Náttúrufræðingurinn - 1976, Qupperneq 45
Krabbategund af trjónukrabba-
ættinni hefur fundist alloft nú í
seinni tíð við Vestmannaeyjar. Ein-
tak það, sem ég hef undir höndum,
fékk ég hjá Friðriki Jessyni í Vest-
mannaeyjum, en hann fékk það hjá
Sigurjóni Jónssyni, Þorlákshöfn. Ein-
tak þetta kom í botnvörpu í apríl
s.l„ 10—12 sjómílur suður af Stór-
höfða, á 270 metra dýjoi. Friðrik
tjáði mér, að hann hefði nú tvö ein-
tök af sömu tegund í fiskabúri hjá
sér og hafi þau fengist á togaranum
Vestmannaey, djúpt suður af Surts-
ey á 500 metra dýpi í júní s.l.
Krabbi þessi reyndist vera Rochinia
carpenteri (Thomson) og hef ég valið
að kalla hann gaffalkrabba.
Rochinia carpenteri (Thomson)
gaffalkrabbi er töluvert frábrugðinn
venjulegum trjónukrabba, og það,
sem auðkennir hann fyrst og fremst,
er skjaldarnefið (rostrum), sem er
klofið þannig að það myndar gafíal
eða kvísl. Yfirborð skjaldarins er
sett hnúðum (2—3) eftir ákveðnu
mynstri (2. rnynd), einnig ganga tveir
gaddar út úr hliðum skjaldarins sinn
hvoru megin. Skjöldurinn er þakinn
smáum hárum, sem cru þó niest áber-
andi á trjónunni innanverðri. Gaffal-
krabbinn er rauður á litinn og oft
í dekkra lagi. Eintakið, sem ég hef til
meðferðar, er karldýr, og er skjaldar-
lengd Jtess 72 mm, en skjaldarbreidd
43 mm. Gaffalkrabbinn finnst á 180—
400 metra dýpi.
Útbreiðslusvœði: Austur-Atlantshaf
frá ströndum Suður-Noregs til NV-
Afríku (Sahara). Azóreyjar. Milli Skot-
lands og Færeyja. í riti um norræna
krabba eftir Marit E. Christiansen er
talið að gaffalkrabbinn finnist djúpt
suður af íslandi, sem hér nreð verður
staðfest. Einnig ber að staðfesta að
Jressi tegund virðist vera algeng á
hafsvæðinu umhverfis Vestnrannaeyj-
ar.
HEIMILD
Christiansen, M. E. 1969. Decapoda Bra-
chyura. Marine Invertebrates o£
Scandinavia 2: 1 — 124.
S U M M A R Y
Two new decapods (Crustacea) in Icelandic waters
by Sólmundur Einarsson,
Marine Research Institute, Skúlagata -I, Reykjavik.
In May 1974 a specimen of the decapod
Bathynecles superbus (Costa) was caught
at 265 m depth in Hornafjardardjúp, off
SW-Iceland (63°43,N-14°44,W).
Another decapod, Rochinia carpenteri
(Tlromson), has recently been observed
in several places off the soutlr coast of
Iceland, mainly near tlre Vestmann Is-
lands. A specimen described here was
caught in April 1976, 10—12 nautical
nriles soutlr of Stórhöfdi at 270 m deptlr.
Both species are new to Icelandic wat-
ers.
39