Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 39
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
fjallkrækill fundist austanvert
í efstu brúnum Helgufells syðst á
Auðkúluheiði við Kjalveg.10 Eru þetta
einu þekktu fundarstaðir fjallkrækils
á þessum hluta hálendisins.
Þann 3. júlí 2003 fórum við Hjörtur
Þorbjömsson í leiðangur um Gríms-
tunguheiði til að skoða slóðir fjall-
krækilsins. Skoðuðum við þar
margar bungur á svæðinu, en fund-
um hann loks á einni bungu milli
Svínavatns og Þórarinsvatns. Þar var
aðeins vottur af honum.2 Hins vegar
fór norskur leiðangur eftir minni til-
sögn að líta eftir fjallkrækli á austur-
brúnum Helgufells sumarið 2007, og
stóð það heima að þar voru enn
allmargar plöntur af fjallkrækli.
AUSTURFjALL í DALSMYNNI
Ingimar Óskarsson fór upp á
Austurfjall í Dalsmynni þann 4. júlí
árið 1926 og fann þar fjallkrækil
og var það fyrsti fundur hans á
íslandi. Óx hann þá á víð og dreif
uppi á fjallinu í lausum, smágrýtt-
um og lítt grónum moldarjarðvegi
í 800 m hæð yfir sjó.11 Þann 13. júm'
árið 2005 fómm við Gróa Valgerður
Ingimundardóttir upp á Austurfjall
og skoðuðum það vandlega allt að
ofan. Þar er mikið um raka flag-
móa og mela, sem eru kjörlendi
fjallkrækilsins. Við fundum hvergi
fjallkrækil en hins vegar vott af
fjallabláklukku, sem ekki var farin
að blómstra. Trúlega höfum við verið
heldur snemma á ferðinni til þess að
auðvelt væri að finna fjallkrækilinn,
því gróður var skammt á veg kom-
inn þama uppi. Ekki er því neitt
hægt að fullyrða um hvort hann
muni vera útdauður á Austurfjalli.
Kjnnarfell við Kdldukinn
Ingimar Óskarsson fann fjallkrækil
uppi á Kinnarfelli við Köldukinn
þann 7. júlí árið 1926. Þar var
hann á stangli uppi á fjallinu í
370 m hæð yfir sjó.11 Árið 1964
mun Helgi Hallgrímsson hafa farið
um Kinnarfell og safnaði þar ein-
tökum af fjallkrækli sem nú eru í
plöntusafni Náttúrufræðistofnunar
lslands á Akureyri.
Þann 11. ágúst 2005 fór ég ásamt
Gróu Valgerði Ingimundardóttur
upp á Kinnarfell norðan frá.
Skoðuðum við norðurenda og há-
bungu fjallsins ítarlega, sömuleið-
is hjallana báðum megin. Hvergi
fundum við fjallkrækil á því svæði
en fikruðum okkur svo suður með
fjallinu. Loks fundum við fjall-
krækil á litlum bletti nokkuð sunn-
an við hábungu fjallsins. Eins og
víðar þar sem hann vex, var hann
þarna í hálfdeigum, flagkenndum
mel með lambagrasi, fjallavíði og
mýrarsóley sem einkennandi gróð-
ur (3. mynd). Hann var þá kominn
úr blóma og byrjaður að þroska
aldin (4. mynd). Bletturinn sem
fjallkrækillinn óx á var ekki nema
fáir fermetrar að stærð. Tími vannst
ekki til að fara lengra suður eftir
fjallinu í þetta skipti, en við gerð-
um ráð fyrir að meira mundi vera
af fjallkræklinum sunnar á fjallinu.
Árið eftir fór ég hins vegar upp
á fjallið sunnan frá, leitaði gaum-
gæfilega á hábungum fjallsins að
sunnanverðu og í lægðinni á milli,
en fann hvergi fjallkrækil fyrr en
ég kom aftur á sama blettinn og
hann hafði fundist árið áður. Svo
virðist því sem hann sé þarna ekki
lengur nema á þessum litla bletti.
FLAUTAFELL í ÞlSTILFIRÐl
Þann 27. júlí 1968 fór Hjörleifur
Guttormsson um Flautafell í Þistil-
firði og segir frá fundi sínum á
fjallkrækli í grein sem hann ritaði í
Náttúrufræðinginn árið eftir.12 Hann
fann fjallkrækilinn á hæðarbilinu
400-560 m og virtist honum hann
vera allalgengur fyrir ofan 500 m.
Sjálfur fór ég um Flautafell 28.
júní 2006, en þá var gróður snemma
á ferðinni og fjallið að ofan allt í
blóma. Fór ég þar vítt um ofan
brúna og upp á hæstu bungur, en
fann hvergi fjallkrækil. Að sjálf-
sögðu er þó ekki útilokað að hann
geti leynst einhvers staðar á litlum
blettum, enda fjallið allvíðáttumikið
að ofan. En víða um fjallið er hann
tæplega lengur.
HÓLMUR í HÍTARDAL
Steindór Steindórsson var sumarið
1954 við gróðurrannsóknir í Hítardal.
Hann gekk meðal annars upp á
Hólm, sem er fjall rétt framan við
Hítarvatn. í grein sem hann ritaði
árið eftir segir hann frá fjallkrækli
sem hann fann uppi á fjallkoll-
inum.13
5. mynd. Kort yfir alla pekkta fundarstaði fjallkrækils d íslandi. Fundarstaðir sem hafa
nýlega verið skoðaðir eru tdknaðir með brúnum hring en aðrir með grænum punkti.
119