Skinfaxi - 01.11.1938, Blaðsíða 26
106
SKINFAXI
Prófessor dr. Richard Beck:
Skáldið og maðurinn
Matthías Jochumsson.
„Þökk fyrir handslagið
hlýja!“ Með þeim orðum
byrjar séra Matthías kvæði
til athafnamannsins og
drengskaparmannsins Ottó
Watline. Þau ummæli eiga
framúrskarandi vel við
sjálfan hann. Hverjum
þeim, sem kynntist honum
persónulega, mun minnis-
stætt óvenjulega fast og
hlýtt liandtak hans. Og lilý-
leikinn, sem streymdi úr
m j úkum h j arnarhrammi
hans, þegar hann heiisaði
eða kvaddi, var sömu ætl-
ar og heitur undirstraum-
ur vonhýrra og kærleiksríkra ljóða hans, sprott-
inn upp af bjartsýni hans og hjartahita. En kvæði hans
eru löngum sem framrétt bróðurhönd, boðberi sam-
úðar og sameiningar. Með þau og lifsstarf hans í huga,
getum vér því sagt hildaust og einum rómi: „Þökk
fyrir handslagið hlýja!“
En það var í'leira en framúrskarandi hlýleikinn, sem
gerði séra Matthías ógleymanlegan, öðrum mönnum
fremur, hverjum, sem kynntist honum að nokkru ráði.
ÖIl persóna hans studdi að þvi. Ljóslifandi stendur
liann mér fyrir hugarsjónum: Mikilúðlegur og garps-
legur; „goðum líkur .... að svip og vexti til að sjá“,
eins og hann sagði uin Snorra Sturluson; leiftursnör
Dr. Richard Beck.