Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 99

Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 99
verið fleiri. Vikrahraunið frá 1961 nær ekki inn á kortlagða svæðið (2. mynd), en það liggur alveg við útjaðar þess vestur af Vikrafelli. ■ HRAUN VIÐ HERÐUBREIÐ Landið umhverfis Herðubreið og Herðu- breiðartögl er allt þakið hraunum frá nú- tíma, sem sum Itver verða ekki beinlínis rakin til sprungureinar Dyngjufjalla- megineldstöðvarinnar. Frá Flötudyngju, rúma 3 km vestan við Herðubreið, hafa runnið hraun upp að henni og í gegnum skarðið á milli hennar og Herðubreiðar- tagla, þar sem þau mynda hálfa dyngju sem þekur allt svæðið austur að Jökulsá og norðaustur að Herðubreiðarlindum (2. mynd). Þessi hálfa dyngja er skemmtilegt dæmi um það hvernig þröngt skarð, sem dyngjuhraun rennur í gegnum, getur birst sem dyngjumiðja þó að hinn raunverulegi dyngjugígur liggi þar nokkuð frá. í skarðinu við norðurenda Herðubreiðar- tagla hafa Flötudyngjuhraun runnið upp að litlum eldvörpum þar sem nokkrir smágígar liggja á sprungu frá austri til vesturs (2. mynd). Gígarnir á Flötudyngju eru á vestnorðvestlægri sprungu en hraun- rennslið frá henni ber öll einkenni dyngju- hrauna. Norðan Herðubreiðar eru Flötudyngju- hraun grafin undir yngri hraunstraum sem runnið hefur frá norðlægri gossprungu á sprungureininni sem liggur frá Dyngju- fjöllum í áttina að Hrútsröndum og Koll- óttudyngju. Þetta hraun umgirðir norðan- verða Herðubreið og það hefur runnið austur í farveg Jökulsár á milli Herðu- breiðarlinda og Grafarlanda, þar sem það er nefnt Lindahraun. Það er yngra en síðasta hamfarahlaupið í Jökulsá (Haukur Tómasson 1973) og því vart yfir 2000 ára gamalt. Það gæti jafnvel hafa runnið á sögulegum tíma, sem er þó heldur ósennilegt. Annar hraunstraumur frá þess- ari sömu gossprungu hefur fallið sunnar lil austurs á milli Flötudyngju og Svörtu- dyngju og alveg upp að veslurhlíðum Herðubreiðartagla (2. mynd), svo að ekki er hægt að sjá hvor af þessum smávöxnu dyngjum er eldri. Óvíst er hvort Svörtu- dyngjuhraun ná eitthvað inn á kortlagða svæðið því að þunnfljótandi hraun frá Dyngjufjöllum hafa runnið ofan á þau allt uinhverfis dyngjuna. ■ HOLUHRAUN Holuhraun nefnist 90-100 ferkílóinetra unglegt hraun sem liggur við norðurjaðar Dyngjujökuls. Það liggur ofan á Kreppu- tunguhraunuin, a.m.k. að nokkru leyti, en bæði útlits og aldurs vegna getur það ekki llokkast með þeini. Ólafur Jónsson (1945) leiðir nokkrunt líkum að því að það hafi runnið a.m.k. að nokkru leyti árið 1797, enda er það mjög unglegt í útliti. Hins vegar er þessi aldursgreining hans ekki studd mjög sterkum rökum og engar frásagnir er að finna um meðfylgjandi jökulhlaup. Holuhraun hefur aðallega runnið frá tveim gossprungum (2. mynd) sem sennilega hafa myndast í sama gosi. Líklegast heldur sú syðri þeirra áfram inn undir jökulinn. Hið gífurlega aurmagn í vestanverðum Dyngjujökli og útlit hans bendir til eldsumbrota þar á síðari öldum, en þeim mun ávallt fylgja jökulhlaup. Frásagnir eru til af mörgum jökulhlaupum í Jökulsá á Fjöllum á tímabilinu 1655 til 1730 (Sigurður Þórarinsson 1950, Sigur- jón Páll ísaksson 1984), en þau benda eindregið til eldsumbrota í Dyngjujökli á þeim tíma. Spurningunni um aldur Holu- hrauns er því ekki fullsvarað að nn'nu áliti. Nokkur eldri gígbrot finnast við vestur- jaðar Holuhrauns, 500-1000 m frá jökl- inum. Þau hafa ekki verið rannsökuð nánar, en þau gætu tilheyrt Krepputungu- hraunum. ■ ARNARDALSÖLDUGÍGAR Arnardalsöldugígar liggja austan í hlíðum Arnardalsöldu. Þarna eru gígbrot úr rauð- brenndu og svörtu gjalli og lítil, máð 207
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.