Náttúrufræðingurinn - 2008, Page 61
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Kristín Svavarsdóttir
Skýrsla stjórnar
Hins íslenska náttúrufræðifélags
FYRIRÁRIÐ 2005
FÉLAGAR
í árslok 2005 voru félagar í Hinu
íslenska náttúrufræðifélagi 1.202
en þeir voru 1.211 í byrjun árs-
ins. Skipting félagsmanna var: 8
heiðursfélagar, 5 kjörfélagar, 7 ævi-
félagar, 937 almennir félagar, 124
stofnanir innanlands, 26 félagar og
stofnanir utanlands, 75 skólafélagar
og 20 einstaklingar með hjónaáskrift.
Á árinu gengu 37 manns í félagið en
19 skráðu sig úr því, 13 létust á árinu
og 14 voru teknir af skrá af öðrum
ástæðum, alls 46 félagar.
Stjórn og starfsmenn
Stjórn Hins íslenska náttúrufræði-
félags var þannig skipuð: Kristín
Svavarsdóttir formaður, Helgi
Torfason varaformaður, Kristinn
J. Albertsson gjaldkeri, Hilmar
J. Malmquist ritari, Esther Ruth
Guðmundsdóttir, Helgi Guð-
mundsson og Droplaug Ólafsdóttir
meðstjórnendur. Droplaug var
fulltrúi stjórnar í ritstjórn Náttúru-
fræðingsins, Esther hafði umsjón
með fræðslufundum félagsins og
Helgi Guðmundsson hafði umsjón
með fræðsluferðum. Skoðunarmenn
reikninga voru Kristinn Einarsson
og Amór Þ. Sigfússon, varamaður
þeirra var Hreggviður Norðdahl.
Útbreiðslustjóri félagsins var Erling
Ólafsson og hafði hann umsjón
með dreifingu Félagsbréfsins og
Náttúrufræðingsins auk þess að sjá
um félagatalið. Álfheiður Ingadóttir
var ritstjóri Náttúrufræðingsins.
HÍN á fulltrúa í dýraverndarráði
sem umhverfisráðherra skipaði
árið 2004 og skipta nefndarmenn
með sér verkum. Fulltrúi félags-
ins var Arnór Þ. Sigfússon fugla-
fræðingur sem var jafnframt for-
maður dýraverndarráðs. Árið
2005 sat sameiginlegur fulltrúi
frjálsra félagasamtaka í tveimur
nefndum umhverfisráðherra.
Tryggvi Felixson framkvæmda-
stjóri Landverndar sat í samráðs-
hópi um undirbúning Umhverfis-
þings 2005 en meginviðfangsefni
þess var sjálfbær þróun og fram-
kvæmd og efling stefnumörkunar
stjórnvalda á því sviði. í lok ársins
2005 voru Ingólfur Á. Jóhannesson
frá Samtökum um náttúruvernd á
Norðurlandi (SUNN) og Ulla R.
Pedersen varamaður frá Náttúru-
verndarsamtökum Suðurlands
(NSS) tilnefnd í ráðgjafanefnd við
undirbúning að stofnun Vatna-
jökulsþjóðgarðs.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur félagsins fyrir árið
2005 var haldinn laugardaginn
25. febrúar 2006 kl. 14 í fundarsal
Náttúrufræðistofu Kópavogs, í Safna-
húsinu í Kópavogi. Fundarstjóri
var kosinn Hreggviður Norðdahl
og fundarritari Gróa Valgerður
Ingimundardóttir. Fundinn sátu
14 manns. Formaður flutti skýrslu
stjómar og gjaldkeri kynnti ársreikn-
inga félagsins sem vom samþykktir
af fundarmönnum án athugasemda.
Úr stjórn áttu að ganga Droplaug
Ólafsdóttir, Helgi Guðmundsson og
Kristinn J. Albertsson ásamt for-
manninum Kristínu Svavarsdóttur.
Öll gáfu þau kost á sér áfram og
voru endurkjörin. Arnór Þ. Sigfússon
og Kristinn Einarsson vom endur-
kjörnir sem skoðunarmenn reikn-
inga og Hreggviður Norðdahl vara-
maður þeirra.
Hilmar J. Malmquist gerði grein
fyrir þremur ályktunum sem stjórn-
in lagði fyrir aðalfundinn og vom
þær samþykktar með litlum breyt-
ingum.
1. Ályktun um Náttúruminjasafn
Islands:
„Aðalfundur Hins íslenska
náttúrufræðifélags, haldinn 25.
febrúar 2006 í Kópavogi, ítrekar
fyrri ályktanir aðalfunda Hins
íslenska náttúrufræðifélags til
margra ára um málefni Náttúm-
minjasafns íslands, höfuðsafns
íslensku þjóðarinnar í náttúru-
fræðum, sem félagið hefur barist
fyrir í meira en heila öld. Hið
íslenska náttúmfræðifélag hvetur
menntamálaráðherra og aðra
hlutaðeigandi aðila til að beita sér
af fullum þunga fyrir því að ráð-
ist verði hið fyrsta í byggingu
veglegs og nýstárlegs sýningar-
og kennslusafns í náttúrufræðum,
sem hafi aðsetur á höfuðborgar-
svæðinu og starfi í tengslum við
Náttúmfræðistofnun íslands. Hið
íslenska náttúmfræðifélag fagnar
því að hreyfing er komin á málið,
m.a. fyrir atbeina núverandi
menntamálaráðherra, og að því
er varðar fmmvarpsdrög að sér-
lögum um Náttúruminjasafn
íslands (sbr. bráðabirgðaákvæði í
safnalögum nr. 106/2002). Félagið
harmar hins vegar að hafa ekki
141