Skinfaxi - 01.11.1938, Blaðsíða 58
138
SKINFAXI
fylgjast vel með allri íþróttastarfsemi í skólum
landsins og sjá svo um, að íþróttir séu ekki van-
ræktar í skólunum. Einnig, að þar sé veitt sem
fullkomnust fræðsla í lieilsufræði.
III. a. íþróttakennurum sé sett að skilyrði að
kunna ísl. glímu og geta kennt liana sem aðrar
íþróttir. Ennfremur að þeir séu bindindissamir
um allar skaðræðisnautnir.
b. Þingið skorar á öll félög innan U. M. F. í
að greiða sem bezt fyrir störfum íþróttamála-
nefndar, eftir því sem til þeirra verður leitað.
c. Sambandsþingið felur sambandsstjórn að
vinna að því, að U. M. F. I. geti sem lieild gengið i
íþróttasamband Islands.
d. Þingið samþykkir, að efnt verði til alls-
herjarmóts innan U. M. F. I. 1910 og verði mótið
liáð á Akureyri. Þriggja manna nefnd verði þegar
kosin til undirbúnings þessa máls og starfi hún
í samráði við stjórn U. M. F. I.
I sambandi við tillögur þessar má geta þess
að vel er séð fyrir málstað U. M. F. I. í íþrótta-
málanefndinni þar sem ritstj. Skinfaxa á þar sæti. í
sambandi við c. till. er þess að geta, að stjórnin liefir
atriði það, er þar getur, til meðferðar. 1 nefnd samkv.
<I lið voru kosnir: Sigurður Greipsson, Haukadal, Geir
Jónasson, Akureyri, og Kjartan Sveinsson, Hvanneyri.
Flugmál. í þeim var eftirfarandi tillaga samþykkt:
Þingið lítur svo á, að flugmál og flugsamgöng-
ur verði svo þýðingarmikill þáttur i lífi þjóðar-
innar, að æskilegt sé, að ungmennafélögin veiti
þeim liðveizlu á einbvern hátt. Og samþykkir í
þvi skyni eftirfarandi:
I. að einstök félög taki flugmál til meðferðar
og umræðu á fundum sínum, auki þekkingu
manna á þeim og greiði fyrir og leiðbeini áhuga-
mönnum á félagssvæðum sínum.