Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 95

Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 95
suður- og norðausturhlíðar hennar. Hraun- in frá þeim, og ef til vill sumum gíg- sprungunum á Dyngjuhálsi, virðast bera rennsliseinkenni dyngjuhrauna og verða því ekki svo auðveldlega aðgreind frá Trölladyngjuhraunum, enda var engin tilraun til þess gerð. Að minnsta kosti sex norðaustlægar samsíða gossprungur liggja á sunnanverðum Dyngjuhálsi og ná aðeins norðurendarnir á tveim þeim austustu inn á kortlagða svæðið. Hraun frá þessum gossprungum þekja mestallan Dyngjuháls og hafa þau runnið út af honum til beggja hliða. Austan í hálsinum hafa þau um- kringt nafnlaus móbergsfell og runnið upp að Urðarhálsi og Kistufelli. Vestan undir Kistufelli er hraunstraumur sem runnið hefur norður með þvf þegar jökullinn var minni en hann er nú. Þetta hraun gæti verið runnið frá gígsprungu sem virðist teygja sig upp í suðurhlíðar Kistufells. Á milli Kistufells og Urðarháls hafa Dyngjuhálshraun runnið yfir og upp að eldri eldstöðvum og kaffært þær að mestu. Þannig liggur einn gígur með smáhrauni við jaðar þeirra norðvestan í Urðarhálsi og endagígarnir á norðaust- lægri gossprungu skjóta upp kollinum sinn hvorum megin við Dyngjuhálshraun- strauminn á milli Kistufells og Urðarháls. Gossprunga með stefnu frá austri til vesturs liggur við norðausturhlíðar Kistu- fells og eru hún og hraunin frá henni hálfgrafin í Dyngjuhálshraun. Austast á Urðarhálsi eru einnig tvær santhliða, stuttar gossprungur. Það eru aðeins um 200 m á milli þeirra og sennilega hafa þær gosið samtímis þar sem þær liggja á brúnununt á mjög mjóum sigdal. Sjáanlegt hraun frá þeim er mjög lítið, en það hverfur undir jökulsáraura og hefur að öllum líkindum aldrei verið öllu stærra. Það virðist hér regla að gossprungur sem liggja frá austri lil vesturs framleiði mjög lítil hraun því að sömu sögu er að segja um nær fjögurra kílómetra langa sprungu sem liggur í sömu stefnu á milli Hrímöldu og Gígaldna. Hraunið frá henni sýnir þó að hraunin sitt hvorum megin við Hrímöldu eru ekki jafngöntul því hraunið frá þessari sprungu hverfur undir yngra hraun norðan við hana en það liggur ofan á hrauntaglinu sem runnið hefur að sunnan austur fyrir Hrímöldu. Annars staðar reynast Dyngjuháls- og Trölladyngjuhraun hvarvetna yngri en þau Krepputunguhraun og Dyngjufjallahraun sem þau mæta (2. mynd) enda virðast eld- stöðvar og hraun þar yfirleitt fremur ung- leg á að líta og þar á meðal Trölladyngja sjálf. Hugsast getur að yngstu gossprung- urnar á Dyngjuhálsi séu frá sögulegum tíma. Ekki er ólíklegt að einhverjar af heimildum annála um gos í vestanverðum Vatnajökli eigi við gos á sunnanverðum Dyngjuhálsi eða í norðauslurhlíðum Bárðarbungu. ■ KREPPUTUNGUHRAUN Krepputunguhraun nefndum við einu nafni hraunbreiðu þá hina miklu sem þekur allan neðri hluta Krepputungunnar og einnig umtalsverð svæði vestan Jökulsár á Fjöll- um sunnan Dyngjufjalla. Yfirborð þeirra er nær allt þvegið af hamfarahlaupum Jökulsár og mjög víða er það þakið jökul- hlaupa- eða jökulvatnaseti. Sérstaklega er allt svæðið á inilli Dyngjujökuls og Dyngjufjalla þakið þykkum jökuláraurum og foksandsbreiðum svo að undirliggjandi hraun koma óvíða í ljós, samanber jarð- fræðikortið á 1. mynd í síðustu grein (Guttormur Sigbjarnarson I993b). Hins vegar er tilvist þessara hrauna undir aurunum það ótvíræð að á 2. mynd er svæðið allt táknað sent hraun þó að útjaðrar þeirra við Dyngjujökul séu hrein ágiskun. Krepputunguhraun eru runnin frá eld- stöðvum á sprungurein Dyngjufjalla og lilheyra á þann hátt Dyngjufjallahraunum, en hið sérstæða útlit þeirra og rennslis- einkenni urðu til þess að við gerðum úr þeirn sjálfstæðan flokk hrauna aðgreindan frá öðrum Dyngjufjallahraunum sem ávalll leggjast ofan á þau. Kreppu- tunguhraun eru mjög sérstæð í útliti að því leyti að þau eru alsett mjög stórum plagíó- 203
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.