Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 27

Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 27
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags LOKAORÐ Þegar ferskvatn berst til sjávar og blandast honum verða eðlis- og efnaeiginleikar blöndunnar þannig að þennan sjó má glöggt greina frá fullsöltu úthafinu og er hann nefndur strandsjór. Yfirlit úr ýmsum rannsóknum hér við land sýnir að strandsjórinn berst réttsælis um landið með strand- straumi og straumhraðinn er meiri en utar á landgrunninu. Ferskvatn lækkar eðlismassa sjávar og því verður lagskipting í strandsjó sem skiptir máli við uppaf gróð- urtíma í sjónum á vorin. Vindar hafa mikil áhrif á strandstraum- inn og blöndum strandsjávar. Með ferskvatni berast efni til sjávar bæði uppleyst og sem grugg. Svif- þörungar, grunnur vistkerfa hafs- ins, þurfa ýmis efni til að vaxa og uppleystur kísill sem berst með árvatni er mikilvæg viðbót í næringarefnabúskap strandsjávar og stuðlar að vexti kísilþörunga. Vöxtur kísilþörunga getur verið mjög ör á vorin og á grunnslóð við Suðurland gengur uppleystur kísill frá ánum til þurrðar á fáum dögum og þannig hefur árvatnið mótandi vistkerfisáhrif á afmörk- uðum svæðum. Ár sem falla til sjávar á suðurströndinni hafa áhrif á frumframleiðni á svæðum sem eru jafnframt hrygningarslóð margra mikilvægra nytjastofna. Athuganir benda til tölfræðilegrar samsvörunar milli árgangastærða og ferskvatnsmagns í sjó að vor- lagi. Vistfræðilega kann grunnur þessarar samsvörunar að vera sá að fæðuframboð á lægstu þrep- um vistkerfisins á strandsvæðum tengist ferskvatnsrennsli af landi. Það kann síðan að hafa mikil áhrif ofar í fæðukeðjunni og jafnvel á viðkomu þeirra nytjastofna sem hrygna á landgrunninu. SUMMARY Freshwater discharge into the sea influences physical and chemical properties and thus characterizes coastal water distinctly from open ocean waters. Various stud ies conducted around Iceland have shown that the coastal water flows clockwise with a coastal current with higher velocities than in the current further out on the shelf. Freshwater admixture lowers the seawater density and induces stratification, which favours onset of phytoplankton growth. Winds have strong influence on the coastal current and mixing in the coastal water. The river water discharged into the sea carries both dissolved and suspended materials. Dissolved silicate is a significant contribution to the coastal water nutrient budget and it enhances the growth of siliceous plankton, the diatoms. The springtime utilization of dissolved nutrients is very rapid and off south Iceland the river borne silicate is depleted from solution in relatively few days and the high river associated productivity is thus regionally distinct. The same regions are also spawning grounds for important commercial fish species. Statistical associations have been shown to be between year-class strength of cod and the amount of freshwater in the sea in the spring. Ecologically these associations can be related to a higher probability of food for larvae in the coastal water. 107

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.