Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 22
Náttúrufræðingurinn
9. mynd. Dæmi um vaxtarhraða kísil-
þörunga, kísilnám, við breytilegan styrk
uppleysts kísils þegar önnur næringarefni
skortir ekki. Við kísilstyrk 2 pmol/l er vaxtar-
hraðinn helmingur hámarksvaxtar.24 - An
example of diatom growth rate at variable
amounts of dissolved silicate when other
nutrients are not lacking. At dissolved sili-
cate concentration of 2 pmol/l, the growth
rate is halfthe maximum rate.24
í Skeiðarárhlaupinu mikla í
nóvember 1996 var styrkur upp-
leysts kísils óvenjuhár og aurburður
mikill.12'13 Blöndunarsvæði hlaups-
ins náði langt til hafs og vestur
með suðurströndinni. Mælingar á
uppleystum kísil í sjónum þar bentu
einfaldlega til beinna blöndunar-
áhrifa, þ.e. að útfelling eða uppleys-
ing hefði ekki marktæk áhrif á styrk-
inn (8. mynd). Þessi hegðan kísils
frá íslenskum ám hefur áður komið
fram við eðlilegt rennsli og aurburð,
t.d. utan ósa Þjórsár og Ölfusár, þar
sem ferskvatn með kísilstyrk á bilinu
200-250 pmól/1 berst til sjávar14-17
(8. mynd), sem og á Skjálfanda og
Axarfirði.7 Tilraunir á rannsókna-
stofu með sjó og grugg hafa sýnt
uppleysingu kísils úr gruggi.13
Athuganir á blöndunarsvæðum sýna
þó að það er ekki alltaf hægt að
heimfæra niðurstöður úr rann-
sóknastofu yfir á það sem gerist í
hafinu. Þar eð vöxtur og vaxtarhraði
kísilþörunga er háður styrk upp-
leysts kísils ef nóg er af öðrum
næringarefnum (9. mynd), er ljóst
að jökulárgruggið er ekki forði sem
nýtist þeim beint. Uppleysti kísill-
inn í árvatninu er það hins vegar og
hann stuðlar að kísilþörungavexti í
strandsjónum á sumrin þegar upp-
leystur kísill er genginn til þurrðar
í fullsöltum sjó utar á landgrunn-
inu.18
Dæmi eru vissulega um að efni
berist í upplausn úr jökulárgrugg-
inu þegar það berst til sjávar (10.
mynd). Mikill munur var á styrk
snefilmálmanna, kadmíns, kopars
og sinks, utan Þjórsáróss en sam-
eiginlegt fyrir málmana þrjá var að
styrkur hvers þeirra náði hámarki
þegar blanda árvatns og sjávar var
um það bil 1:3 (10. mynd).17 í sömu
rannsókn komu fram vísbendingar
um að gruggið hefði áhrif til lækk-
unar á fosfatstyrk, en það atriði
þarfnast nánari rannsókna.
VÖXTUROG NÆRINGAR-
EFNAÞÖRF SVIFÞÖRUNGA
Myndun lífræns efnis úr ólífrænu
við frumframleiðni þörunga er undir-
staða fæðuvefs sjávar og þar með
frjósemi hafsvæða. Að ýmsu leyti er
frumframleiðni í hafinu með öðru
sniði en á þurrlendi. Þurrlendis-
jurtir eru rótfastar, sækja næringar-
efni úr jarðvegi með rótum sem
binda þær við staðinn og trefjaríkar
stoðir halda þeirn upp móti birtunni.
Talsverður hluti frumframleiðninn-
ar fer í þessa uppbyggingu. í sam-
anburði eru svifþörungar örsmáir,
þeir færast til með sjónum og taka
næringarefni beint gegnum frumu-
veggi, og framleiðnin fer mest í
vöxt og myndun próteinríks vefjar
sem dýrasvif nýtir ört. Vöxturinn
er hraður, lífskeiðið aðeins nokkrir
dagar og veltan í þörungalífmassa-
num mikil. Nokkur frumskilyrði eru
fyrir vexti svifþörunga hér norðar-
lega í Atlantshafi (2. rammi).
Á okkar slóðum er birtan árstíða-
bundin og auk þess nýtur aðeins
tiltölulega þunnt yfirborðslag birt-
unnar, hún dofnar ört með vaxandi
dýpi. Eftir vorjafndægur lengir dag-
inn hratt en sjórinn á landgrunninu
er þó yfirleitt gróðursnauður þar til
annaðhvort upphitun ellegar lægri
selta veldur lækkun eðlismassa og
stöðugt yfirborðslag myndast (1.
rammi). Hér við land er það yfirleitt
ekki fyrr en í síðari hluta maí sem
upphitun ein leiðir til lagskiptingar
en lagskipting vegna yfirborðsseltu
verður annaðhvort af bráðnun xss
eða íblöndun ferskvatns sem berst
til sjávar. Lagskipting verður því í
strandsjó en hversu sterk og út-
breidd hún er fer eftir aðstæðum.
Ljóst er þó að lagskipting mynd-
ast mun fyrr á vorin vegna seltu
en upphitunar og þannig skapast
o
Cl
O
10. mynd. Styrkur uppleysts kadmihs, kopars og sinks á blöndunarsvæði árvatns og sjávar
utan Þjórsáróss vorið 1996. - Dissolved cadmium, copper and zinc concentrations observed
in the river water/sea water mixing zone offthe Þjórsá river mouth in spring 1996.
102