Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 105

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 105
Skýrsla um hið íslenska NÁTTÚRUFRÆÐIFÉLAG FYRIR ÁRIÐ 1994 FREYSTEINN SIGURÐSSON amkvœmt lögum Hins íslenska náttúrufrœðifélags skal formað- urfélagsins árlega birta skýrslu um starfsemina í Náttúru- fræðingnum. Þessi háttur hefur verið hafður á allt frá árinu 1952 þegar Nátt- úrufrœðingurinn var gerður að félagsriti en fram til þess hafði tímaritið aðeins verið selt í áskrift. ■ FÉLAGAR í árslok voru félagar og áskrifendur Náttúru- fræðingsins 1.560 og hafði þeim fjölgað um 8 á árinu. Var það í fyrsta sinn síðan 1987 sem ekki hafði orðið fækkun í félaginu. Heldurhafði dregið úrfækkuninni hin síðari ár, en mest var hún 1988 og 1989. Heiðurs- félagar voru 10, eins og í upphafi árs. Einn heiðursfélagi lést á árinu, Sigurður H. Pétursson gerlafræðingur, en hann var um tíu ára skeið ritstjóri Náttúrufræðingsins, auk margra annarra starfa fyrir félagið. Á aðalfundi HÍN 1994 var Pétur M. Jónasson, prófessor í vatnalíffræði í Kaupmannahöfn, kjörinn heiðursfélagi HÍN, en hann hefur m.a. verið frumkvöðull og driffjöður f fjöl- hliða rannsóknum á Mývalni og Þingvalla- Freysteinn Sigurðsson (f. 1941) lauk Diplomprófi í jarðfræði frá Háskólanum í Kiel í Þýskalandi árið 1974. Freysteinn hefur starfað lijá Orkustofnun æ sfðan, einkum við grunnvatnsrannsóknir, neyslu- vatnsrannsóknir og jarðfræðikortagerð. Hann hefur verið formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags frá 1990. vatni og ritstjóri vísindarita um þær rann- sóknir. Er þar haldið þeirri hefð að heiðurs- félagar HÍN séu annaðhvort fyrrverandi forystumenn í félaginu sjálfu eða prófessorar við Hafnarháskóla sent stuðlað hafi ötullega að náttúrurannsóknum á íslandi. Er vitaskuld sérlega ánægjulegt að íslendingur í slíku embætti skuli hafa lagt fræðunum hér á landi svo mikið lið. Kjörfélagar voru 6 og hafði fækkað um einn á árinu. Ævifélagar voru 16 og hafði fækkað um 3 á árinu. Almennir félagar innanlands voru 1220 f árslok, skólafélagar 89, hjónaaðild höfðu 16, félagar og stofnanir erlendis 66 og hafði fjölgað urn 8, en stofnanir innanlands voru 135 að tölu. Alls létust 9 félagsmenn á árinu, 46 voru strikaðir út af félagaskrá vegna vanskila og er það með minna móti urn árabil, 59 gengu úr félaginu en 122 í það, þar af 33 á svo- kölluðum skólakjörum. ■ STJÓRN OG STARFSMENN Á aðalfundi HÍN, 26. febrúar 1994, voru frá- farandi stjórnarmenn félagsins endurkjörnir, nema hvað Gyða Helgadóttir gaf ekki lengur kost á sér til endurkjörs. í hennar stað var kjörin Þóra Elín Guðjónsdóttir. Stjórn félagsins var 1994 skipuð sem hér segir: Forntaður Freysteinn Sigurðsson, vara- formaður Hreggviður Norðdahl, gjaldkeri Ingólfur Einarsson, ritari Þóra Elín Guðjóns- dóttir, meðstjórnandi SigurðurS. Snorrason. Nýir varamenn voru kjörnir Guðmundur Halldórsson og Helgi Guðmundsson. Endur- skoðendur voru endurkjörnir Magnús Náttúrufræðingurinn 65 (3-4), bls. 213-219, 1996. 213
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.