Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1976, Page 66

Náttúrufræðingurinn - 1976, Page 66
beint upp frá láglendinu, en annars staðar er aðliðandi halli. Svo er t. d. á Kvískerjum, Skaftafelli og Svína- felli, vestanvert við Sandfell og upp frá Fagurhólsmýri. Gróður cr einna fjölbreyttastur í þessu hlíðabelti, hvort sem um er að ræða brattlendi eða aðlíðandi Italla, og fuglalíf er þar einnig töluvert fjölskrúðugt. Víð- áttumiklir birkiskógar eru í Skafta- fellsbrekkum og vestanverðum Mors- árdal, en þar er Bæjarstaðaskógur með einna hávöxnustu og jafnframt beinvöxnustu birkitrjám á íslandi. Víðáttumikið birkikjarr er einnig í suðvesturhlíð Svínafellsheiðar. Þá er og töluvert birkikjarr vestanvert við Sandfell, en ekkert þaðan að Kví- skerjum, en þar er þroskamikið birki- kjarr, einkum í Eystra-Hvammi og á svonefndri Heiði. Fjallakraginn sjálfur er myndaður af grágrýti, móbergi, líparíti og granó- fýr og eru þessar bergtegundir oft hver innan um aðra. Fjöllin eru mjög misjafnlega mikið gróin og fer það bæði eftir hæð þeirra svo og eftir því úr hvaða bergtcgund þau eru. Sum eru gróðurlítil eða með öllu gróður- laus, en önnur allvel gróin langt upp, jafnvel upp að jökli. Gljúfur eru víða úr móbergi og mikið gróin, enda stuðlar fýllinn mjög að auknum gróðri jteirra, þar sem hann hefur sezt að. Hinir mörgu skriðjöklar, sem ganga út frá Öræfajökli, hafa sorfið geilar í fjallakragann og hlaðið upp stórgrýttar jökulöldur framan við jökulsporðana. Veðurfar í Öræfum er tiltölulega niilt, en votviðrasamt. Veðurathug- anastöð er á Fagurhólsmýri og þar hefur meðalhiti ársins reynst vera 5° C, meðalhiti í janúar 0,0° og í júlí 10,7°. Þar hefur meðalúrkoma á ári verið 1761 ntm. Samsvarandi tölur fyrir janúar og júlí hafa verið 166 og 155 mm. í Öræfum er mikill munur á úrkomu eftir staðháttum, eins og raunar annars staðar á landinu. Á Kvískerjum hefur t. d. úrkomumagn verið um og yfir 3000 mm á ári (mest 3674 mm), en minnst mun úrkoman vera í Skaftafelli og víðar í vestur- sveitinni. Ef nefna á helztu einkennisfugla í Öræfum, ber fyrst að nefna skúminn, en aðalheimkynni hans á íslandi og raunar í öllu Norður-Atlantshafi eru á Breiðamerkursandi og Skeiðarár- sandi. En auk þess verpur mikið af kjóa og svartbak á áðurnefndum söndum og víðar í Öræfum. Og ekki má gleyma músarrindlinum, sem sennilega er hvergi á íslandi eins al- gengur og í Öræfum. Aðalheimkynni hans þar eru í hinni skógi vöxnu og giljóttu hlíð upp frá Svínafelli, en einnig í skógum í Skaftafelli, m. a. Bæjarstaðaskógi, en minna er um hann á Kvískerjum. Ég tel rétt að minna hér á enn eitt einkenni Öræfarina, sem er bein af- leiðing af einangrun sveitarinnar. Ég á hér við þá staðreynd, að þangað hafa nagdýr aldrei komizt fyrr en ár- ið 1963, að vart varð við hagamýs í Skaftafelli. Á næstu tveimur árum breiddust hagamýs ört út um sveitina og rnega nú teljast algengar jtar. Að lokum vil ég svo færa Finni Guðmundssyni bestu þakkir mínar fyrir góð ráð og ábendingar í sam- bandi við samningu þessarar ritgerð- ar, en án hvatningar hans og stuðn- ings hefði lnin vart orðið til. 60
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.