Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2008, Síða 11

Náttúrufræðingurinn - 2008, Síða 11
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 10. mynd. Myndir frd MODlS-gervitunglinu (a) 30. mars 2006, kl. 12:55, (b) 31. mars kl. 13:50 og (c) 1. apríl, kl. 12:40. Myndirnar frá 31. mars og 1. aprú eru meðfólskum litum, (b) band 3-6-7, reykurinn rauður á litinn, og (c) band 7-2-1. - Images from the MODIS satellite (a)from Mars 30, 2006, at 12:55, (b) from March 31, at 13:50, and (c) from April 1, at 12:40. The images b) and c) are false- color images, using bands 3-6-7 and 7-2-1, respec- tively. (Birt með leyfi / lmages courtesy of MODIS Rapid Response Project at NASA/GSFC.) jörðu; braut þeirra liggur yfir pól- ana og fer Aqua yfir miðbaug um kl. 13:30 á hverjum degi en Terra um kl. 10:30. EOS-gervitunglin hafa 5-6 nema, m.a. MODIS-nemann (MODIS; Mode- rateresolution Imaging Spectro- radiometer) sem tekur myndir á 36 mismunandi bylgjulengdum. Hita- frávik eru reiknuð út frá geislun frá yfirborði jarðar. Nokkur forrit eru til sem vinna úr þessum upp- lýsingum í rauntíma; dæmi um það er forrit til að greina fljótt hvort eldgos er hafið, en það kall- ast MODVOLC,28 og forrit tengt MODIS.29'30 Frá tunglunum fæst því staðsetning hitafrávika auk mynda. Slík gögn voru notuð við könnun á hitafrávikum Mýraeld- anna.9 Dagana sem eldarnir geisuðu var heiðskírt á vestanverðu land- inu og því fengust góðar myndir og gögn utan úr geimnum um þennan atburð. Auk upplýsinga um hvar eldar brunnu á þeim tíma sem gervitunglin fóru yfir fást einnig upplýsingar um orkulosun eldanna sem nýta má til að áætla hvar ákafi þeirra hafi verið mestur. Myndir frá „MODIS Rapid Response System" af vesturhluta íslands sýndu eldana á Mýrum (10. mynd) greinilega. Reykurinn frá eldinum er mjög greinilegur þann 30. mars (10. mynd a) og 31. mars (10. mynd b; þar sem reykurinn er rauður). Báða dagana námu gervi- tunglin hitafrávik vegna eldanna. Þann 1. apríl 2006 höfðu þeir að mestu verið slökktir og lítill sem enginn eldur var þegar gervitungl- in fóru yfir landið í kringum hádegi (10. mynd c), en hann gaus hins vegar upp litlu seinna eins og rakið er að ofan. Staðsetning hitafrávika á Mýrum dagana 30. og 31. mars, samkvæmt forriti tengdu MODIS og MODVOLC, 91

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.