Skinfaxi - 01.11.1938, Blaðsíða 13
SKINFAXI
93
um í Miðfirði, og þar átti Gunnlaugur lieima, síðasta
tímann sem hann dvaldi i átthögum sínum. Á Söndum
er sandfok mikið og uppblástur, sem kunnugt er, og
þar kynnist Gunnlaugur fyrst þessu náttúrufyrirbrigði,
sem hann átti síðar svo langa viðureign við. Séra Þor-
valdur á Melstað vakti fyrstur atliygli liins unga manns
á fokinu og nauðsyninni á aðgerðum gegn því, og kann
það að liafa liaft áhrif til að kveikja þann áhuga, sem
Gunnlaugur liefir verið gæddur á þessu efni.
Haustið 1902 fór Gunnlaugur i Flensborgarskólann
i Hafnarfirði, og stundaði þar nám þrjá vetur, hinn
síðasta í kennaradeild skólans, og lauk kennaraprófi
1905. Hefir hann síðan gegnt kennarastörfum á vetr-
um, lengst af við skólana i Hafnarfirði. Síðan 1919
hefir liann verið fastur kennari við barnaskólann þar,
en kennt jafnframt við Flensbogarskólann.
Séra Magnús Helgason kom að Flensborgarskólan-
um sem kennari haustið 1904. Varð Gunnlaugur fyrir
sterkum áhrifum af honum, eins og fleiri. En það sýn-
ir álit M. H. á Gunnlaugi, og mannþekkingu lians um
leið, að hann valdi Gunnlaug til að veita sandgræðslunni
forstöðu. M. H. var þá í stjórn Búnaðarfélagsins, en
hún þurfti að senda mann utan til sandgræðslunáms.
Kom M. H. til Gunnlaugs, þar sem hann var heimilis-
kennari lijá Ágústi Flygenring, snemma vetrar 1905—
’OO, og falaði liann til ferðar þessarar og starfs. Varð
þetta að ráði, og fór Gunnlaugur utan í febrúar 1906
og dvaldi í Danmörku við sandgræðslunám þar til i
marz 1907, að hann kom heiin. Hóf liann störf sín i
þágu sandgræðslunnar þá um vorið, 11. maí.
Gunnlaugur Kristmundsson hefir verið ærið önnum
kafinn, sem ætla má, þar sem hann hefir gegnt fullu
kennarastarfi og haft á hendi stjórn sandgræðslufram-
kvæmdanna. Annað er að vísu vetrarstarf, hitt einkum
sumarvinna, en aldrei hefir orðið á milli. Aðeins einu
sinni hefir hann unnað scr sumarhvíldar, en það var