Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 36
5. tafla. Aldurshlutföll rjúpna að vori, Norðausturland 1981 til 1994. - Age ratio of Rock
Ptarmigan in spring, NE-lceland 1981 to 1994.
ársg. karrar (%) yearling cocks n ársg. kvenfuglar (%) yearling females n ársg. fuglar (%) yearlings n
1981 53 17 50 8 54 134
1982 60 43 59 17 63 125
1983 70 53 65 31 64 175
1984 66 29 88 25 62 173
1985 61 51 73 26 71 197
1986 50 16 67 15 61 79
1987 46 39 56 41 56 123
1988 54 13 53 19 50 84
1989 71 14 73 11 62 52
1990 22 9 50 10 47 64
1991 25 8 0 1 45 31
1992 60 5 40 5 58 31
1993 50 2 50 2 57 23
1994 54 80 74 47 60 194
Samtals 57 379 66 258 60 1485
■ UMFjÖLLUN
Riúpnatalningar
Sú talningaaðferð sem oftast hefur verið
beitt á rjúpur hér á landi er afbrigði af svo-
kallaðri kortunaraðferð (mapping method)
sem upphaflega var þróuð til að telja
óðalsbundna spörfugla (Enemar 1959).
Aðferðin gengur út á það að færa inn á kort
af talningasvæðinu alla karlfugla með
óðalsatferli. Mælst er til þess að hvert
talningasvæði sé heimsótt að minnsta kosti
10 sinnum og lágmark þrjár skráningar
þarf til að viðkomandi karlfugl sé tekinn
gildur (Bibby o.fl. 1992). Yfirleitt hafa
rjúpnatalningamenn látið eina heimsókn
nægja (sjá þó Bengtson 1971). Gengið
hefur verið út frá því að allir heimilisfastir
karrar sjáist í einni yfirferð, þar sem
hvorki skógur né kjarr tálmar sýn og hvítur
búningur og auglýsingaratferli geri karr-
ana svo áberandi að lítil hætta sé að missa
af neinum. Þetta er örugglega nokkur ein-
földun, en engin markviss tilraun hefur
verið gerð til að meta hversu áreiðanlegar
og endurtakanlegar þessar lalningar eru.
Arnþór Garðarsson (1988) bar þó saman
þekktan fjölda karra á 100 ha svæði í
Hrísey 1966 til 1968 og það sem fannst á
sama svæði í heildartalningu á allri eynni.
Hann segir að nær allir karrar hafi komið
fram í heildartalningunni (munnl. uppl.).
Ég gerði svipað við Hól á Tjörnesi og í
Hofstaðaheiði í Mývatnssveit 1994 og
fékk sömu niðurstöðu og Arnþór.
Það er öllum ljóst sem fylgst hafa með
atferli karra á vorin að það er mjög breyti-
legt eftir dögum, tíma dags og milli ein-
staklinga. Hagstæðast er að telja seint í
maí (eftir 20.) en þá er óðalstaferlið í
hámarki. Atgangurinn í körrunum er mest-
ur á morgnana og kvöldin. Yfir hádaginn,
sérstaklega í sólskini, er erfitt að finna þá
og menn ættu ekki að reyna talningar á
milli kl. 10.00 og 17.00.
Samanburður við önnur svæði
Rjúpnatalningar hafa farið fram á nokkr-
um öðrum svæðum síðan 1981, meðal
annars í Hrísey á Eyjafirði (frá 1983), á
Fjöllum í Kelduhverfi (1981 til 1990, þó
ekki 1983), Kvískerjum í Öræfum (1981
til 1994) og í Heiðmörk ofan Reykjavíkur
(1982 lil 1994, þó ekki 1989) (6. tafla).
146