Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 61

Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 61
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Kristín Svavarsdóttir Skýrsla stjórnar Hins íslenska náttúrufræðifélags FYRIRÁRIÐ 2005 FÉLAGAR í árslok 2005 voru félagar í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi 1.202 en þeir voru 1.211 í byrjun árs- ins. Skipting félagsmanna var: 8 heiðursfélagar, 5 kjörfélagar, 7 ævi- félagar, 937 almennir félagar, 124 stofnanir innanlands, 26 félagar og stofnanir utanlands, 75 skólafélagar og 20 einstaklingar með hjónaáskrift. Á árinu gengu 37 manns í félagið en 19 skráðu sig úr því, 13 létust á árinu og 14 voru teknir af skrá af öðrum ástæðum, alls 46 félagar. Stjórn og starfsmenn Stjórn Hins íslenska náttúrufræði- félags var þannig skipuð: Kristín Svavarsdóttir formaður, Helgi Torfason varaformaður, Kristinn J. Albertsson gjaldkeri, Hilmar J. Malmquist ritari, Esther Ruth Guðmundsdóttir, Helgi Guð- mundsson og Droplaug Ólafsdóttir meðstjórnendur. Droplaug var fulltrúi stjórnar í ritstjórn Náttúru- fræðingsins, Esther hafði umsjón með fræðslufundum félagsins og Helgi Guðmundsson hafði umsjón með fræðsluferðum. Skoðunarmenn reikninga voru Kristinn Einarsson og Amór Þ. Sigfússon, varamaður þeirra var Hreggviður Norðdahl. Útbreiðslustjóri félagsins var Erling Ólafsson og hafði hann umsjón með dreifingu Félagsbréfsins og Náttúrufræðingsins auk þess að sjá um félagatalið. Álfheiður Ingadóttir var ritstjóri Náttúrufræðingsins. HÍN á fulltrúa í dýraverndarráði sem umhverfisráðherra skipaði árið 2004 og skipta nefndarmenn með sér verkum. Fulltrúi félags- ins var Arnór Þ. Sigfússon fugla- fræðingur sem var jafnframt for- maður dýraverndarráðs. Árið 2005 sat sameiginlegur fulltrúi frjálsra félagasamtaka í tveimur nefndum umhverfisráðherra. Tryggvi Felixson framkvæmda- stjóri Landverndar sat í samráðs- hópi um undirbúning Umhverfis- þings 2005 en meginviðfangsefni þess var sjálfbær þróun og fram- kvæmd og efling stefnumörkunar stjórnvalda á því sviði. í lok ársins 2005 voru Ingólfur Á. Jóhannesson frá Samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN) og Ulla R. Pedersen varamaður frá Náttúru- verndarsamtökum Suðurlands (NSS) tilnefnd í ráðgjafanefnd við undirbúning að stofnun Vatna- jökulsþjóðgarðs. AÐALFUNDUR Aðalfundur félagsins fyrir árið 2005 var haldinn laugardaginn 25. febrúar 2006 kl. 14 í fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs, í Safna- húsinu í Kópavogi. Fundarstjóri var kosinn Hreggviður Norðdahl og fundarritari Gróa Valgerður Ingimundardóttir. Fundinn sátu 14 manns. Formaður flutti skýrslu stjómar og gjaldkeri kynnti ársreikn- inga félagsins sem vom samþykktir af fundarmönnum án athugasemda. Úr stjórn áttu að ganga Droplaug Ólafsdóttir, Helgi Guðmundsson og Kristinn J. Albertsson ásamt for- manninum Kristínu Svavarsdóttur. Öll gáfu þau kost á sér áfram og voru endurkjörin. Arnór Þ. Sigfússon og Kristinn Einarsson vom endur- kjörnir sem skoðunarmenn reikn- inga og Hreggviður Norðdahl vara- maður þeirra. Hilmar J. Malmquist gerði grein fyrir þremur ályktunum sem stjórn- in lagði fyrir aðalfundinn og vom þær samþykktar með litlum breyt- ingum. 1. Ályktun um Náttúruminjasafn Islands: „Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags, haldinn 25. febrúar 2006 í Kópavogi, ítrekar fyrri ályktanir aðalfunda Hins íslenska náttúrufræðifélags til margra ára um málefni Náttúm- minjasafns íslands, höfuðsafns íslensku þjóðarinnar í náttúru- fræðum, sem félagið hefur barist fyrir í meira en heila öld. Hið íslenska náttúmfræðifélag hvetur menntamálaráðherra og aðra hlutaðeigandi aðila til að beita sér af fullum þunga fyrir því að ráð- ist verði hið fyrsta í byggingu veglegs og nýstárlegs sýningar- og kennslusafns í náttúrufræðum, sem hafi aðsetur á höfuðborgar- svæðinu og starfi í tengslum við Náttúmfræðistofnun íslands. Hið íslenska náttúmfræðifélag fagnar því að hreyfing er komin á málið, m.a. fyrir atbeina núverandi menntamálaráðherra, og að því er varðar fmmvarpsdrög að sér- lögum um Náttúruminjasafn íslands (sbr. bráðabirgðaákvæði í safnalögum nr. 106/2002). Félagið harmar hins vegar að hafa ekki 141
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.