Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
30. mars
14.00
31. mars
1-apríl 30. mars
31. mars
17 00
1. npríl
8. mynd. Gangur eldanna samkvæmt gervitunglamyndum og frásögnum sjónarvotta. Rauður litur sýnir hvar eldar loga á þeim tíma
sem sýndur er á tímakvarðanum neðan við hverja mynd. Liturinn verður þvídekkri sem lengra er um liðið síðan eldarfóru yfir svæðið.
Rauður punktur áfyrstu mynd sýnir hvar eldurinn kom upp. - Schematic maps ofthefire progression, based on eyewitness accounts
and satellite data. Teikn./Drawing: Anette Meier.
30. mars
Upptök eldanna voru rétt sunnan
við þjóðveginn, liðlega 1 km vestur
af Bretavatni (4. mynd). Líklegt er
að þeir hafi kviknað út frá logandi
sígarettu sem kastað hefur verið úr
bíl á ferð um veginn upp úr kl. 8
að morgni. Maður sem ekið hafði
veginn um kl. 7:30 varð hins vegar
einskis var. Um kl. 8:30 fór flutn-
ingabíll um veginn og var eldur þá
kominn upp og hafði breiðst niður
fyrir Fíflholt um 1,5 km frá upp-
tökum (8. mynd A). Veðurgögn frá
Fíflholtum sýna að norðaustanvind-
ur, um 10 m á sekúndu, var þegar
eldur kom upp en vindhraði fór
vaxandi fram til kl. 13, er hann náði
14 m á sekúndu. Stífur vindur hélst
til kl. 18 er tók að lægja (9. mynd).
Flest vötn á svæðinu voru ísilögð
og barst eldurinn yfir þau með fjúk-
andi glóð.
Eldurinn fór mjög hratt niður fló-
ann undan vindinum en tók einnig
að breiðast hægt út til hliðanna og
upp á móti vindi. Þegar slökkvilið
kom á svæðið um kl. 10:30 var eld-
urinn kominn niður á móts við
Einholtasel. Um kl. 12:30 hafði eldur
náð fram til sjávar (8. mynd B). Eftir
að eldurinn náði til sjávar tók hann
að brenna upp flóann á móti vindi í
átt að Skíðsholtum. Hann hélt svo
áfram suður fyrir Hólsvatn inn í
land Laxárholts. Einnig breikkaði
brunasvæðið hægt og sígandi allt
frá upptökum til sjávar, einkum til
austurs. Að kvöldi 30. mars gekk
vindur talsvert niður og hægði þá á
útbreiðslu eldanna.
31. mars
Upp úr miðnætti herti vind aftur
(9. mynd) og færðust þá eldarnir í
aukana. Tóku þeir að berast suður
eftir flóanum austan við Skíðsholt.
Undir kl. 15 var eldurinn stöðvaður
við veginn austur af Laxárholti (8.
mynd C). Um svipað leyti breidd-
ist eldurinn hins vegar austur yfir
miðsveitarveginn við Hamra og
brann þar allt til kvölds á tiltölulega
mjórri tungu meðfram hamrabeltinu
89