Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 25
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
hægt og bítandi dregur þó úr
þeim með blöndun og dreifingu.
FISKURINN OG VORIÐ
Um hávetur, þegar skammdegi ríkir
og blöndun í hafinu við landið er
mikil vegna kælingar og vinda, er
nánast enginn svifþörungagróður
né frumframleiðni. En vorið kemur
fyrr í sjónum en á landi, birta vex
ört eftir vorjafndægur og þá fer
lagskipting að skipta máli. Á suð-
vestursvæðinu eru mikilvægar
hrygningarstöðvar margra nytja-
stofna, t.d. þorsks, ýsu, loðnu,
ufsa og síldar. Hrygningarstöðvar
þorsksins eru víða á Suður- og
Suðvesturmiðum. Ákveðin svæði
grunnt á Selvogsbanka og við
suðurströndina hafa nokkra sér-
stöðu, því þar hrygnir stærsti fiskurinn
og framlag stórra hrygna er talið
vænt hvað varðar gæði hrogna og
fjölda.28-29 Ennfremur hefst hrygn-
ing snemma vors hjá stóru hrygn-
unum, um miðjan mars, og stendur
lengur en hjá smáhrygnunum.
Rannsóknir á magni og dreifingu
nýgotinna eggja þorsks og ýsu sýna
að á hrygningartímanum er mikið
af þeim í ferskvatnsblönduðum
sjó.30 Athuganir í maí 1983 bentu
til þess að þau reki fyrir straumi
vestur með Reykjanesi sunnanverðu
og inn á Faxaflóa þar sem myndar-
legur flekkur af nýklöktum lirfum
fannst (13. mynd).31 Á þessu lífskeiði
er dreifing lirfanna háð ytri öflum,
straumum og blöndun. Aðeins lítill
hluti þorskhrogna klekst og verður
að lífvænlegum lirfum32 og örlítið
brot af þeim verður að 3ja ára fiski,
en við þann aldur kemst þorskurinn
inn í bókhald um árgangastyrk og
stofnstærð.33 Fjölmargir þættir og
samspil þeirra geta haft áhrif á það
hvernig til tekst á fyrstu mánuðum
í ævi þorskfiska, þegar afföll eru
mikil og fjöldi einstaklinga í árgang-
inum fær á sig mynd. Stærð og ald-
urssamsetning hrygningarstofns-
ins vegur þar eflaust þungt28 en
11. mynd. a) Reiknuð binding dfosfór og nitri ílífrænt efni við Ijóstillífun. Byggt á 1135
sýnum afsjó úr athugunum á Krísuvíkursniði árin 1983,1990,1991 og 1992. Hallatala
aðfallslínunnar er 15,4 og r2 = 0,953. b) Reiknuð binding niturs og kísils. Byggt á 1384
sýnum úr sama efiúviði og a) en aðfallslína reiknuðfyrir kísilstyrk minni en 15 ymól í
lítra. Hallatala aðfallslínunnar er 0,708 og r2 = 0,881. - a) Calculated photosynthetic
assimilation ofphosphorus and nitrogen into organic matter. Based on 1135 samplesfrom
the Krísuvtk transect from 1983, 1990, 1991 and 1992. The regression line has a slope of
15.4 and r2 = 0.953. b) Calculated assimilation of nitrogen and silicon. Based on 1384
satnples frotn the satne stations as in a) but regression line calculated for silicate
concentrations < 15 ptnol/l. The regression line has a slope of 0.708 and r2 = 0.881.
é
é
\
&
\
1983 1991 1992
12. mynd. Reiknuð binding kfsilþörunga sem % af uppleystum kt'sil íefstu 15 tn sjávar á Krt'suvtkursniði. Tímabilið er frá 1. apríl til tniðs
júnívorin 1983, 1991 og 1992. Rauðu ferlarnir eru ferskvatnsblandaður sjór, S<35,0, en bláu ferlarnir fullsaltur sjór, S>35,0. - Silicate
uptake by diatotns calculated as % ofavailable dissolved silicate in the 15 m surface layer ofthe Krt'suvík transect. The observation period
isfrotn 1 April to tttid-June in the springs ofl983, 1991 and 1992. Red traces arefor freshwater influence, S<35, and the blue tracesfor
undiluted seawater, S>35.
105