Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1938, Page 17

Skinfaxi - 01.11.1938, Page 17
SKINFAXI 5)7 beilt, að stöðva uppblástur, livar sem liann myndast, og veita auðnunum skilyrði til að gróa upp. 2. Umf. i liéröðum, þar sem uppblástrar gerast eða sandfok eru, geta beitt sér fyrir frjálsum vinnufram- lögum félagsmanna og annarra, til heftingar uppblæstr- inum og græðslu auðnanna. Um allt slíkt ber þeim auðvitað að vera í samvinnu við sandgræðslustjórann. -— Þá geta félög á slíkum stöðum unnið mjög þarft verk með því, að breiða út þekkingu og skilning á sandgræðslustarfseminni, t. d. nauðsyn algerðrar frið- unar, og efla velvildarhug til starfseminnar og vilja til að styðja hana. 3. Félög á stöðuin, þar sem atvinnuleysi er meðal unglinga, gætu beitt sér fyrir þegnskaparvinnu þeix-ra æskumanna, sem ekki fá launaða atvinnu, við að gi-æða upp sanda. Mælti jafnvel hugsa sér, að unglingar gætu sumstaðar skapað sér atvinnu við að í-ækta kartöflur á sandgræðslusvæðum. Þær þrífast, svo sem kunnugt er, bezt í sandjörð. En ennþá ríkir það hneykslunará- standi í landinu, að vér kaupum inn frá útlöndum kar- töflur fyrir upphæðir, senx skipta hundruðum þúsunda ái'lega, og étum þó minni kartöflur hlutfallslega en aðrar þjóðir. Ungmennafélagsskapurinn í Reykjavík á að taka þetta síðast nefnda atriði lil rækilegrar íhugunar — og framkvæmda. Mætti það verða félaginu til sæmdar- auka og virðingar, og veruleg bót á atvinnuleysi ungl- inga í bænum, ef vel er á haldið. Suður á Reykjanes- skaga, milli Sandgei'ðis og Býjarskers, er sandgræðslu- girðing. Þar væri hægt að fá vel fallið land lil kartöflu- ræktar. Til áburðar er vafalaust hægt að fá fiskiúr- gang í Sandgerði, þang og jxara o. fl. Upixskei'an, ásamt kartöfluverðlaununum, ætti að gela veitt nokkrum tug- um unglinga sæmilegan sumarafrakstur. Og um leið mundi slik ræktun hjálpa sandinum til að gróa upp. 7

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.