Skinfaxi - 01.11.1938, Blaðsíða 74
154
SKINFAXl
ergja okkur, vesœla fyrrverandi starfsbræður sína, með þvi
að veifa framan í strákana annarri stafsetningu en okkur
er uppálagt að kenna þeim.
Skíðabókin. Rvík 1938. Bókaverzlunin Mímir h.f. 170.
bls. Kr. 5.00.
íslenzka ungmennafélaga og aðra, sem iðka iþróttir á eigin
spýtur, í strjálbýli, við litla eða enga tilsögn, skortir tilfinn-
anlega íþróttabækur, sem þeir geti sótt i leiðbeiningar. Glímu-
bók Í.S.Í. og Útiíþróttir, sem l.R. gaf út fyrir nokkrum ár-
um, hafa unnið mikið gagn, livor á sínu sviði. Hér bætist
við þriðja bókin, um iþrótt, sem nú nýtur mikillar og verð-
ugrar athygli hér á landi, enda er hún meðal þeirra íþrótta,
sem oss mega verða til mestra gagnsmuna og heilsubótar.
Skíðabókin er norsk. Hefir Skíðaiþróttasamband Norðmanna
látið semja hana, en þeir Steinþór Sigurðsson magister og
Jón Sigurðsson skólastjóri hat'a þýtt hana á íslenzku. Iier-
mann Jónasson forsætisráðherra hlutaðist til um, að ráðizt
var í útgáfuna, og skrifar formála bókarinnar. Segir hann
þar m. a.: „■.... Aðferðin, sem höfð var við samningu bók-
arinnar, er mikil trygging og meðmæli. Ritnefnd sambands-
ins fékk um 20 Norðmenn, sem hún taldi hæfasta, til að rita
bókina. Ritar hver þeirra um það svið, sem hann er sérfróð-
■ur á. Voru aðaldrög hennar samin fyrir Olympíuleikana
1936, til leiðbeiningar hinum norsku þátttaköndum i vetrar-
íþróttum. — Mun skiðaiþróttasambandið telja bókina þá beztu
leiðbeiningu, sem það getur gefið norskum skíðamönnum. Á
þar að vera saman kominn í stuttu máli hinn fullkomnasti
fróðleikur, sem Norðmenn eiga yfir að ráða i þessum efnum.“
Bókin hlýtur að vera Umf. kærkomin.
Menningar- og fræðslusamband alþýðu heitir félagsskapur,.
sem nýlega hefir verið stofnaður fyrir forgöngu verkalýðs-
samtakanna. Á hann að annast margháttaða menningarstarf-
semi meðal almennings, m. a. bókaútgáfu. Fyrst um sinn ætl-
ar sambandi að gefa út fjórar úrvalsbækur á ári, skáldrit
og fræðibækur, einkum þýðingar. Verða þær seldar mjög ó-
dýrt áskriföndum, eða kr. 8.00 allar ársbækurnar. Fyrstu
bækur sambandsins eru nú í þann veginn að koma út. Hafa
verið valdar í fyrsta árganginn: Svartfugl, ein bezta bók
Gunnars Gunnarssonar, Sælueyjan eftir August Strindberg,
Verkalýðshreyfing nútímans, eftir Finn Moe, og Lönd og ríki,
þekkt bók um hagfræðilega landafræði, eftir J. F. Hobrabin.
— Formaður sambandsins er Ármann Haildórsson magister.