcir í senn. Skal vanda
til hans svo sem má, um efni og ytri frágang.
4. gr.
Sambandsstjórn hefir umsjón með útgáfu Skinfaxa, ræður
honum ritstjóra og afgreiðslumann, og semur við þá um laun
fyrir störf þeirra. Ritstjóri ber ábyrgð á efni Skinfaxa að
lögum og sér um, að það sé í samræmi við tilgang ritsins,
sambandslög og hugsjónir U. M. F. í. Afgreiðslumaður sér
um að hvert hefti ritsins sé sent öllum þeim, sem eiga að fá
það, jafnskjótt og það er komið út. Hann heimtir inn and-
virði ritsins hjá utanfélagsmönnum og verð fyrir auglýsingar,
er birtast í ritinu, og stendur gjaldkera skil á því.