Skinfaxi - 01.04.1949, Side 56
5C5
SKINFAXI
7. Baí5.
Þriðjudagur: 1. Mýking á grasvelli í ca. 20 mín. Mýking-
araðferð sú sama og á mánudag.
2. Æfið leikfimisæfingar og teygjur, sem sérstaklega eru
ætlaðar grindahlaupurum og lýst er i kaflanum um kennslu í
grindahlaupi. Haldið því áfram í 10—15 mín.
3. Æfið 3—4 viðbrögð, 35—40 m löng. Viðbragðið gert eft-
ir fyrirskipun sem í keppni.
4. Eftir 10 min. hvíld, þar sem hlauparinn aðeins heldur
sér heitum, með því að ganga, hlaupa og gera léttar leikfimis-
æfingar, eru settar upp 3 grindur i venjulegri hæð og með
réttum millibilum. Helzt á grasvelli. Hlaupið þrisvar sinnum
yfir grindurnar. Setjið gjarna eldspýtnastokk eða eitthvað
þessháttar ofan á þverslána og reynið að fella stokkinn, er þið
smjúgið yfir grindina.
5. 5—10 mín. æfing í einhverri annarri iþróttagrein, t. d.
hástökki.
0. Hlaupið 200 m með næstum fullum hraða, og síðan
2—300 m skokk á grasi.
7. Bað.
Miðvikudagur: Hvíld.
Fimmtudagur: Sama og á mánudegi.
Föstudagur: Sama og á þriðjudegi.
Laugardagur: Hvíld.
Sunnudagur: Mýking sem fyrir keppni. Slejspið erfiðum æf-
ingum, en hlaupið þó 2—3 stutta spretti. Strax að lokinni mýlc-
ingu, er hlaupið fullkomið grindahlaup og tíminn tekinn ná-
kvæmlega. Eftir hálftíma skal gerð önnur tilraun. Hlauparinn
skal á meðan halda sér heitum með því að ganga, lilaupa og
gera léttar leikfimisæfingar á grasi. Hlauparinn verður i þess-
um tveim hlaupum að taka á til hins ýtrasta, svo a'ð fullt gagn
verði að æfingunni. Endið æfinguna með léttu hlaupi á gras-
velli i 15—20 min.
Æfingatími er áætlaður 1 Vi klst. i hvert skipti.