Náttúrufræðingurinn - 1976, Qupperneq 27
um Evrópu voru kenndar við það.
Á 19. öld komst þýskur verklræð-
ingur á lag með að vinna raf í stór-
um stíl úr jarðlögum á ströndum
Austur-Prússlands. Rafið var unnið
úr „bláa leirlaginu“, er fannst á um
25 m dýpi og reyndist mjög rafauð-
ugt. Markaðurinn varð yfirfullur á
fáum árum og rafið stórféll í verði.
Þótti þá og minna í ])að varið en
áður.
En nú er rafið komið til vegs og
vdrðingar á nýjan leik. Hefur og
mjög gengið á raf í heiminum. Balt-
neskt raf seldist nýlega á 1500 dansk-
ar krónur kílóið á alþjóðamarkaði.
Danmörk hefur verið talin rafauð-
ugt land, en í fyrra og hitteðfyrra
l'undust aðeins um þúsund kíló hvort
árið, og varð að flytja inn bæði unn-
ið og óunnið raf frá Rússlandi, Pól-
landi og Austur-Þýskalandi.
Raf og rafmagn
Rafmagnið er, eins og kunnugt er,
kennt við raf. Grikkir kölluðu rafið
elektron, þ.e. sólarglampa, og á flest-
um Evrópumálum er rafmagnið kennt
við það orð.
Um 600 árum l'yrir Krist neri
gríski heimspekingurinn Þales frá
Milet rafmola við skikkju sína, og
lionum til mikillar undrunar dró raf-
ið fatatrefjarnar að sér og þær loddu
við það. Þegar Þales hélt rafmolanum
fast að loðnum handlegg sínum, risu
hárin og drógust að molanum. Var
þetta galdur, eða hvað olli þessu
lurðulega fyrirbæri? Rafmagn var
ekki þekkt á þessum tíma.
Aðdráttareiginleiki rafsins leiddi til
ýmiss konar trúar og hjátrúar á yfir-
náttúrulegan mátt rafsins, t.a.m. til
lækninga. Sagt er, að Lúther hafi
gengið með rafmola í vasanum sem
lyf gegn nýrnaveiki, en molann hafði
einn vina hans sent honum að gjöf
í þessu skyni. Austurlenskir höfðingj-
ar höfðu líka sumir tröllatrú á mætti
rafsins.
Skýringin á eðli rafmagnsins kom
ekki fyrr en meira en tvö þúsund
árum eftir að Þales frá Milet hafði
séð ullartreijarnar dragast að núna
ráfmolanum.
Eldri árgangar Náttúrufræðingsins
Lesendum Náttúrufræðingsins er
bent á, að nú er unnt að kaupa í cinu
lagi þau hefti úr fyrri árgöngum, sem
enn eru til birgðir af. Þeiin, sem
áluiga hafa á að eignast þessi hefti, er
bent á að hafa samband við afgreiðslu-
mann Náttúrufræðingsins, sem gefur
nánari upplýsingar um verð og ann-
að. Afgreiðslumaður Náttúrufræð-
ingsins er Stefán Stefánsson, Stórholti
12, Reykjavík, sími 16566.
21