Skinfaxi - 01.11.1947, Qupperneq 44
108
SKINFAXI
aldrei nema meiru en Va liluta byggingarkostnaðar og %
endurbótakostnaðar.
7. gr.
Nú er eitt eða fleiri af félögum þeim, sem staðið liafa að
byggingu félagsheimilis, lagt niður, og skal þá það eða þau
félög, sem starfa áfram, eiga kost á að taka við húsinu með
öllum réttindum og skyldum. Yilji þau það ekki eða séu öll
félögin, sem staðið hafa að byggingu félagsheimilisins, lögð nið-
ur, skal sveitarstjórn, þar sem félagslieimilið er, eiga þess
kost að fá það, ef hún skuldbindur sig til þess að reka það í
þágu þeirrar starfsemi, sem um ræðir i 1. gr. Nú neitar sveitar-
stjórn að taka við félagsheimili til rekstrar eða vill hætta rekstri
félagsheimilis, sem hún liefur áður tekið að sér að reka eða
liaft forgöngu um að byggja, og skal menntamálaráðherra þá
skipa 3 manna nefnd, er gera skal tillögur um, hvernig ráð-
stafa skuli húsinu. Einn nefndarmanna skal skipaður samkv.
tilnefningu félaga þeirra, sem siðast höfðu umráð yfir húsinu,
annar eftir tillögum hlutaðeigandi sveitarstjórnar, en liinn
þriðji án tilnefningar, og skal hann vera formaður. Mennta-
málaráðlierra ákveður síðan um ráðstöfun hússins, og er hon-
um heimilt að fá það til rekstrar félagi eða félögum, sem um
ræðir í 1. gr., eða að láta selja það til lúkningar áhvilandi
skuldum og endurgreiðslu byggingarstyrks til félagsheimila-
sjóðs. Það, sem umfram kann að verða, rennur í félags-
lieimilasjóð.
8. gr.
Sérhvert félagsheimili, sem byggt er með styrk úr félags-
heimilasjóði, skal vera sjálfstæð stofnun, og skulu settar
reglur um rekstur og afnot þess, livers og eins, og mennta-
jnálaráðherra staðfesta þær.
9. gr.
Ágreiningi, sem verður um skilning á lögum þessum eða
um framkvæmd þeirra, má skjóta til ráðherra.
10. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1948. Er samkvæmt þeim
lieimilt að veita styrk úr félagslieimilasjóði til byggingar fé-
íagsheimili, sem hafin hefur verið bygging á eftir 1. janúar
1944, en er ekki lokið, þegar lög þessi öðlast gildi.
(Þessi Jög verða rædd nánar í Skinfaxa síðar).